Morgunblaðið - 19.12.2019, Page 79
DÆGRADVÖL 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
maður svonefndrar Evrópustefnu-
nefndar Alþingis hafði ég kynnst
vel áformum og stefnu Evrópusam-
bandsins. Hitt var erfiðara að þegar
kom að úrsögn þriggja landa úr
EFTA þurfti að skera niður öll um-
svif, þar á meðal að fækka í starfs-
liði. Þá féllu mörg tár.“
Síðar var Kjartan fastafulltrúi Ís-
lands í Brussel til Evrópusam-
bandsins 2002-2005. Hann var þá
aðalsamningamaður Íslands við
ESB um breytingar á EES-
samningi vegna inngöngu Austur-
Evrópuþjóða í sambandið.
Fjölskylda
Eiginkona Kjartans er Irma
Karlsdóttir bankafulltrúi við Lands-
banka Íslands, f. í Svíþjóð 26. mars
1943. Stúdent frá MR 1974. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Dóttir Irmu og Kjartans er María
Eva Kristína, f. 22. mars 1963, við-
skiptafræðingur frá HÍ og hagfræð-
ingur MA frá University of Cali-
fornia Santa Barbara, gift Þorkeli
Guðmundssyni, Ph.D. í rafmagns-
verkfræði. Börn þeirra eru Kári, f.
1988, Atli, f. 1992, og Sunna, f. 1995.
Systir Kjartans er Ingigerður
María Jóhannsdóttir Dahl, f. 13.
maí 1944, verslunarmaður og lyfja-
tæknir, eiginmaður hennar er
Reynir Guðnason, kennari og skóla-
stjóri.
Foreldrar Kjartans voru hjónin
Jóhann Þorsteinsson, f. 9. maí 1899,
d. 16. mars 1976, kennari og for-
stjóri á Sólvangi í Hafnarfirði, og
Astrid Alva Maria Dahl, f. í Svíþjóð
13. nóvember 1908, d. 1. júlí 2000,
hjúkrunarfræðingur og starfaði
meðal annars á hjúkrunarheimilinu
Sólvangi, dóttir hjónanna Alvars og
Klöru Mariu Dahl.
Kjartan Jóhannsson
Maria Dahl
saumakona í Västerås
Astrid Alva Maria Dahl
hjúkrunarfræðingur, m.a. á Sólvangi
Alvar Dahl
verkfræðingur hjá Asea í Västerås
Arndís
Þorsteinsdóttir
húsfreyja og
ljósmóðir á
Syðri-Hömrum
í Holtum
Ingveldur
Ástgeirsdóttir
húsfreyja á
Brúnastöðum
Guðni
Ágústsson
fv. ráðherra
Runólfur
Þorsteinsson
bóndi á
Berustöðum
Steinþór
Runólfsson
ráðunautur
á Hellu
Runólfur S.
Steinþórsson
prófessor við
viðskipta-
fræðideild HÍ
Árni Runólfsson
bóndi í Áshól
Hróbjartur Árnason
burstagerðar maður í Rvík
Jón Dalbú Hróbjartsson
fv. prófastur í Reykjavík
Guðlaug Jónsdóttir
húsfreyja í Áshól
Runólfur Runólfsson
bóndi í Áshól í Holtum
Ingigerður Runólfsdóttir
húsfreyja á Berustöðum
Þorsteinn Þorsteinsson
bóndi á Berustöðum í Holtum, Rang.
Arndís Helgadóttir
húsfreyja á Syðri-Rauðalæk
Þorsteinn Jónsson
hreppstjóri á Syðri-Rauðalæk í Holtum
Úr frændgarði Kjartans Jóhannssonar
Jóhann Þorsteinsson
kennari og forstjóri á Sólvangi í Hafnarfi rði
„AFSAKAÐU HVAÐ ÉG ER SEINN. MISSTI
ÉG AF„HAPPY HOUR” ?” „fer vel um þig svona?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... andlitið sem þú vilt
sjá alla ævi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG DÁIST STUNDUM
AÐ SJÁLFUM MÉR
OFTAST ER ÉG SAMT
HREINLEGA HEILLAÐUR
ÞAÐ ER FLUGA Í SÚPUNNI MINNI! HVERNIG
Á ÉG AÐ GETAÐ BORÐAÐ ÞETTA ÁN ÞESS AÐ
FÁ ÓGEÐ?
SÍAÐU SÚPUNA FRÁ!
Pétur Stefánsson segir frá því áLeir að hann hafi fengið dóna-
legt tilboð á fésinu frá konu sem vildi
fá hann til fylgilags við sig. Hann
svaraði henni á þessa leið:
Til Amorsleikja er ég fitt
og ekki neitt að fúna.
Þó gaman sé að gera hitt,
get ég það ekki núna.
Held ég við í hjarta mér
hjónabandsins trúnni.
Litli Pésinn á mér er
aðeins handa frúnni.
Sigmundur Benediktsson heilsaði:
„Heil og sæl í jólaundirbúningi“ á
sunnudag og var ekki að sjá að hann
léti veðrið á sig fá:
Merlar sól á mjallartrafi
myndsker fjöll í blámans djúp,
geislakjól á hægu hafi
hreyfir snjöll að rökkurhjúp.
Ármann Þorgrímsson yrkir og
kallar „Vetrarjól“:
Virðast ætla vetrar jól
að vera hér í þetta sinn
þó ég lítið sjái sól
hún sendir yl í bæinn minn.
Guðný Jakobsdóttir skrifar þessa
stöku á Boðnarmjöð og þurfti ég að
lesa þrívegis til að ná samhenginu og
meðtaka það - og loksins skildi ég!:
Stíu sína bút í bút
brutu og tjóni ollu!
Stökkva sá ég hrút á hrút
á hrút á grárri rollu.
Hér er skemmtilega kveðist á.
Magnús Halldórsson byrjar:
Græðgi þó að glepji flón
og gæsku manna deyði,
gera þau sér Gunna’ og Jón,
að góðu hafraseyði.
Bjarni Gunnlaugur Bjarnason
svarar:
Græðgi þó að glepji flón
og greið til heljar brautin
aðeins Gunna og hann Jón
eta hafragrautinn.
Hreinn Guðvarðarson á síðasta
orðið:
Hérna græðgin glepur fátt
við gleði neytum.
Mikið eiga allir bágt
í ykkar sveitum.
Guttormur J. Guttormsson orti til
Þórbergs Þórðarsonar:
Hvass sem stálið straumur frjáls
stóð sem nál í æxlum
þess sem ál þíns undramáls
óð á sálarbægslum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Dónalegt tilboð,
hrútur og grá rolla
PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
UpPlIfÐU
HlJÓMiNn
Með SeNnHeIsEr MoMeNtUm IiI