Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 88
Listar yfir bestu verk ársins í hin-
um ýmsu listgreinum eru farnir að
birtast, enda stutt til áramóta. Á
vefsíðunni Metacritic, sem tekur
saman dóma fjölda fjöl- og vefmiðla
og reiknar út meðaltalseinkunn, má
nú finna samantekt á topplistum
fjölda miðla yfir bestu kvikmyndir
ársins 2019.
Toppmynd listans þegar þetta er
ritað er suður-kóreska kvikmyndin
Parasite, Sníkjudýr, eftir leikstjór-
ann Bong Joon-ho en hún hlaut að-
alverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í
Cannes fyrr á árinu og hefur sópað
að sér verðlaunum og tilnefningum
frá þeim tíma. Kvikmyndin er ein
þeirra sem hlutu fullt hús stiga hjá
kvikmyndarýni Morgunblaðsins á
árinu. Í öðru sæti er ein umrædd-
asta kvikmynd ársins, hin gríðar-
langa The Irishman eftir Martin
Scorsese. Hefur hún hlotið nær ein-
róma lof gagnrýnenda og er með 94
af 100 mögulegum á Metacritic.
Rýnir Morgunblaðsins var hins veg-
ar ekki jafnhrifinn og gaf þrjár
stjörnur í einkunn. Annað var upp á
teningnum þegar kom að gagnrýni
um Marriage Story, nýjustu kvik-
mynd Noahs Baumbachs með Scar-
lett Johansson og Adam Driver í að-
alhlutverkum. Hún er í þriðja sæti
Metacritic-listans og þykir líklega til
afreka á verðlaunahátíðum næstu
mánuði. Líkt og The Irishman var
hún fyrst sýnd í takmarkaðan tíma í
kvikmyndahúsum og fór svo á Net-
flix-streymisveituna.
Kanína skoppar óvænt upp lista
Kvikmynd Quentins Tarantinos,
Once Upon a Time in … Hollywood,
Einu sinni var … í Hollywood, er í
fjórða sæti en hún er með meðaltals-
einkunnina 83 af 100 á Metacritic.
Þótt flestir gagnrýnendur væru
hrifnir af henni voru einhverjir sem
fundu eitt og annað að myndinni.
Þeir voru þó í miklum minnihluta. Í
fimmta sæti er 1917, stríðsmynd
leikstjórans Sams Mendes, sem hef-
ur ekki enn verið sýnd hér á landi
frekar en kvikmyndin í sjötta sæti,
Little Women. Hún hefur hlotið
álíka lof og myndirnar í efstu þrem-
ur sætunum ólíkt Jojo Rabbit sem er
í sjöunda sæti. Hún er með meðal-
talseinkunnina 58 af 100 en virðist
samt sem áður oft nefnd sem ein af
bestu kvikmyndum ársins.
The Farewell, sem er kínversk-
bandarísk framleiðsla, er í áttunda
sæti en er þó með miklu hærri ein-
kunn gagnrýnenda en Jojo Rabbit,
89 af 100. Morðgátumyndin Knives
Out, sem hlaut 4,5 stjörnur í einkunn
hjá Morgunblaðinu á dögunum, er í
sama sæti, með 13 stig líkt og The
Farewell. Í tíunda sæti er svo Uncut
Gems, bandarísk kvikmynd með
Adam Sandler í aðalhlutverki. Þykir
Sandler sýna góða takta í þeirri
kvikmynd í hlutverki skartgripasala.
Joker er í ellefta sæti, ein um-
deildasta kvikmynd ársins með tón-
list eftir Hildi Guðnadóttur. Skiptust
gagnrýnendur hennar í tvær fylk-
ingar; sögðu hana ýmist hörmulega
eða frábæra. Líklegt má telja að litl-
ar breytingar verði á efstu sætum
listans en þó skal settur sá fyrirvari.
Sníkjudýrin efst á lista
Metacritic tekur saman árslista ólíkra fjölmiðla um það besta í listum á árinu
sem er að líða Parasite eftir Bong Joon-ho trónir á toppi kvikmyndalistans
Skilnaður Scarlett Johansson og Adam Driver. Little Women Byggð á bók Louisu May Alcott.
Þrjár góðar Stillur úr The Irish-
man, Jojo Rabbit og Joker.
Sníkjudýr Kvikmyndin Parasite hefur hlaðið á sig verðlaunum á árinu.
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI