Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 92
92 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Ansi sérstakt atvik átti sér stað við
Hofsá sumarið 2017. Friðrik Þ. Stef-
ánsson, fyrrverandi formaður
SVFR, var að veiðum í ánni um miðj-
an ágústmánuð ásamt eiginkonu
sinni Margréti Hauksdóttur. Friðik
segir frá: „Þetta bar uppá síðasta
morguninn, veiðiveðrið var afar
óhagstætt, glæra, sólskin og hiti.
Veiðin hafði verið frekar róleg, en
smáar dökk-
ar smáflugur
veiddar á
dauðareki
höfðu þó gef-
ið þokkalega.
Við vorum í
alvöru að
velta fyrir
okkur að
taka það bara rólega og leggja
snemma af stað heim, sleppa veið-
inni þennan síðasta morgun. Það var
líklega vegna þess að við áttum
svæði 5 sem hafði verið mjög rólegt.
Hins vegar heyrði ég á tali leið-
sögumannanna að mjög stór lax
hefði sést stökkva í Wilsons Run,
Gamla Svartbakkahyl. Við ákváðum
því að skjótast þangað, reyna hylinn
og taka svo saman og fara í bæinn.
Ég óð yfir á eyrina og veiddi hyl-
inn að austan (eða sunnan), reyndi
fyrst einkrækjuhits og reisti einn
lax. Prófaði síðan Collie Dog númer
14 á hægu reki, en það voru engin
viðbrögð við því. Þá fór ég að hugsa,
hvað hefur hann ekki séð lengi. Dag-
anna á undan höfðu menn ekki verið
að nota annað en dökkar smáflugur.
Þá fékk ég ótrúlega ófrumlega hug-
mynd um að hann hefði ekki séð
rauða Frances í langan tíma. Ég
valdi númer 14 á gullkrók og fór nær
alveg upp í hávaðann, kastaði, lengdi
í og kastaði yfir að hinum bakkanum.
Ég sá vel í sólinni hvar aðalholan var
undir strengnum ofarlega og kastaði
eiginlega beint niður fyrir mig til að
fá hægt rek á fluguna. Þegar hún
kom útúr strengnum í öðru kasti
velti lax sér á hana og tók. Þetta virt-
ist vera sæmilegur fiskur, en ég átt-
aði mig þó alls ekki á stærðinni. Frú-
in var á hinum bakkanum og kallaði
til mín hvort hún ætti að koma yfir
með háfinn, en ég kallaði á móti að
þess gerðist ekki þörf, ég væri alveg
að ráða við þetta. En hafði varla
sleppt orðinu, þegar „bang“, það fór
allt af stað og hvein hressilega í hjól-
inu. Laxinn tók þarna 60-70 metra
roku, fór langt niður í undirlínuna og
niður undir brotinu stökk síðan risa-
lax. „KOMDU MEÐ HÁFINN,“
öskraði ég þá og Margrét dreif sig
yfir til mín með háfinn.
Glíman stóð í 50 mínútur, en eftir
þessa brjáluðu roku var laxinn frek-
ar þægur. Þó stökk hann fjórum
sinnum í viðbót. Ég tók allan tímann
mjög fast á honum því flugan var svo
lítil og ég vildi þá frekar missa hann
strax. En þegar upp var staðið var
flugan pikkföst í tungurótinni. Síð-
asta korterið var hann á það grunnu
vatni að það var ekki þorandi að
beita háfnum, en alveg geggjað að
sjá hann í svona nálægð í glampandi
sólskininu. Loks náði ég að stranda
honum og það var ekki fyrr en hann
datt á hliðina á grynningunum að ég
sá hversu hrikalega stór hann var.
Mældur 109 cm og honum var að
sjálfsögðu sleppt eftir myndatöku.
Á leiðinni í bæinn rifjaðist það upp
að 109 cm hængur hefði veiðst í
Skógarhvammshyl og maður velti
fyrir sér hvort að það væri tilviljun.
Hitti mann á leið í bæinn og við
ræddum þetta. Hann spurði hvort ég
ætti mynd þannig að hægt væri að
bera laxana sama, því til var mynd af
hinum laxinum. Seinna fékk ég að
vita að niðurstaðan var sú að þetta
var sami laxinn, dröfnur á kinn virt-
ust benda til þess. Laxinn veiddist
sem sagt aftur 10-12 dögum seinna,
þremur kílómetrum ofar í ánni. Fyr-
ir mér er mórall sögunnar hvað
veiða-sleppa aðferðin virkar vel og
eykur gæði þessarar takmörkuðu
auðlindar sem laxinn er og gefur
fleirum kost á að njóta glímunnar við
svo stórfenglega skepnu sem 109 cm
laxhængur er.“
„Maðurinn“ sem Friðrik hitti á
leiðinni til Reykjavíkur var Óskar
Páll Sveinsson, þekktur veiðimaður
og veiðileiðsögumaður. Veiðimaður
að nafni Guðlaugur Frímannsson
veiddi laxinn í fyrra skiptið í Skóg-
arhvammshyl, eins og áður kom
fram. Hann var með „skáskorinn“
Skugga eftir Sigurð Héðin (Sigga
Haug). Óskar Páll bar saman mynd-
ir af laxinum og um það verður vart
deilt, eins og sjá má af myndinni, að
þetta var einn og sami laxinn. Ekki
veiddist annar slíkur risi í Hofsá
þetta sumar, hann lét því ekki glepj-
ast í þriðja skiptið.
Gárubragðið virkaði
Jón Magnús Sigurðarson, leið-
sögumaður og formaður veiðifélags-
ins, minnist í bókinni eftirminnilegs
veiðimanns, Johns Berger sem hann
fylgdi við Hofsá:
„Mér er minnisstæður maður að
nafni John Berger. Ameríkani sem
veiddi í Hofsá í áratugi en hann er
höfundur flugunnar Stekkur blá.
John veiddi einungis með ein-
krækjum og fannst ekki mikið koma
til félaga sinna sem voru að veiða
með þríkrækjum og þá iðulega
rauðri Frances sem hann kallaði
„bad and ugly“. Þegar John kom að
veiðistað var hann alltaf rólegur, tók
sér yfirleitt tíma til að horfa á hylinn
og kannski fá sér vindil eða staup áð-
ur en hann byrjaði. Oft valdi hann
sér fisk sem hafði sýnt sig í hylnum
og fékk hann yfirleitt til að taka. Ég
var svo lánsamur að vera nokkur
sumur með John Berger. Hann
kenndi mér að nota einkrækju með
gárubragðinu og sá ég hversu öflug
sú aðferð getur verið og nota hana
við vissar aðstæður. Með ein-
krækjum eru hinsvegar þeir van-
kantar á að hættara er að missa
stóru fiskana. Eitt sinn var ég með
John Berger og Jim Utaski þá fram-
kvæmdastjóra Johnson&Johnson
við veiðar í Brúarhyl. Það var norð-
austan slagveður, mikið rok og öldu-
gangur þannig að varla var stætt úti.
Ég og Jim voru búnir að berja hylinn
án nokkurs árangurs, þegar við fór-
um inn í bíl kaldir og blautir til að ná
í okkur hita. John Berger sagðist
ætla að reyna einkrækju gárubragð-
ið sem hann og gerði. Við sátum við í
bílnum og höfðum ekki miklar vænt-
ingar. Skautaði flugan á öldutopp-
unum og sjáum við hvar kemur
tveggja ára hrygna upp úr hylnum
og neglir einkrækjuna hjá honum.
Stuttu síðar landaði hann 14 punda
hrygnu.“
„Hvein hressilega í hjólinu“
Bókarkafli | Út er komin bókin Hofsá & Sunnu-
dalsá. Er þetta sjötta bókin sem Litróf gefur út
um bestu laxveiðiár landsins. Eins og áður er
Guðmundur Guðjónsson ritstjóri og Einar Falur
Ingólfsson tekur ljósmyndir. Hér er gripið niður í
bókinni þar sem ýmsir veiðimenn rifja upp sögur
af bökkum Hofsár í Vopnafirði.
Ljósmyndir/Einar Falur Ingólfsson
Dalurinn Horft yfir hina rómuðu og gjöfulu efstu veiðistaði Hofsár. Eyðibýlið Foss í fjarska, ofan við fossbrúnina.
Stórlax Veiðimaðurinn Þorsteinn J með 94 cm hæng sem tók flugu hans í
Neðri-Fosshyl á hinu ævintýralega efsta veiðisvæði Hofsár.
Veiðilegur Pálmi Gunarsson leggur flugulínuna á Skógarhvammshyl.
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Opið: 19.-22. des. 10-22
Þorláksmessa 10-23
Aðfangadagur 10-12
Demantar
í úrvali fyrir ástina þína