Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 2
Þegar indverska Bollywood-stjarnan Deepika Padukone
fann fyrir þunglyndi vissi hún ekki hvernig hún átti að bregð-
ast við. Nú tekst hún á við vandann fyrir opnum tjöldum og
leggur sitt af mörkum til að hjálpa öðrum og berjast gegn
fordómum. 46
Stephane Mahe/Reuters
Berst við þunglyndi
fyrir opnum tjöldum
2 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2019
Morgunblaðið/Eggert
Innlendar og erlendar
fréttamyndir 32-39
Murad Sezer/Reuter
Útgáfufélag Árvakur hf. Morgunblaðið,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal
Höfundar Alma Dagbjört Möller, André Aciman, Baldur Arnarson, Bergur Ebbi, Dawoud Bey, Elizabeth Blackburn, Massimo Bottura,
Brynhildur Guðjónsdóttir, Patty Chang, Roger Cohen, Niall Ferguson, Teresita Fernández, Hannes H. Gissurarson, Guðrún Hálfdán-
ardóttir, Flick Haigh, Tristan Harris, Lazaro Hernandez, Jameela Jamil, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Alicia Kwade, Jack Ma, Mack
McCollough, Marta María Jónasdóttir, Cristina Mittermeier, Paul Nicklen, Aliza Nisenbaum, Paula Oloixarac, Deepika Padukone, Zac
Posen, Carles Puidgemont, Ragnar Axelsson, Reshma Saujani, Silja Björk Huldudóttir, Stefán Einar Stefánsson, Tolli, Tricia Tisak, Neil
deGrasse Tyson, Constance Wu.
Þýðingar Karl Blöndal og Stefán Gunnar Sveinsson. Forsíðumynd Ragnar Axelsson. Suðurskautið, hluti af myndafrásögn á bls. 60-65.
Blikur eru á lofti í efnahagsmálum og
lát gæti orðið á vexti, en þótt undan
láti er borð fyrir báru. Á alþjóðlegum
vettvangi vex Kína ásmegin, Banda-
ríkjamenn láta þó fyrir sér finna, en
Evrópa siglir beitivind á meðan beð-
ið er eftir Brexit og leiðtogaskipti í
Þýskalandi taka sinn tíma. Þá er það
tæknin, sem mun breyta vinnumark-
aði til frambúðar og tilveru okkar allri,
hafi sérfróðustu menn eitthvað til
síns máls. Í Tímamótum er fjallað um
stöðu mála í heiminum af þekkingu
og yfirsýn. Tímamót eru sérblað
Morgunblaðsins í samvinnu við The
New York Times.
Skammt var stórra högga á milli á árinu. Þjóðin hefur þó
aldrei verið ríkari og staðan aldrei verið betri, þótt dragi úr
væntingum vegna niðursveiflu. Baldur Arnarson og Stefán
Einar Stefánsson fjalla um stöðuna í efnahagslífinu. 4 og 6
Morgunblaðið/Ómar
Stór högg en staðan góð
Margar leiksýningar á árinu skírskotuðu með sterkum hætti
til samtímans, hvort sem um var að ræða ný íslensk verk eða
erlenda klassík. Fleiri íslensk verk voru sett á svið á árinu
sem senn er að líða en í fyrra, en konur reyndust ekki jafn
atkvæðamiklar og þá. 68
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Talað inn í samtímann
Mæðgurnar Inga Dóra Sigfúsdóttir og Sonja Símonardóttir
segja frá því hvernig greining á ADHD og lyfjagjöf gerbreyttu
öllu. Hjá Íslenskri erfðagreiningu er unnið að grundvallar-
rannsóknum á erfðaþáttum ADHD. Aukinn skilningur getur
hjálpað til við forvarnir og þróun lyfja. 10-12
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Greining breytti öllu
Innlent skop 42-45
Höfundar fimm listaverka, sem settu svip á árið 2019, segja
frá þeim. Í einu er fjallað um land, nýlendustefnu, ofbeldi og
vald, öðru gang himintunglanna og veruleikann, þriðja hlut-
tekningu á tímum uppnáms, fjórða innflytjendur og fimmta
endurímyndun sögunnar. 48-51
Með leyfi listamannsins og Art on the Underground, London; Anton Kern
Gallery, New York; Mary Mary, Glasgow. Höfundarréttur 2019 Aliza Nisenbaum
Linsa listamannsins
ásamt
Farið yfir það sem hæst bar á sviði hégómavísinda og dæg-
urmála á árinu og drepið á þá staðreynd að einu gildir hvað
við reynum að setja okkur á háan hest, þegar öllu er á botn-
inn hvolft erum við og verðum félagsverur. 66
Hæðir og lægðir
Hið nýja kalda stríð er hafið og það er við Kína, segir sagn-
fræðingurinn Niall Ferguson. Það er háð á sviði viðskipta og
vísinda og tækni, en fátt bendir til að gripið verði til vopna.
Það gæti hins vegar staðið um nokkurt skeið og ekki hægt
að ganga að sigurvegara vísum. 22
Aly Song/Reuters
Hið nýja kalda stríð