Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 54

Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2019 Fyrir áratug var Edward O. Wilson, prófessor við Harvard og annálaður faðir félags- líffræðinnar, spurður hvort maðurinn myndi geta leyst úr þeim vandamálum, sem hann myndi standa frammi fyrir næstu hundrað ár- in. „Já, ef við erum heiðarleg og snjöll,“ svar- aði hann. „Hinn raunverulegi vandi mannkyns er eftirfarandi: Við erum með steinaldar- tilfinningar, miðaldastofnanir og goðumlíka tækni.“ Frá því að Wilson lét þessi orð falla hefur goðumlíkur máttur tækninnar snaraukist, en hinir fornu steinaldarhvatar heilans eru eftir sem áður þeir sömu. Það er þó yfirleitt ekki hluti af þeim aðfinnslum, sem gerðar eru við tæknifyrirtæki á okkar tímum – að stafrænir innviðir Facebook og Google séu orðnir nátt- úrulegri hæfni heilans ofviða. Þess í stað heyrum við af áhyggjum yfir því að tæknifyr- irtæki safni saman og reki persónulegar upp- lýsingar um okkur. Eða að þau séu einfaldlega of stór. Gerum ráð fyrir að okkur hafi tekist að leysa persónuverndarvandann. Í þessari nýju framtíðarsýn myndum við eiga öll gögn um okkur og tæknirisunum væri bannað að nota snjalltengingar til að fylgjast með hvar við er- um niðurkomin. Þau hefðu aðeins aðgang að þeim upplýsingum sem við hefðum fallist á að deila með þeim. Þótt við myndum sjá færri uggvekjandi auglýsingar og draga myndi úr vænisýki vegna eftirlits hefði enn ekki verið tekið hin- um viðsjárverðu þáttum í þróun netheima. Fíkn okkar í félagslega staðfestingu og að fá „læk“ við færslur myndi halda áfram að rústa athygli okkar. Heilinn í okkur myndi áfram hneigjast til heilagrar vandlætingar og reiðilegra tísta, sem hafa vikið lýðræðislegri umræðu til hliðar fyrir barnaleg hann-sagði, hún-sagði orðaskipti. Táningar yrðu áfram opnir fyrir félagslegum þrýstingi á netinu og neteinelti, sem skaðar geðheilsu þeirra. Innihaldsalgrím myndu halda áfram að draga okkur niður í kanínuholur í átt að öfg- um og samsæriskenningum því að sjálfvirkar tillögur eru ódýrari en að borga mennskum ritstjórum fyrir að ákveða hvað sé þess virði að við eyðum tíma í það. Og róttækt innihald innbakað í lokuðum netsamfélögum myndi halda áfram að ýta undir skotárásir á fjölda manns. Með þessum áhrifum sínum á tvær milljónir heila halda félagsmiðlar okkar tíma á penn- anum, sem skrifar heimssöguna: Þeir hafa leyst úr læðingi öfl, sem munu hafa áhrif á kosningar framtíðarinnar og jafnvel getu okk- ar til að greina á milli staðreynda og skáld- skapar og dýpka þannig gjárnar í samfélag- inu. Persónuvernd á netinu er vissulega raun- verulegt vandamál, sem þarf að taka á. En jafnvel bestu persónuverndarlögin ná ekki lengra en viðnám steinaldartilfinninga okkar gagnvart seiðmagni tækninnar. Smáforrit, sem kallast FaceApp, fór um eins og eldur í sinu og lokkaði 150 milljónir manna til að láta af hendi andlitsmyndir úr einkasafni sínu ásamt nöfnum einfaldlega með því að höfða til hégómleika þeirra. Hvernig? Smáforritið gerði kleift að búa til fáránlega sannfærandi myndir af því hvernig fólkið kynni að líta út langt inni í framtíðinni. Hver á smáforritið (og 150 milljón nöfn og andlit)? Rússneskt fyrirtæki með aðsetur í Sankti Pét- ursborg. Hver þarf að hakka sig inn í kosningar eða stela upplýsingum um kjósendur þegar fólk lætur alsælt af hendi skannaðar myndir af andliti sínu þegar höfðað er til hégómagirndar þess? Með eðlisávísun frá steinöld erum við ein- faldlega ófær um að verjast gjöfum tækninn- ar. En þetta skaðar friðhelgi einkalífsins. Það takmarkar einnig getu okkar til að grípa til sameiginlegra aðgerða. Það er vegna þess að steinaldarheilar okkar eru ekki gerðir fyrir alvísa vitund um þján- ingu heimsins. Fréttaveiturnar á netinu mata okkur á samsafni af öllum sársauka og grimmd heimsins og draga heilann á okkur Heilinn hefur ekki roð við tækninni Við þurfum að laga stafræna miðla að þeim gildum sem gera okkur að mönnum. TRISTAN HARRIS er einn stofnenda og framkvæmdastjóri Stofnunar um mannúðlega tækni (Center for Humane Techno- logy) og annar stjórnenda hlaðvarpsins „Óskipt athygli þín“ („Your Undivided Attention“). TÍMAMÓT: BANDARÍSK YFIRVÖLD VEITA FACEBOOK FÁI METSEKT FYRIR AÐ BRJÓTA FRIÐHELGI EINKALÍFS Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 www.husgagnahollin.is 558 1100 10 – 18 virka daga 11 – 17 laugardaga 13 – 17 sunnudaga 10 – 18 virka daga 11 – 16 laugardaga Ísafjörður Skeiði 1 Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru. Gildir til 9. febrúar eða á meðan birgðir endast. www.husgagnahollin.is VE FVERSLUN A LLTAF OP IN afsláttur 60% Allt að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.