Fréttablaðið - 28.12.2019, Side 2
Veður
Norðaustan 8-15 og slydduél
á Vestfjörðum, annars hægari
breytileg átt og skúrir. Úrkomulítið
í kvöld og frost 1 til 6 stig, en frost-
laust sunnan til á landinu.
SJÁ SÍÐU 36
Votviðri í höfuðborginni
Það hlánaði á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þessi unga kona var á ferli í miðborginni og lífgaði svo sannarlega upp á umhverfið með björtum litum í
fatnaði sínum, regnhlíf og fylgihlutum. Rigningu gærdagsins fylgdi nokkur vindur og þá getur reynst erfitt að hemja regnhlífar. Ekki var annað að
sjá en að henni færist það vel úr hendi en hún hafði þó vökult auga með regnhlífinni ef skyndilega tæki að blása úr óvæntri átt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Náðu tökum
á þunglyndi
Við Kvíðameðferðarstöðina (KMS) er að hefjast sérhæfð hóp-
meðferð við þunglyndi, byggð á hugrænni atferlismeðferð.
Þunglyndi er með algengari vandamálum sem fólk glímir við og
ein kennist af depurð eða áhugaleysi, þreytu, svartsýni, lífsleiða,
breyttri matarlyst og of- eða vansvefni.
Hópmeðferðin hefst 6. janúar og má finna nánari upplýsingar á
heimasíðu KMS www.kms.is.
Skráning fer fram á kms@kms.is
SAMFÉLAG Dæmi eru um að sjálf-
boðaliðar björgunarsveitanna séu
lengi að jafna sig eftir erfið útköll
á borð við þau sem áttu sér stað á
aðventunni norðan heiða. Áður fyrr
var lítill gaumur gefinn að andlegri
hlið þeirra sem gefa kost á sér í slík
útköll en mikil vakning hefur verið
í þeim efnum undanfarinn áratug.
„Það helst í raun í hendur við
umræðuna í þjóðfélaginu. Það
er ekki langt síðan áfallahjálp í
höndum fagfólks þekktist ekki sem
úrræði. Eðlilega var fyrst um sinn
einblínt á þá sem áttu um sárt að
binda en töluvert síðar var farið að
leiða hugann að viðbragðsaðilum,“
segir Þór Þorsteinsson, formaður
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Að sögn Þórs hafi björgunar-
sveitirnar á árum áður misst fólk úr
starfi sveitanna út af því að ekki var
tekið á slíkum málum. „Það koma
oft upp mjög erfiðar og krefjandi
aðstæður sem erfitt er að vinna
úr. Afleiðingarnar geta verið mjög
lúmskar. Þannig eru dæmi þess að
björgunarsveitarfólk gangi í gegn-
um erfiða reynslu og bæli þessar til-
finningar niður. Löngu síðar koma
svo upp sambærilegar aðstæður og
þá fer allt í baklás hjá þessum ein-
staklingum,“ segir Þór.
Hafa sumar sveitir brugðið á það
ráð að greiða fyrir sálfræðitíma ein-
stakra meðlima, sem geta leitað sér
þeirrar hjálpar án aðkomu skrif-
stofu sveitanna. „Við höfum líka
átt í mjög góðu samstarfi við Rauða
krossinn um slíka sálfræðiþjónustu
sem hefur gefið góða raun,“ segir
Þór.
Þá hafa margar sveitir innan
Landsbjargar komið á fót félaga-
stuðningsteymi, en markmið þess
er að huga að hinum sálræna þætti
starfsins. Slík teymi stjórna viðrun
eftir erfið útköll og uppákomur.
„Í viðrun hittast sjálf boðalið-
arnir og fara yfir aðgerðirnar. Sem
betur fer á fólk orðið auðveldara
með að ræða erfiða hluti á opinská-
an hátt,“ segir Þór. Hann bendir á að
mikil áhersla sé lögð á að eðlilegt sé
að finna til ýmissa tilfinninga eftir
erfið útköll. „Sorg, doði, svefnleysi,
þreyta, reiði og samviskubit er
dæmi um tilfinningar sem blossa
upp hjá okkar fólki. Í þessum til-
vikum getur félagsstuðningur og
viðrun skipt sköpum ef vanlíðanin
hverfur ekki á 4-6 vikum og er fólki
ráðlagt að leita til sálfræðings og fá
frekari aðstoð,“ segir Þór.
Erfið útköll geta kallað fram
mismunandi viðbrögð hjá ein-
staklingum. Félagastuðningur er
mjög mikilvægur fyrir björgunar-
sveitarfólk því það hjálpar ótrúlega
mikið að geta rætt um erfiða lífs-
reynslu við einhvern sem hefur lent
í svipaðri reynslu. „Svo ég tali fyrir
sjálfan mig þá hef haft samband við
vini og kunningja í öðrum sveitum
eftir erfið útköll og sagt þeim frá
því hvað ég sé að takast á við. Þann-
ig passar fólk upp á hvert annað,
heyrir í manni og kíkir í kaffi,“ segir
Þór. bjornth@frettabladid.is
Sjálfboðaliðar upplifa
oft sorg, doða og reiði
Mikil vakning hefur verið á undanförnum árum varðandi þær andlegu áskor-
anir sem sjálfboðaliðar björgunarsveitanna standa frammi fyrir eftir erfið
útköll. Aðstoð fagfólks, vinátta og náungakærleikur skiptir þar sköpum.
Sjálfboðaliðar björgunarsveita ganga oft í gegnum erfiða lífreynslu.
Sem betur fer á fólk
orðið auðveldara
með að ræða erfiða hluti á
opinskáan hátt.
Þór Þorsteinsson,
formaður Slysa-
varnafélagsins
Landsbjargar
SKIPULAGSMÁL Skipta á lóðunum
á Laugavegi 170 til 174 í tvær lóðir
samkvæmt umsókn Yrki arkitekta
um nýtt deiliskipulag á svokölluð-
um Heklureit. Alls er gert ráð fyrir
250 íbúðum auk valkvæðrar heim-
ildar um að fjölga íbúðunum um 90.
„Heimilt verður að auka bygg-
ingarmagn á lóðinni, byggja þrjár
hæðir ofan á núverandi byggingar
og byggja við 3. hæð norðurhliðar
núverandi álmu við Laugaveg. Nýju
hæðirnar og viðbyggingin eru undir
atvinnustarfsemi,“ segir í bókun
skipulagsfulltrúa. – gar
Hundruð íbúða
á Heklureitinn
Á Heklureitnum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
STJÓRNSÝSLA Frumvarp Ásmundar
Einars Daðasonar, félags- og barna-
málaráðherra, um sameiningu
Íbúða lánasjóðs og Mannvirkja-
stofnunar voru samþykkt fyrir jól á
Alþingi. Ný stofnun mun heita Hús-
næðis- og mannvirkjastofnun og er
markmið stjórnvalda að stuðla að
betri, öruggari og skilvirkari hús-
næðismarkaði.
Hermann Jónasson, núverandi
forstjóri Íbúðalánasjóðs, verður
forstjóri hinnar nýju stofnunar og
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir
aðstoðarforstjóri. Björn Karlsson,
núverandi forstjóri Mannvirkja-
stofnunar, fer til starfa sem ráðgjafi
hjá félagsmálaráðuneytinu.
Ljóst er að stjórnendastöðum
mun fækka nokkuð. Alls voru ellefu
svið hjá stofnunum tveimur, sex hjá
Íbúðalánasjóði en fimm hjá Mann-
virkjastofnun. Hjá nýrri stofnun
verða þau fimm talsins og því mun
stjórnendastörfum fækka verulega.
Í tilkynningu um sameining-
una kom fram að allir starfsmenn
myndu fá tilboð um nýtt starf hjá
hinni nýju stofnun.
Í ljósi þessa kom það starfsfólki
ekki á óvart að fá uppsagnarbréf
rétt fyrir jól. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var hluta starfsfólks-
ins þó brugðið við launakjör sem
boðin voru á nýjum stað. Dæmi eru
um að starfsfólki bjóðist 40 prósent
lægri laun og í öðrum verkefnum en
það sinnti áður.
Líta margir starfsmenn á tilboðið
sem móðgun og liggja undir feldi
yfir hátíðirnar um hvort hverfa eigi
frá störfum. – bþ
Óánægja innan
Íbúðalánasjóðs
Íbúðalánasjóður lýkur göngu sinni.
2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð