Fréttablaðið - 28.12.2019, Side 32

Fréttablaðið - 28.12.2019, Side 32
Benecol er skrásett vörumerki fyrir vörur sem innihalda ákveðna gerð plöntustanól­ esters, en rannsóknir hafa sýnt að hann hefur áhrif til lækkunar kólesteróls í blóði. Mikilvægt er að halda kólesterólgildum innan eðlilegra marka því of hátt kólest­ eról í blóði er einn helsti þáttur kransæðasjúkdóma og æskilegt að heildarkólesteról í blóði sé undir 5 mmól/l þar sem allt yfir 6 mmól/l telst hátt. Kólesteról er ein tegund blóðfitu og gegnir ýmsum mikilvægum hlutverkum í líkam­ anum. Það er framleitt í lifrinni en berst einnig með fæðunni í líkamann. En ef kólesterólmagn í blóði eykst umfram þörf getur það valdið æðakölkun og krans­ æðasjúkdómum. „Algengi of hás kólesteróls eykst með aldri og hér Lækkaðu kólesterólið með Benecol Á undanförnum áratug eða svo hafa komið fjöl- mörg matvæli á markað víða erlendis undir vöruheitinu Benecol. á landi hafa rétt tæplega 40% karla á aldrinum 40­50 ára og kvenna á aldrinum 50­60 ára kólesterólgildi yfir 6 mmól/l og því er mikilvægt að þeir sem komnir eru á fullorð­ insár láti fylgjast með blóðfitunni hjá sér,“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS. Benecol er heilnæmur drykkur sem hefur áhrif Benecol er náttúrulegur mjólkur­ drykkur sem ætlaður er þeim sem vilja lækka kólesteról í blóði. Drykkurinn frá MS er sýrð undanrenna sem inniheldur 5% plöntustanólester og hentar vel í baráttunni gegn kólesteróli sem hluti af fjölbreyttu mataræði. „Allra nýjustu niðurstöður hafa sýnt fram á að mun betri árangur næst sé Benecols neytt með eða strax eftir máltíð en ef þess er neytt á fastandi maga. Því er mælt með að neyta Benecols í kringum einhverjar af máltíðum dagsins, t.d. morgunverð, hádegisverð eða kvöldverð,“ segir Guðný. Rannsóknir hafa staðfest góða virkni Benecols „Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum plöntu­ stanólesters, hinu virka efni í Benecol, á kólesteról í blóði. Benecol er nátt- úrulegur mjólkur- drykkur sem ætl- aður er þeim sem vilja lækka kólest- eról í blóði. Niðurstöður eru einróma á þá leið að neysla á honum lækkar blóð­ kólesteról þar sem efnið hindrar upptöku á því úr fæðu í þörmum og kemur lækkunin yfirleitt fram nokkrum vikum eftir að neysla hefst og er allt að 15% að meðal­ tali þó engar aðrar ráðstafanir séu gerðar. Lækkunin er einkum í heildarkólesteróli og hinu svo­ kallaða „vonda kólesteróli“ (LDL), en engar breytingar verða í „góða kólesterólinu“ (HDL). Rannsóknir hafa einnig sýnt að mikilvægt er að neyta vörunnar reglulega til að árangurinn haldist og sé neyslu hætt, fer kólesterólgildi aftur í fyrra horf.“ Mataræði og kólesteról Mataræði er meðal þeirra þátta sem helst hafa áhrif á magn kól­ esteróls í blóði. Meðal þess sem ráðlagt er til að lækka kólesteról er að stilla fituneyslu í hóf, velja frekar mjúka fitu en harða og neyta grænmetis, ávaxta og grófs kornmetis í ríkum mæli. Benecol mjólkurdrykkur er því góð viðbót við hollt mataræði til að halda kólesteróli innan eðlilegra marka og ein f laska á dag dugar til að ná hámarksvirkni. Sundlaugin í Birkihofi er svalandi og dásamleg og þar hægt að fljóta og næra líkama og sál. Birkihof er paradís og falin perla rétt austan við Laugarvatn. Þar leiðir Laila svett árið um kring. Ég byrjaði að stunda svett hjá guðfeðrum svettsins á Íslandi, þeim Nonna Ragnars­ syni, sem féll frá nú í nóvember, og Heiðari Hallssyni, sambýlis­ manni hans. Þetta var árið 1992. Skömmu áður hafði indjáninn Sompnoh noh komið til landsins og kennt þeim Nonna og Heiðari ritúal svetts og héldu þeir svett­ athafnir í Elliðaárdalnum þar til fyrir nokkum árum að þeir hættu. Úthald þeirra og utanumhald var ómetanlegt og án þeirra hefði svett ekki orðið eins stórt og raun ber vitni,“ segir Laila Awad sem frá árinu 2008 hefur sjálf leitt svett­ athafnir við miklar vinsældir. „Ég var svo heppin að vera í svetti með Sompnoh noh og læra hans aðferð. Allar götur síðan hef ég haldið mig eins nálægt því sem Sompnoh noh kenndi og þeirri nálgun sem stunduð var hjá Nonna og Heiðari. Þangað fórum við óteljandi oft í svett fyrstu árin en þá var svettsamfélagið lítið og þótti ansi framandi. Sjálf varð ég algjörlega heilluð og gat helst ekki sleppt einu einasta svetti ef ég vissi að það væri á döfinni,“ segir Laila og brosir. Farið í kirkju náttúrunnar Laila byrjaði að leiða svett hjá hjónunum Gunnýju og Tolla Morthens, þegar þau voru haldin á þáverandi heimili þeirra hjóna við Meðalfellsvatn. Laila segir gjafir þeirra til svettsins ómetanlegar. „Fyrir mér er svett eins og að fara í kirkju náttúrunnar. Að tengjast náttúrunni í kyrrð og þögn og öllu sem það hefur í för með sér; að sleppa tökunum og gefast upp fyrir því sem er hverju sinni.“ Hún segir uppruna svetts ekki vitaðan með vissu en að indjánar hafi varðveitt athafnir þess. „Indjánar fóru með svettið í skógana og héldu því leyndu fyrir hvíta manninum sem hefði senni­ lega eyðilagt og útrýmt athöfn­ inni í nafni trúarbragða. Svett er andstæðan við trúarbrögð þótt það hafi gríðarmikið með trú að gera – trú á náttúruna, sjálfan sig og kærleikann,“ segir Laila. „Svettathöfn er í raun bæna­ athöfn. Þar er beðið fyrir hreinsun á huga og líkama og beðið fyrir öðrum. Glóandi steinar gegna einu af lykilhlutverkum athafnarinnar en hitinn frá þeim hjálpar okkur að ná slökun og betri tengingu við okkar innsta kjarna. Upplifunin er fyrir mörgum ólýsanleg því ekkert svett er eins og annað og hver og einn upplifir það á sinn persónu­ lega hátt.“ Steinaberi og eldberi Laila stendur nú fyrir svetti í Birki­ hofi, falinni perlu í landi Syðri­ Reykja rétt austan við Laugarvatn. Þau eru þrjú sem eiga og reka stað­ inn: Laila, Valur Ásgeirsson og kona hans, Laufey Guðmundsdóttir. „Svettið okkar er mjög vinsælt og sérstaða þess er að við erum alltaf þrjú sem stöndum að athöfn­ inni. Ég er shaman svettsins og leiði það, Laufey er eini kvenkyns steinaberi landsins og Valur er eld­ berinn, sem gegnir stóru hlutverki í athöfninni, að koma upp eldinum og halda honum gangandi þannig að steinarnir verði rauðglóandi og heitir,“ útskýrir Laila. Í paradísinni Birkihofi er gisting fyrir allt að 18 manns, sundlaug, heitur pottur og sauna árið um kring. „Við stöndum fyrir svettathöfn­ um á öllum árstíðum, þegar staðurinn er ekki í útleigu, en Birkihof er tilvalinn staður fyrir hvers kyns námskeið og hafa þar verið haldin stjörnuspekinám­ skeið, f lotkennaranámskeið, jóga­ námskeið og slökun, og boðið upp á nuddara í lauginni, fyrirlestra, hugleiðslu og alls kyns athafnir,“ upplýsir Laila. Hægt er að skoða allt um staðinn á birkihof.is. Svett er bænaathöfn í náttúrunni Í svetti er beðið fyrir hreinsun huga og líkama við glóandi steina sem hjálpað geta við tengingu hins innsta kjarna. Laila Awad lærði ritúalið af indjánanum Somphoh noh. Laila Awad er shaman í svetti og hefur leitt svettathafnir frá 2008. 6 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.