Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 37

Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 37
 Rafmagnshjólin frá Cube verða flest í boði hjá TRI á næsta ári. Við ætlum að bjóða upp á rafmagnshjól í nánast öllum flokkum. Þú getur þá valið þér flokk, lit og stærð eftir því sem hentar.Fyrir stuttu tóku gildi ný lög sem fjalla um að virðis-aukaskattur verði tekinn af rafmagnshjólum sem kosta allt að 500.000 krónur og af venju- legum reiðhjólum sem kosta allt að 250.000 krónur eða minna. Hvernig útfærslan á þessum lögum verður er enn óljóst en Valur Rafn, markaðsstjóri TRI, telur að þetta eigi eftir að breyta markaðnum verulega og er strax farið að hafa áhrif. Verslunin er með umboð fyrir vörumerkið Cube sem fram- leiðir gríðarlega fjölbreytt úrval af rafmagnshjólum. „Rafmagnshjólin frá Cube verða flest í boði hjá TRI á næsta ári. Við ætlum að bjóða upp á rafmagns- hjól í nánast öllum flokkum. Þú getur þá valið þér flokk, lit og stærð eftir því sem hentar,“ segir Valur Rafn, markaðsstjóri verslun- arinnar. Valur segir að rafmagns- hjólin geti auðveldlega komið í staðinn fyrir bílinn á heimilinu, en það er hægt að stilla þau eftir bæði veðurfari og aðstæðum. Engin ástæða til að svitna á leiðinni í og úr vinnu Nú þarf fólk ekki lengur að hafa áhyggjur af því að svitna á leiðinni til vinnu. „Þú getur stillt hjólið þannig að það hjálpi þér mikið á leiðinni til vinnu en minna á leiðinni heim. Þá geturðu nýtt tímann og tekið út þína líkams- rækt á leiðinni heim.“ Í hjólunum er mótor sem hægt er að stilla eftir því hve mikla vinnu þú vilt leggja í að hjóla. „Það getur farið eftir veðri og aðstæðum, það getur verið mikill vindur og þá geturðu kallað fram meiri hjálp í hjólinu. Hjólið hjálpar þér líka upp brekkur og ýmislegt annað sem þú þyrftir annars að berjast við. Þá svitnar maður og þarf kannski að hafa með sér aukaföt í vinnuna. Það hefur auðvitað verið vaninn hingað til og fólk setur það ekkert fyrir sig, en þetta er nýr möguleiki. Þetta er það sem er að gerast í dag.“ Mikil gæði og gæðaeftirlit Valur Rafn trúir því að öll hjól í framtíðinni verði rafmagns- hjól. Það verður bara spurning um hvaða útfærslu á rafmagns- notkuninni maður velur. „Öll hjól eiga á endanum eftir að geta framleitt orku sem er hægt að nota til að hlaða tölvuna til dæmis eða símann. Við sjáum til dæmis framtíðina þannig að þú verðir með GPS-kerfi í stellinu á hjólinu. Það er það sem við erum að sjá gerast hjá Cube.“ Hjólin frá Cube eru hönnuð í samstarfi við Bosch, en bæði merkin eru þýsk. „Cube er hjólaframleiðandinn á meðan Bosch framleiðir íhlutina eins og til dæmis mótorinn og tölvuna. Það að bæði merkin eru þýsk þýðir oftast að gæðin eru mikil og sterkt gæðaeftirlit. Við vitum að hjólin eru sterk og þola íslenskar aðstæður mjög vel.“ Cube hefur undanfarna mánuði verið verð- launað fyrir hönnun og framsækni í samsetningu en fyrirtækið hefur stækkað mjög mikið á stuttum tíma. Rafmagnshjólin eiga stóran þátt í þessari stækkun. TRI hefur lagt mikla vinnu í að bæta vöruúrval á nýrri vefverslun sem var opnuð í ár, og að bæta upp- lifun þeirra sem heimsækja síð- una. Nú er hægt að panta allt sem þú þarft fyrir reiðhjólið í gegnum vefsíðuna. ,,Við stefnum svo að því að allar okkar vörur verði komnar á netið fyrir mitt árið 2020. Við finnum alveg fyrir því að ef varan er ekki á netinu þá heldur fólk að við eigum hana ekki til.“ Valur Rafn segir líka að verslunin sé að færa sig í þá átt að geta þjónustað alla á öllu landinu. Allar okkar vörur sem er að finna í vefverslun- inni er hægt að fá heimsenda. Sendingarkostnaðurinn fellur niður ef maður verslar fyrir hærri upphæð en 10.000 krónur. „Það er ekki stór tala ef maður er að kaupa sér vandað reiðhjól, þannig það má alveg segja að við sendum við- skiptavinum okkar hjólin frítt um land allt. Samstarfsaðilar okkar eru Sportver Akureyri og Vaskur Egilsstöðum en hjá þeim er hægt að skoða fjölbreytt úrval Cube reiðhjóla og aukahluta.“ TRI VERSLUN, Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík www.tri.is. TRI verslun býður mikið úrval Cube rafmagnshjóla Verslunin TRI er umboðsaðili vörumerkisins Cube sem framleiðir gríðarlega fjölbreytt úrval af rafmagnshjólum. Hjólin frá Cube eru hönnuð í samstarfi við Bosch, en bæði merkin eru þýsk. Cube merkið er þekkt fyrir gæði og glæsileika. Reiðhjólin eru fyrir alla. Vönduð rafmagnshjól í mörgum flokkum fást hjá TRI verslun, mismunandi litir og stærð eftir því sem hentar. Nú er hægt að kaupa Cube raf- magnshjól hjá TRI VERSLUN í versl- un og á netinu. KYNNINGARBLAÐ 11 L AU G A R DAG U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 HEILSA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.