Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 38

Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 38
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Fjölþjóðleg rannsókn komst að þeirri niðurstöðu að konur sem hafa fætt barn hafi yngri heila en þær sem hafa ekki gert það. Svo virðist sem heilar þeirra séu að meðaltali á milli fimm og sex mánuðum yngri en heilar jafn- aldra þeirra sem hafa ekki eignast börn. Sagt var frá niðurstöðum rannsóknarinnar á vefsíðunni Science Norway. Rannsóknin var unnin með því að skoða myndir af heilum 12 þús- und breskra kvenna á aldrinum 40-70 ára, en þessar myndir gera rannsakendum kleift að kanna ástand heilans og reikna út aldur hans með mikilli nákvæmni. Rannsakendur segja að jákvæðu áhrifin aukist með f leiri börnum, en að þau minnki hjá konum sem hafa fætt f leiri en fjögur börn. Ólétta virðist yngja heilann Samkvæmt nýrri rannsókn hafa konur sem hafa fætt barn yngri heila en þær sem hafa ekki gert það. Áhrifin virðast vara í langan tíma og aukast með fleiri börnum, en minnka eftir fjórða barn. Svo virðist sem heilar kvenna sem hafa fætt börn séu að meðaltali á milli fimm og sex mánuðum yngri en heilar jafnaldra þeirra sem hafa ekki gert það. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ÞURR AUGU? Náttúruleg vörn gegn augnþurrki Trehalósi kemur á jafnvægi og verndar frumur hornhimnunnar Inniheldur trehalósa úr náttúrunni Hýalurónsýra smyr og gefur langvarandi raka Sérstaklega milt fyrir augun Án rotvarnarefna Tvöföld virkni - sex sinnum lengri ending Fæst í öllum helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslun Grandagarði og Glæsibæ, 5. hæð Ekki er vitað hvers vegna. Áhrifin eru ekki skammvinn heldur. Rannsakendur segja að þau geti verið til staðar allt að 30 árum eftir barneignir, sem gefi til kynna að þau séu varanleg. En þeir taka fram að til að svara því betur þyrfti að fylgjast með konum yfir langt tímabil og þeir benda líka á að það sé mikill munur innan beggja hópanna. Sýnir getu heilans til að breytast Rannsakendur hafa mikinn áhuga á að kanna líffræðilega þætti og umhverfisþætti sem gætu útskýrt þennan mun á öldrun heilans. Taugalæknirinn Erik Taubøll, sem starfar hjá Óslóarháskóla, segir að niðurstöður rannsóknar- innar gefi ágæta vísbendingu um getu heilans til að breytast á lífs- leiðinni. Hann segir það vel þekkt að kyn- hormónar séu mjög mikilvægir í mótun heilans á fyrstu stigum og að hormónabreytingar, líkt og þær sem eiga sér stað við blæðingar, hafi f lókin áhrif á heilann. Hann segir samt að það séu líka ýmsir aðrir þættir sem geta haft áhrif á lífsleiðinni og mótað öldrun heilans á ýmsan hátt. „Af hverju eru til dæmis minni áhrif fyrir konur með mörg börn?“ segir Taubøll. „Aðrir hafa líka talið tengsl milli margra barna og heila- bilunar. Hver er ástæðan fyrir því? Þessir þætti ætti að rannsaka á kerfisbundinn hátt.“ Hann segir líka að það séu svo margir þættir sem hafi áhrif á heilann að við ættum ekki að láta niðurstöður könnunarinnar hafa nein áhrif á ákvarðanatöku varðandi barneignir. Þó að þetta sé tölfræðilega þýðingarmikill munur þýðir það ekki að allar konur sem eignast börn fái endi- lega yngri heila fyrir vikið. Breytingarnar hafa kosti og ókosti Í rannsókn frá árinu 2016 sem birtist í vísindatímaritinu Nature Neuroscience voru breytingar á heila kvenna frá því áður en þær urðu þungaðar og þar til eftir barnsburð sýndar. Þær breytingar virtust í beinum tengslum við hversu náin barninu móðirin var. Því nánari sem þau voru, því meiri breytingar á heilanum. Þessar breytingar vörðu í allt að tvö ár. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að það verði líka breytingar í heilum feðra, en þær virðast annars eðlis og ekki jafn miklar. Ýmsar rann- sóknir á dýrum hafa líka komist að þeirri niðurstöðu að ólétta hafi jákvæð áhrif á heilann. Geta heilans til að breytast getur haft bæði kosti og ókosti. Hún getur til dæmis gert fólk veikara fyrir breytingum í umhverfinu, eins og breyttu svefnmynstri eða félagstengslum. Í sumum mæðrum geta þessar breytingar, ásamt líf- fræðilegum breytingum heilans, aukið hættuna á andlegum erfið- leikum eins og fæðingarþunglyndi, sem virðist hafa áhrif á um um 10-15% mæðra. Rannsakendurnir eru nú að hefja rannsóknir á óléttum konum þar sem segulómskoðun fer fram fyrir getnað og á meðgöngu. Teknar verða nýjar myndir af heil- anum rétt eftir fæðingu og aftur tveimur árum síðar. Vonast er til að sú rannsókn veiti upplýsingar um áhrif meðgöngu á heila og geð- heilsu mæðra, bæði til skemmri og lengri tíma. Rannsóknin gefur vonandi líka nýjar upplýsingar um áhættuþætti og orsakir geðrænna vandamála sem tengjast barns- burði. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að það verði líka breytingar í heilum feðra, en þær virðast annars eðlis og ekki jafn miklar. 12 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.