Fréttablaðið - 28.12.2019, Side 49

Fréttablaðið - 28.12.2019, Side 49
Dr. Lilja Kjalarsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá SagaNatura, segir að þör­ ungar séu ofurfæði sem taka þátt í að framleiða stóran hluta súrefnis jarðarinnar. „Þörungar eru grunn­ framleiðendur og búa til næringar­ efni sem er undirstaða fyrir öll dýr á plánetunni,“ segir hún. „Við hjá SagaNatura fókusum mikið á þörunga og plöntur, sem við teljum að verði næsta stóra stökk í sambandi við fæðubótar­ efni og matvæli. Þörungar fram­ leiða efni sem kallast astaxanthin til að verja sjálfa sig. Þeir geta ekki hlaupið burtu undan áreiti þannig að þegar þeir lenda í óæskilegum aðstæðum eins og oxunarálagi, óþægilegu umhverfi eða of miklu af sól sem dæmi, þá framleiða þeir astaxanthin.“ Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni sem fyrirfinnst í náttúrunni. Hjá KeyNatura eru þörungar ræktaðir og hvattir til að framleiða mikið af astaxanthin. Þörungurinn er svo einangraður og þurrkaður og annaðhvort notaður sem duft í vörum fyrirtækisins eða olían, sem er mjög rík af astaxant­ hin, dregin úr honum og notuð í ýmis bætiefni. Allar vörur og vöruþróun byggja á vísindum „Yfir 2.000 rannsóknir á astax­ anth in sem hafa verið birtar í ritrýndum greinum sýna fram á að astaxanthin hefur svipuð áhrif á okkur og á þörunginn. Það þýðir að astaxanthin getur varið okkur fyrir umhverfisáhrifum, gegn oxun og gegn geislum sólarinnar. Við fáum þetta efni lánað frá þörungnum til þess að gera okkur heilbrigðari,“ útskýrir Lilja. Aukin orka, einbeiting og athygli með nýju AstaEnergy „Önnur af þessum nýju vörum sem við erum að koma með á markað, AstaEnergy, inniheldur allan þörunginn. Það er mjög eftirsóknarvert því þörungurinn framleiðir miklu fleiri góð efni en bara astaxanthin,“ segir Lilja. Páll Arnar Hauksson, vöruþró­ unarstjóri hjá SagaNatura, segir að AstaEnergy sé sérstaklega gott fyrir fólk sem vill hámarka andlega og líkamlega getu. „Auk astaxant­ hins inniheldur varan koffín úr guarana­fræjum, theanín, burnirót og B­vítamínblöndu. Þessi vara er frábær til að draga út þreytu og lúa og er góð fyrir ræktina,“ segir hann. „Í staðinn fyrir að drekka orku­ drykk fyrir æfingu þá er hægt að taka tvö hylki af AstaEnergy og taka svo bara vatnsbrúsa með á æfingu. Það sparar pening því AstaEnergy er ódýrara en að kaupa orkudrykk fyrir hverja æfingu,“ segir Lilja. „Koffín og the­ anín saman er mjög öflug blanda. Theanín mildar áhrif koffíns og minnkar koffín skjálftann, svo það er frábært að taka þessi tvö efni saman frekar en eingöngu koffín,“ bætir Páll við. SagaMemo inniheldur blöndu efna sem bæta minnið Önnur ný vara sem er að koma inn í KeyNatura vörulínuna er SagaMemo. „SagaMemo er hannað fyrir fólk sem vill bæta minni. Varan inniheldur imper atorin sem er unnið úr íslenskum hvannar­ fræjum. Rannsóknir okkar og ann­ arra benda til að þetta efni hafi góð áhrif á minnið. Varan inniheldur einnig bacopa monnieri og ginkgo biloba sem eru þekkt fyrir góð áhrif á einbeitingu og minni,“ segir Páll. AstaEnergy og SagaMemo eru nokkuð öðruvísi í útliti en aðrar KeyNatura vörur. Þær eru í Öflug bætiefni úr íslenskri náttúru SagaNatura kynnir nýjar vörur. AstaEnergy hámarkar andlega og líkamlega getu og SagaMemo bætir minnið. SagaNatura framleiðir gæðabætiefni úr smáþörungum undir merkinu KeyNatura. Lilja Kjalarsdóttir og Páll Arnar Hauksson hjá SagaNatura sýna nýju vörurnar sem væntanlegar eru frá fyrirtækinu í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SagaMemo er sérhannað fyrir fólk sem vill bæta einbeitingu og minni. AstaEnergy inniheldur allan þör­ unginn. Það er fullt af bætiefnum sem auka orku og hámarka getu. Fjöldi rannsókna sýnir að astax anth­ in ver okkur gegn umhverfisáhrifum, oxun og geislum sólarinnar. AstaLýsi hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir bragðgæði. svörtum umbúðum en ekki silfur­ lituðum en eru þó í sömu vörulínu. Auk nýju varanna er vert að minn­ ast á AstaLýsi sem fyrirtækið hefur verið með frá upphafi. Varan hefur verið betrumbætt, nú inniheldur yfir 40% meira omega3 í hverri teskeið en áður. „Þetta er mjög bragðgóð vara,“ segir Páll. „Hún hefur hlotið alþjóðlega bragðvið­ urkenningu frá International Taste Institue, þar sem fjöldi vínþjóna, kokka og matgæðinga blinds­ makkar vörur og metur bragðið af þeim með kerfisbundinni skyn­ matsaðferð,“ útskýrir Páll. Hagkvæmt og þægilegt að koma og vera í áskrift SagaNatura/KeyNatura býður upp á að fólk taki vörur hjá þeim í áskrift. Fólk getur farið inn á keynatura.is, skráð sig í áskrift og fengið 15% afslátt af allri vöru­ línunni. „Fólk fær áldós í fyrstu sendingu og í kjölfarið áfyllingar sendar heim í umslagi. Þetta ferli sparar umbúðir og er því jákvætt fyrir umhverfið. Fyrir þá sem nota vörurnar okkar reglubundið er áskrift hagkvæmasti kosturinn.“ KYNNINGARBLAÐ 19 L AU G A R DAG U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 HEILSA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.