Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 62

Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 62
Heimagerð kryddolía er mjög góð ofan á salatið. Það er einfalt að gera sína eigin kryddolíu. Það er hægt að gera chili-, hvítlauks, eða basilolíu sem er gott að nota með salati, pitsu eða til að bragðbæta fisk eða kjöt. Nota þarf vandaða og góða jómfrúarolíu. Góð ólífuolía Chili-pipar Hvítlauksbátar Krydd eins og kanill, stjörnuanís, basil eða annað. Skolið kryddjurtir og þerrið. Hvítlaukurinn er skorinn smátt. Chili-pipar má nota heilan. Setjið olíu í hreina f lösku og setjið hvít- lauk eða annað það krydd sem þið hafið valið ofan í. Best er að láta þetta standa í nokkra daga til að bragðið nái að brjóta sig. Það er auðvelt að gera kryddolíu og hægt að nota hugmyndaf lugið til að auka úrvalið. Til dæmis gera sítrónuolíu eða aðrar skemmti- legar bragðtegundir. Heimagerð kryddolía Mikilvægt er að kenna börnum góða tannumhirðu frá unga aldri. Mikilvægt er að börn læri að þeim líði vel með hreinar og heilbrigðar tennur. Mælt er með því að hreinsa tennurnar eftir mat og fyrir svefn, að lágmarki tvisvar á dag og tvær mínútur í senn. Nota skal tannkrem með mildu bragði og 1.000-1.500 ppm f lúorstyrk en f lúor herðir glerung tannanna og er því mikilvæg vörn gegn tann- skemmdum. Börn yngri en 10 ára þurfa aðstoð við tannburstun og sum þurfa aðstoð með tannþráðinn lengur. Byrja skal að bursta tennur barna þegar fyrsta tönnin kemur í ljós. Tannburstinn á að vera með þéttum, mjúkum hárum á nettum haus, með skafti sem passar í fullorðinshendi. Hreinsa skal með tannþræði einu sinni á dag. Yngstu börnin er best að hafa vel skorðuð í útaf liggjandi stöðu, til dæmis á skiptiborði eða í fangi foreldris. Burstið með litlum nuddhreyfingum, fram og aftur, utan og innan á tönnunum og bursta vel ofan í bitf letina. Ekki skola tannkremið af tönnunum, bara skyrpa svo f lúorinn virki lengur. Heimild: Embætti landlæknis Burstum saman til 10 ára aldurs Gott ráð til að auka hreyfingu er að nota stigann í stað þess að taka lyftu. Fyrir margt fólk er líkams-rækt eitthvað sem það gerir aukalega, ef það hefur lausan tíma. Það er miklu auðveldara að bæta reglulegri hreyfingu inn í líf sitt ef hreyfingin verður hluti af daglegri rútínu. Það tekur ekki nema um það bil einni mínútu meira að ganga upp tröpp- urnar upp á þriðju hæð en að taka lyftuna. Í vinnunni er hægt að hafa minna vatnsglas við höndina svo það þurfi oftar að standa upp og fylla á. Þá er sniðugt að venja sig á að ganga til vinnufélaganna til að koma skilaboðum áleiðis í stað þess að nota tölvupóst. Ef fólk passar upp á að hreyfa sig reglulega yfir daginn þá kemur það síður að sök þó fólk missi af einum og einum degi í ræktinni. Ráð til að auka hreyfingu Íþróttavöruverslun Sundaborg 1 Sími 553 0700 NÆG BÍLASTÆÐI VIÐ VERSLUN Fylgdu okkur á Öll helstu merkin á einum stað Opnunartími Virka daga 11-18 Laugardaga 11-16 32 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.