Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 74

Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 74
Hvað skyldi nú árið 2020 bera í skauti sér fyrir Konráð og félaga? Ætli þau muni komast í gegnum allar þrautir ársins? Konráð á ferð og flugi og félagar 284 En þú, kemst þú í gegnum völundarhús ársins? ? ? ? 2020 2019 Arnar Dagur Grétarsson er sex ára Garðbæingur sem byrjaði í skóla í haust en nýtur þess að vera í jólafríi núna, eins og önnur skólabörn. Finnst þér gaman að vera í skóla, Arnar Dagur? Já, mjög gaman, ég á góða vini í skólanum. Barnaskólinn á Vífilsstöðum er uppáhaldsskólinn minn. En hvað finnst þér best við jólin? Það er gaman að halda upp á jólin og vera í jólafríi með fjölskyldunni. Hvert er uppáhalds jólalagið þitt? Snjókorn falla. Hefurðu hitt einhverja jólasveina? Já, ég held ég hafi hitt alla nema Ket- krók. Hvað ætlar þú nú að gera um ára- mótin? Hafa gaman, sprengja flug- elda og fara á brennuna og líka borða góðan mat með fjölskyld- unni. Eina sem mér finnst vont við áramótin er að við mengum jörðina með flugeldunum. Góðan mat, segirðu. Hver er besti maturinn sem þú hefur smakkað? Nautakjöt og pulsur. Hvernig finnst þér skemmtileg- ast að leika? Eltinga- og feluleikir og leikir sem ég bý til sjálfur með vinum mínum. Líka leikur sem heitir Apajörð. Er einhver bók í uppáhaldi hjá þér? Það eru nokkrar góðar bækur, mér finnst skemmtilegt að lesa bækur eftir Ævar vísindamann, þar sem ég má velja hvað gerist næst, líka jólabækur og bækur eftir Stjörnu-Sævar, af því mér finnst vísindi skemmtileg. Manstu eftir einhverju skrýtnu eða skemmtilegu sem þú hefur lent í? Ég hef fengið skrýtin bréf frá jólasveinunum. Svo er lífið mitt allt bara skemmtilegt. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Vísindamaður, kannski læknir eða kennari.  Langar að verða vísindamaður  Arnar Dagur Grétarsson hefur fengið skrýtin bréf frá jólasveininum. Hann hefur hitt alla nema Ketkrók. Eltinga- og feluleikir og leikir sem ég bý til sjálfur með vinum mínum eru skemmtilegastir, segir Arnar Dagur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN EINA SEM MÉR FINNST VONT VIÐ ÁRAMÓTIN ER AÐ VIÐ MENGUM JÖRÐINA MEÐ FLUGELDUNUM. Máninn hátt á himni skín, hrímfölur og grár. Líf og tími líður, og liðið er nú ár. Bregðum blysum á loft, bleika lýsum grund. Glottir tungl og hrín við hrönn, og hratt flýr stund. Kyndla vora hefjum hátt, horfið kveðjum ár. Dátt vér dansinn stígum; dunar ísinn grár. Bregðum blysum… Nú syngjum við! n   Í Suður-Afríku henda sumir gömlum húsgögnum og tækjum út um gluggann á mið- nætti. n   Í Danmörku henda sumir gömlum diskum og glösum í hurðir heima hjá ættingjum sínum. n   Á Spáni borða margir 12 vínber á miðnætti þegar nýtt ár gengur í garð. n   Í Chile borða margir eina skeið af linsubaunum á miðnætti til að tryggja farsæld á nýju ári. n   Í Rússlandi fagna margir nýju ári með því að skrifa eina ósk á blað, kveikja í blaðinu, setja það ofan í kampavínsglas og drekka áður en klukkan slær eina mínútu yfir tólf. n   Í Brasilíu klæðast margir hvítum fötum á gaml- árskvöld. Um áramót  Máninn hátt á himni skín 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.