Fréttablaðið - 28.12.2019, Síða 79

Fréttablaðið - 28.12.2019, Síða 79
Burlesk-jólaenglar nir í f jöl l i s t a hó pnu m Dömur og herra koma fram á Gauknum á sunnudaginn, 29. des-ember, klukkan 21.00. Dömur og herra er kabaretthópur sem hefur verið starfandi í þrjú ár. Hópurinn sérhæfir sig í burlesk- listum og hefur gert garðinn frægan bæði hérlendis og erlendis enda eru meðlimir hópsins, tólf talsins, þar af einn herra, þrautreyndir í sviðs- framkomu og skemmtilegheitum. „Sýningin er samansafn af stutt- um atriðum. Þetta er ekki sam- felld leiksýning heldur meira eins og revía eða kabarett með dans- atriðum, grínatriðum og söng,“ segir Brynhildur Björnsdóttir sem er meðlimur í hópnum og semur söngtexta og syngur. „Kabarett- menning hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi undanfarin ár og er greinilega nokkuð sem Íslend- ingar eru greinilega tilbúnir að taka opnum örmum.“ Nektin ekki aðalatriði Hópurinn leggur mikið upp úr glæsilegum búningum. „Við erum með gríðarlega góða búninga- hönnuði og saumafólk í okkar hópi sem hannar og saumar á sig sjálft. Búningarnir skipta miklu máli en sýningin snýst fyrst og fremst um gleði, frelsi og líkamsvirðingu. Við erum fólk af ýmsum stærðum og gerðum, sem er meðal annars styrkur okkar,“ segir Brynhildur. Sýningin er ekki ætluð áhorf- endum undir 18 ára aldri. „Það eru engin of beldisatriði í sýning- unni. Bannið stafar af nektinni. Við fækkum fötum en erum samt ekki kviknakin,“ segir Brynhildur. „Meirihluti gesta á sýningum okkar er konur sem finnst gaman að sjá kvenlíkamann í óhátíðlegu ljósi. Við sýnum líkama sem eru raun- verulegir og erum að vinna með alls konar hluti sem konur þekkja og tengja við. Nektin er aldrei aðal- atriðið heldur aðferð til að túlka og tjá eitthvað annað.“ Finnskur gestur Sérstakur gestur á sýningunni er hinn finnski Niki Blomberg. „Hann er bæði magnaður og skemmti- legur,“ segir Brynhildur. „Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því sem hann gerir, það kemst næst því að vera eins konar dansgjörningur.“ Kynnir kvöldsins er Margrét Erla Maack. „Hún er frumkvöðull þess- arar senu hérna á Íslandi og í góðum tengslum við erlenda listamenn, sérstaklega í New York en líka í Skandinavíu. Á næsta ári verður hún með mánaðarlegar sýningar og þar verða erlendir listamenn meðal þátttakenda og við sem erum í Dömur og herra fáum að njóta góðs af því, en hluti af hópnum tekur þátt í sýningunni,“ segir Brynhildur. Gleði, frelsi og líkamsvirðing Fjöllistahópurinn Dömur og herra með sýningu á Gauknum. Finnskur gestur með dansgjörning. Sýningin bönnuð innan 18. Hópurinn leggur mikið upp úr glæsilegum búningum. MYND/YANSHU LI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is VIÐ SÝNUM LÍKAMA SEM ERU RAUNVERU- LEGIR OG ERUM AÐ VINNA MEÐ ALLS KONAR HLUTI SEM KONUR ÞEKKJA OG TENGJA VIÐ. Snæfellsbær | Klettsbúð 4 | 433 6900 | snb.is Kynning: Opið hús vegna breytingar á aðalskipulagi Snæfellsbæjar 2015 - 2031 Mánudaginn 6. janúar 2020 kl. 15:00-18:00 verður haldið opið hús í Ráðhúsi Snæfellsbæjar við Klettsbúð 4 á Hellissandi þar sem drög breytingar aðalskipulags Snæfellsbæjar vegna fyrirhugaðs golfvallar sunnan Rifs verða kynnt. Breytingin fellst í að óbyggðu svæði er breytt í íþróttasvæði (ÍÞ-3) þar sem fyrirhugaður golfvöllur mun verða. Breyting verður því á þéttbýlisuppdrætti Hellissands og Rifs. Íbúar og hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta og kynna sér skipulagshugmyndir strax á frumstigi. Eftir kynningu á opnu húsi verða skipulagsgögn lögð fyrir bæjarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagsbreytingar mun frestur til að gera athugasemdir vera að minnsta kosti 6 vikur. Davíð Viðarsson skipulags- og byggingarfulltrúi Þú færð Víg Þorvalds á næsta flugeldamarkaði björgunarsveitanna Samsett kaka sem skýtur beint upp með stigmagnandi hraða. Litaðar kúlur sem að skjótast upp og springa í rauð, græn og blá pálmablóm með silfruðu glitrandi leiftri. Rauðar, grænar og bláar stjörnur með gulllituðum brakandi pálmum sem brestur í. skot 85 SEK 5 5 15 98 kg D Á S A M L E G D E I L D S A M F É L A G S I N S 30 ÁRA 1989 2019 LOKAÐ UM HELGINA OPNUM NÆST 4. - 5. JANÚAR 2020 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 39L A U G A R D A G U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.