Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1981, Side 4

Hugur og hönd - 01.06.1981, Side 4
tvær sjaldgæfar finnskar bandgrindur Á sýningu, sem nefndist á sænsku „Rosband och plocka- band” og sett var upp í Norræna húsinu í desenrber 1979, mátti sjá ýmsar gerðir af munsturofnum böndum. Þau voru öll ofin í sérstæðum bandgtindum, sem notaðar hafa verið á ýmsum stöðum í Finnlandi. Þetta eru tvær gerðir af bandgrindum, sem eiga það sameiginlegt, að í þeim er hægt að aðskilja munsturþræði frá grunnþráðum, en það auðveldar nrjög úttalningu munsturs. Yngri gerðin hefur sérstakar styttri raufar fyrir munsturþræðina, eti grunnþræðirnir koma sinn hvoru megin við þá, til skiptis í langar raufar og göt og bindast í eins konar javabindingu, 1. rnynd. Munstrið byggist á skálínum. Munsturhlutar eins og tíglar, krossar, oddar og 1. MYND Bandgrind með styttri raufum fyrir 9 munsturþræði. Eign minjasafns Austurbotns í Vasa. hjörtu eru algetig, 2. nrynd. Þessi bandgrind hefur fyrst og frernst verið notuð í syðstu strandhéruðum Austurbotns, en hefur einttig verið til hér og hvar inn í landinu. Á Álandi hef ég heyrt hana nefnda „austurbotneska band- grindin'. Elstu bandgrindur okkar af þessari gerð eru frá fyrri hluta 19. aldar. Þær voru gerðar fyrir 7 og allt að 17 munsturþræði, hringlaga eða ferhyrndar og oft fagut iega útskornar og málaðar. Þá voru þær oftast tryggðapantar. Hin verðandi brúður frá Austurbotni óf sér gerðarlega aktauma fyrir brúðkaupið í stórum og sterklegum band- grindum af þessari gerð, oftast með 9 munsturþráðum. í þá var ofið nafn og ártal tueð rauðurn og gulum litum, en stundum bláu. grænu og fjólubláu. Það er harla undarlegt að notkun þessa verkfæris skuli að mestu hafa fallið í gleymsku, þegar tekið er tillit til þess, hve handhægt og auðvelt er að vinna með því. Enn þá minni vitneskja er til um eldri tegundina, band- grindur með tvöfaldri gataröð. Hún var notuð í strandhér- uðum Austurbotns og í skerjagarðinum fyrir utan, einnig á eyjunum fyrir utan Ábo og á Álandi. Margar merktar bandgrindur af þessari gerð eru frá 18. öld. Á sunrum er tvöföld gataröð yfir alla breiddina, á öðrum aðeins fyrir ákveðinn þráðafjölda á miðju, 3. mynd. Mjög lítið er til á minjasöfnum af böndum ofnurn í þessum bandgrindunr. Mér hefur þó lánast að fá nokkrar munnlegar heimildir unr bandvefnað nreð tveinr gataröðum. Tvenns konar munstur hafa r erið ofm nreð þessu tæki, 4. nrynd. 1 skerja- garðinum \ ið Ábo og á Álandi voru ofin bönd með einum grunnþræði milli munsturþráða. Munsturþræðirnir eru dregnir í efri gataröðina og grunnþræðirnir í raufarnar, en jaðarþræðir í neðri gataröð og raufar (einskeftubind- ing). Munstrið er byggt á þráðasamstæðum (2 eða 3 þráðurn), senr mytida lausaslöngur yftr 1, 3 eða 5 fyrir- drög. Fyrirdrögin liggja laus undir sömu þráðum og koma þar í ljós. Þessi munsturgerð hefur verið oftn í Svíþjóð (Sollerö) og kemur einnig fyrir sem jaðarmunstur á bönd- um frá Eystrasaltslöndunum. í hinni munsturgerðinni koma tveir grunnþræðir milli munsturþráða og bindast í einskeftu. Munsturþræðirnir eru dregnir í aðra gata- röðina, grunnþræðirnir í hina og raufarnar. Munstur af 4 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.