Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1981, Page 40

Hugur og hönd - 01.06.1981, Page 40
brot úr sögu litunar Árið 1972, |)cgar byrjað var á framkvæmdum við nýtt sjúkralu'is fyrir utan borgina Changsha í Hunan fylki í Kína, komu vcrkamcnn við grunngröft niður á forna gröf. Undir þykku lagi af mold, hvítum lcir og viðarkolum kom í Ijós stcrklcg trckista. Sú kista gcymdi fimm smærri kistur hvcrja innan í annarri og fjársjóði af haugfé af ýmsu tagi, auk haugbúans, tignarkonu, scm látist hafði á scxtugsaldri. Hún hvíldi í innstu og skrautlcgustu kistunni, vcl varðvcitt og svcipuð í tugi silkidúka; — Silki, fíngcrðu og lcttu eins og fiörildavængir. Þcssi forna gröf scm fræðimcnn tclja vcra frá árunum um 150 I Kr. sannaöi, svo ckki var um villst, snilli þcssarar gömlu mcnningarþjóðar í ýmsum listiðnaði og þá einkum og scr í lagi silkiiðnaði. Margir góðir gripir fundust í gröfinni, svo sem lökkuð kcr og skálar, útskornar og málaðar brúður, hljóðfæri, lcirkcr o.m.tl. En af ollu öðru bar silkið; — unnið snilldar- lcga tncð ýmsum aðfcrðum; — damask og brókaði, út- saumað, átnálað og slctt silki. Mesta gerscmin var fcikna stór silkifáni scm lá ofaná loki innstu kistunnar. 205 cnt langur og í laginu cins og gildur bókstafurinn T. Myndir af kynjadýrum, drckum, fuglum og mönnum, málaðar mjúkum og nákvæmum pensildráttum, segja sögu af himni, jörð og undirheimum og fáninn blikar og skín í skrautlegum litnm. Þantiig kunnu mcnn í Kína að vinna silki fyrir 2.100 árum. Oll gcrðin, litun, vefnaður, munstur og útfærsla mynda bcr \ iini x andaðri listiðn og háþróuðu handvcrki. Hcr er ekki tækifæri til að staldra við nema einn kafla í fjölbreyttri og umfangsmikilli sögu tcxtilgerðar. Ætlunin er að líta aðeins nánar á þátt litunarinnar. Saga litunar, upphaf hennar og framfarir að svo glæsi- legum árangri sem silkið frá Changsha sýnir, er sannarlega ekki altaf auðlesin. Textilvörur þola illa tímanns tönn ef reiknað er í árþúsundum og fundir sem eru jafn ríkir af upplýsingum um textiliðnað fyrri tíma og gröftn í Changs- ha eru afar sjaldgæftr. Af ýmsum athugunum á háttum frumstæðra þjóða, fornleifafundum og rituðum heimild- um má þó setja santan nokkur brot úr sögu litunar. Ætla má að tilraunir með litunarefni haft miðast við efni og aðstæður hverju sinni og takmarkast við tæknikunnáttu hverrar þjóðar eða þjóðarbrots fyrir sig. Fyrstu og frumstæðustu litunartilraunirnar hafa að öll- um líkindum verið tilraunir mcð ýmis jarðefni, svo sem ryðleir, okkur, mangan, postulínslcir cða kaólín, viðarkol og sót, efni sem blönduð voru fitu, blóði, vaxi eða þvagi sem bindiefni og núið á skinn eða annað sem tiltækt var. Síðar eða jafnframt komu til litunarefni úr jurtaríkinu, blóm, ávextir, lauf, rætur, fléttur, mosar og börkur: -slý og þörungagróður úr vötnum og pollum. Einnig koma vissar tegundir skordýra og skeldýra til sögunnar sem mikilvæg litunarefni. Efiir því sem menningu fleytti fram og skipulögð versl- unarviðskifti hófust milli þjóða, varð tilgangur og markmið litunarinnar ljósari og kröfurnar um gæði og fjölbreytni ákveðnari. Þjóðir skiftust jafnframt á þekkingu, reynslu og efnum til litunar. Litunarefnin voru reynd á vefnaðarvöru með tilliti til notagildis. Athugað var hve vel þau þoldu ljós, vatn, núning, hita og svita. Ymis efni svo sem sýrur, lútar, málmar og sölt voru reynd í þeim tilgangi að leysa upp liti, breyta þcim og festa sem varanlegast á ull, lín, hamp, bómull eða silki. Hvert efni krafðist sérstakrar með- höndlunar og litunaraðferða til þess að fullnægjandi ár- angur næðist. Þannig hafa markvissar tilraunir og í sumum tilfellum tilviljanir, lcitt menn á spor þeirra aðferða sem eru grund- völlur allrar litunar á textilvöru og þar nteð eitt af undir- stöðuatriðum texilframleiðslu um víða veröld til dagsins í cfag. -Aðferða sem notaðar voru eingöngu fram til ársins 1856, þegar fyrstu gervi- eða tilbúnu litirnir sjá dagsins ljós. Allar þær árþúsundir sem vitað er um textillitun, hafa í einhverri mynd, verið notaðar þær aðferðir sem \ið þekkjum í dag undir nafninujurtalitun. Telja má að jurtalitun hafi náð hámarki sem listiðnaður í Frakklandi á 18. ölcf. Litarefni voru þar til í miklu úrvali, ýmist innflutt eða innlend. Eftirspurn eftir dýrum og skrautlegum efnum var mikil. Aðalinn og hirðin í Versöl- um sá slyngum og vandvirkum vefurum og liturum fyrir nægum verkefnum. Liturum, sem settar voru ákveðnar reglur varðandi framleiðslu hinna ýmsa lita, var skift í tvo hópa. Svo nefnda fagurlitara „grand teint” og almenna litara „petit teint”. Strangar reglur giltu um notkun lit- unarefna, málmsalta, lúta og annars sem hverjum hóp um sig var heimilt að nota. Litarinn varð að stunda langt og 40 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.