Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1981, Síða 43

Hugur og hönd - 01.06.1981, Síða 43
AÐ LITA GULAN LIT MEÐ BEITIL YNGI (Calluna vujgaris) 100 gr ullarband 300 gr þurrkað beitilyng (450 gr nýtt bcitilyng) 18 gr alún (aluminii kalii sulfas) 10 gr vinsteinn (kalii bitartras) 5 1 vatn. Nota má glerjaðan pott, ál- eða stálpott. Bandið er undirbúið á sama hátt og fyrir mosalitunina. Beitilyngið er klippt niður og lagt í bleyti yfir nótt, síðan soðið næsta dag í eina til tvær klst., látið kólna niður í 40— 45 C° . Pá er lyngið síað frá litunarleginum. Alún og vín- steinn er leyst upp í snarpheitu vatni (nota má glerkrús og tré- eða glerpinna til að hræra með í upplausninni) og látið vel uppleyst í litunarlöginn. Bandið sem legið hefur smá- stund í volgu vatni er nú sett útí og hitað hægt upp í 85—90 C° og því hitastigi haldið í eina klst., meðan hreyft er varlega við bandinu af og til. Gott er að láta bandið kólna í litunarl- eginum og bíða yfir nótt áður en það er þvegið úr volgu sáp- uvatni og skolað. Liturinn verður þá sterkari og ljósþolnari. Litunarbaðið má nota aftur og er farið að eins og við fyrri litunina. Álún og vínsteinn notað í samræmi við garnþyngd og litað í minnst eina klst. Liturinn úr seinni litunarleginum verður nokkuð ljósari. AÐ LITA BRÚNAN UT MEÐ LITUNARMOSA (Parmelia saxatilis) 100 gr ullarband 400 — 500 gr litunarmosi 5 — 6-1 vatn 1 bolli cdik Nota má glerjaðan pott, ál- eða stálpott. Verksmiðjuum- bindingar eru fjarlægðar af bandhespunum og bundið aftur um þær lauslega með bómullargarni á þremur stöð- um. Bandið er síðan þvegið og skolað vel. Mosinn er mu- linn milli handanna lagður í bleyti yfir nótt og soðið uppá honum með edikinu næsta dag og látinn sjóða í tvær klst. Gott er að láta löginn bíða síðan enn eina nótt. Mosalögur- inn er þá hitaður upp í 40—45 C° og bandið sem legið hef- ur smástund í volgu vatni er sett út í og hitað hægt upp í 85—90 C° . Hreyft er varlega við bandinu öðru hverju á meðan því hitastigi er náð. Gæta verður vel að því að hreyfa ekki bandið svo óþrymilega í Iituninni að það þófni, sérstak- lega á þetta við í mosalituninni þar sem mosinn er ekki síaður frá litunarleginum. Lituninni er haldið áfram í minnst eina klst. Ef óskað er eftir dekkri lit er bandið hitað áfram í leginum þar til æskilegur litatónn er fenginn. Ef litaðar eru fleiri hespur er mosi, edik og vatn mælt upp og aukið í samræmi við garnþyngdina. Litunarílátið verður einnig að vera stærra. Mismunandi litastyrk má fá á hespurnar með því að taka þá fyrstu upp eftir u.þ.b. klukkutíma litun og síðan hinar hespurnar hverja af annarri eftir því sem liturinn gengur í þær. Hitastiginu 85—90 C° má halda í allt að fjórar klst. í senn. Seinustu hespurnar má láta liggja í litunarleginum yfir nótt og hita síðan hægt upp daginn eftir og lita þar til dekksti liturinn er fenginn. I þessari uppskrift þarf engin bindiefni að nota, aðeins mosann, vatn og edik sem hjálpar til að leysa litarefnið úr mosanum. Að litun lokinni er bandið þvegið úr volgu sápuvatni og skolað vel. Liturinn verður rauðbrúnn og bandið hefur sérstakan og sætan ilm lengi á eftir. Áslaug Sverrisdóttir 24. september 1981 hugur og hönd 43

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.