Hugur og hönd - 01.06.1990, Blaðsíða 10
og tóna litir í krossinum viö liti á gólf-
steini kirkjunnar. í þvertré kross eru
12 reitir í fjórum mismunandi rauð-
leitum litatónum, reitirnir eru aðskild-
ir með mjóum gylltum röndum. í
langtré eru 10 rendur einnig aðskild-
ar með mjóum gylltum röndum. Á
framhlið er fangamark Krists, gríski
stafurinn P ofinn í krossform en staf-
irnir XP eru fyrstu stafir í nafninu
Kristur á grísku. En á kirkjugripum
má stundum sjá X-inu snúið þannig
að það myndar kross eins og hér er
gert. Einnig eru í fangamarkið teikn-
aðir stafirnir A og W, alfa og omega,
fyrsti og síðasti stafurinn í gríska staf-
rófinu. Merkingin er „Kristur er upp-
haf og endir alls“. í hvítan grunn eru
ofin örsmá kornöx en það munstur
samdi Sigríður fyrir verkefnið og seg-
ir vera tilbrigði við vaðmál. í uppi-
stöðu er blanda spunnin saman úr
bómull og líni en í ívafi ull, lín og silki.
Hökullinn er ofinn á 10 sköft og 10
skammel í gagnbindingavefstól.
Hæð hökulsins er breiddin í vefstóln-
um. Undirbúningurinn í vefstofu fólst
í því að teikna mismunandi bindi-
munstur, finna viðeigandi efni og
reikna út efnismagn. Nokkrar mis-
munandi prufur voru síðan ofnar til
að finna grunnbindingu, athuga þétt-
leika og skreppingu. Að þessu loknu
var vefurinn settur upp og smátt og
smátt mátti sjá form og liti hlaðast í
uppistöðuna eftir því sem verkinu
miðaði áfram. Silki og gullþræði var
handbrugðið í fangamark á framhlið
og í þvertré kross á bakhlið. Upp-
bindingu skammela var breytt fyrir
langtré kross báðum megin, en lang-
tré var ofið með skyttu eins og grunn-
ur allur. Stóla fylgir með báðum hökl-
unum. Með hökli fyrir Hólakirkju er
stóla með sama grunnmunstri og
hökull en mjó gullrönd er yst eftir stól-
unni endilangri, gullkrossum er
handbrugðið neðst í stólu báðum
megin og þar fyrir neðan er rauðleitt
handunnið silkikögur.
í teikningunni að messuhökli fyrir
Laugarneskirkju var hreinn svipur
kirkjunnar og kyrrlátt andrúmsloft
haft að leiðarljósi. Á bakhlið eru þrjú
tákn, krossinn, vatnið og lífsins tré.
Þessi þrjú tákn eru teiknuð á einfald-
an hátt en á framhlið er einnig tré lífs-
ins og fangamark Krists með grísku
stöfunum A og W, táknum upphafs
og endis.
Undirbúningur í vefstofu var svip-
aður og fyrr, en nauðsynlegt var að
gera nokkuð margar prufur. Formin
virðast einföld, en útfærslan í vefinn
talsvert flókin. Bindingin er bindi-
þráðavefnaður án einskeftufyrir-
draga, þar sem grunnlitir í uppistöðu
eru tveir: grænn og gulur, en ívaf
grænt, gult og blátt. Það jafnvægi
þurfti að nást milli uppistöðu og ívafs
að litir kæmu sem skýrast fram. Sig-
ríður vildi freista þess að vefa allan
hökulinn í stigið skil, þ.e. stíga
munstrið allan tímann en hand-
bregða hvergi. Þetta var aðeins
hægt með því að færa höföld milli
skafta og breyta uppbindingum
mörgum sinnum í miðjum klíðum.
Þetta gekk snurðulaust en tók, eins
og gefur að skilja, sinn tíma. Þó má
gera ráð fyrir að handbrugðning
hefði orðið miklu tímafrekari. Stóla
fylgir höklinum og er ofið lífsins tré á
annan borðann en kross á hinn.
Báða höklana saumaði Vilborg
Stephensen, kjólameistari, og var
samstarf við hana traust og gott.
Áslaug Sverrisdóttir
Kennsluáætlun Heimilisiðnaðarskólans veturinn 1990-91
Haustönn 1990 Hraðnámskeið
Vefnaður I dagana 25. - 30.
1.-25. okt. nóv.
VefnaðurIV Þessa daga verður
1.-28.nóv. boðið upp á hrað-
Myndvefnaður námskeið í eftirfar-
2. okt.- 4. des. andi greinum: tó-
Tóvinna vinnu, útskurði, fata-
4. okt,- 8. nóv. saumi, dúkaprjóni,
Prjóntækni körfugerð og út-
3. okt,- 7. nóv. saumi. Kennsla
Bútasaumur, fram- verður daglega, ým-
haldsnámskeið ist á daginn eða
3. okt,- 24. okt. kvöldin. Nákvæm
Útskurður stundaskrá verður
2. okt,- 20. nóv. komin 25. septem-
Þjóðbúningasaum- ber. Innritun hefst þó
ur fyrir þann tíma eða
8. okt.- 26. nóv. strax 11. september.
Fatasaumur Á haustmisseri verð-
4. okt.- 22. nóv. ur skrifstofan opin
Útsaumur frá þriðjudegi til
1. nóv.- 22. nóv. föstudags klukkan
Dúkaprjón 9-11:30. Utan skrif-
3. nóv,- 8. des. stofutímaerhægt að
Körfugerð skilja eftir nafn og
7. nóv.- 28. nóv. símanúmer á sím-
Einföld pappírsgerð svaranum (17800),
15. - 18. nóv. þannig að skólinn geti haft samband síðar.
Vorönn 1991 Útsaumur
Vefnaður II 4. - 25. mars
4. - 28. febr. Silkimálun
Vefnaður III 2. - 30. apr.
4. mars - 2. apr. Tauþrykk I
Vefnaður I 4. febr. - 11. mars
1.-30. apr. Leðursmíði
Spjaldvefnaður 7. febr. - 28. febr.
6. - 27. febr. Útskurður
Fótvefnaður og 5. febr. - 26. mars
bandagerð Námskeið fyrir leið-
5. mars - 9. apr. beinendur aldraðra
Tóvinna 22. - 28. apr.
4. mars - 15. apr.
Jurtalitun Sumarnámskeið
6. mars - 24. apr. fyrir börn
Prjóntækni I. Hópur
7. febr. - 14. mars börn 7 - 10 ára
Fatasaumur 3. - 14. júní
4. - 28. febr. kl. 13 - 17
Dúkaprjón II. Hópur
3. apr. - 8. maí börn 9 - 12 ára
Þjóðbúningasaum- 18. - 28. júní
ur kl. 13 - 17
1. apr. - 2. maí III. Hópur
Baldýring börn 6 - 8 ára
5. febr. - 12. mars 1.-5. júlí
Knipl kl. 13 - 17
2. mars - 20. apr.
Bútasaumur II
6. - 27. febr.
10
HUGUR OG HÖND