Hugur og hönd - 01.06.1990, Blaðsíða 13
Övenjulegt vesti
í Ferjunesi í Flóa er þetta
skemmtilega vesti varðveitt.
Oddný Kristjánsdóttir, hús-
freyja þar, var svo vinsamleg að
segja ritstjórn Hugarog handar
frá því og bjóða uppskrift að því
til birtingar sem var þegið með
þökkum. Oddný sendi þessar
upplýsingar með vestinu:
Tengdafaöir minn, Eiríkur Guö-
mundsson (1861-1957), átti vestið.
1934, er ég flutti á heimili hans í
Ferjunesi, var vestiö enn spariflík og
sá mjög lítið á því þrátt fyrir margra
ára notkun. Sagöi hann mér aö vest-
iö væri vinargjöf frá góðri kunningja-
konu og þótti honum vænt um flíkina.
Þessi vinkona hans var Karitas Þor-
steinsdóttir, móöir Kjarvals og þeirra
systkina. Gunnar, sonur hennar, haföi
um árabil veriö sumardrengur hjá
Eiríki, og Jón Þorsteinsson, mállaus
bróöir Karitasar, átti heimili hjá Eiríki
þrettán síðustu æviárin.
Svo liöu árin, gamli maöurinn tók
vestiö til daglegrar notkunar og enn
sem fyrr var þaö falleg og notaleg
flík. Vasarnir geymdu trúlega sjálf-
skeiöunginn og tannstöngulinn. En
þaö fór ekki hjá því aö vestið léti á sjá.
Þaö slitnaði meö eigandanum sem
náöi aö veröa hálftíræður. Vestinu
var nú næstum öllu lokið eftir langa
og dygga þjónustu (er trúlega frá því
um 1912-13), en frábært handverkið
leyndi sér ekki þrátt fyrir slitið og er
vestiö varöveitt á heimili okkar.
Svo var þaö aö ég hófst handa og
prjónaði nákvæma eftirlíkingu af
gamlavestinu. Þaðduldistekki, þeg-
ar ég fór aö rýna í verkið, hve frábær-
lega vel er unnið og allt fellur í Ijúfa
löö hjá prjónakonunni. Hún hefur
sannarlega kunnaö sitt verk.
Skrifað í Ferjunesi, 29. ágúst 1990,
Oddný Kristjánsdóttir
1. Gamla vestið, nærmynd af hluta.
Ljósmynd: Áslaug Sverrisdóttir.
2. Vesti prjónað af Oddnýju Krist-
jánsdóttur.
Ljósmynd: Sigríður Halldórsdóttir.
HUGUR OG HÖND
13