Hugur og hönd - 01.06.1990, Side 41
Gamalt millipils
Þau voru ekkert híalín millipils gömlu
kvennanna, meöan þau voru og
hétu. En oft voru þau falleg og vel til
þeirra vandað þó ekki sæjust þau,
borin innan undir síöum, svörtum
pilsum.
Millipils þaö, sem hér er birt mynd
af, var í eigu Guðrúnar Gestsdóttur
(1858-1936) frá Forsæti í Flóa og er
talið víst að hún hafi sjálf unnið í það
og ofið.
Pilsbekkurinn að neðan er ofinn
með þráðabrekánsvend, þ.e. litir
hafðir í mjög þétt varpaðri uppistöðu
svo hvergi sér í ívaf (um 20 þr. á cm).
Uppistaðan erfínt, tvinnað band, all-
snarpt, í 7 litum. ívafið er dökkur
tvistur, 4-5 fyrirdrög á cm. Bekkurinn
er um 45 cm á breidd (hæð) og öll
víddin að neðan er 204 cm, saumuð
saman á einum stað.
Að ofan er heldur þynnra efni, rauð
einskefta ofin með rauðu, mjög fínu,
einföldu bandi í hvítan tvist. Breiddin
á þeirri voð er um 63 cm (ein alin) svo
að ríflega þrjár breiddir fara í efri
hluta pilsins, hver um sig um 25 cm,
felldar undir streng. Sídd millipilsins,
með streng að ofan og bryddingu að
neðan, er 75 cm. Skófóður er innan
á pilsinu neðanverðu og í stað falds
er brúnin br.ydd með svörtu hand-
ofnu bandi. Pilsið er að mestu ef ekki
öllu leyti handsaumað. Það er varð-
veitt að Ferjunesi í Flóa, þar sem
Guðrún átti heima um árabil.
Þess má geta til gamans að Guð-
rún Gestsdóttir var systir Valgerðar
Gestsdóttur sem heklaði fallegu
hyrnuna sem sagt var frá í Hug og
hönd 1987.
Sigríður Halldórsdóttir
1. Millipilsið, um eða yfir 100 ára
gamalt, gæti sem best verið nútíma
fat.
2. Nærmynd af pilsbekknum.
Ljósmyndir: Áslaug Sverrisdóttir.
HUGUR OG HÖND
41