Hugur og hönd - 01.06.2010, Blaðsíða 17
Sigrún Baldvinsdóttir
Lopasundskýlur
- fyrir hraustmenni sem stunda sjósund
Ljósmynd Vilhelm Gunnarsson
Nöfh sjósundskappanna jrd vinstri: Einar S. Kristinsson, Viðar B. Þorsteinsson, Guðmundur Breiðdal, Öskar
Jónasson, Eiríkur Hjartarson, Ólafur Þ. Magnússon, Sigurður V Smdrason og Carl D. Tulinius. Hópurinn
iðkar sjósund vikulega og klaðist eingöngu heimagerðum sundskýlum úr lopa.
Sjósund nýtur mikilla vinsælda um þessar
mundir. I Nauthólsvíkinni hittast sjósund-
skappar til þess að næra sál og líkama og
einnig til að hitta aðra með sama áhugamál.
Frændi minn, Sigurður V. Smárason, til-
heyrir einum sjósundshópnum en sá hópur
klæðist næstum eingöngu heimaprjónuðum
lopaskýlum í sundinu. Þeir segja að sund-
skýlur úr lopa séu þær bestu í ísköldum
sjónum enda er íslenska ullin hlýjasta fata-
efnið sem við eigum eins og við vitum. Þó
svo að ég sé vön prjónakona og hafi prjónað
mikið um dagana, bæði eftir uppskriftum
og beint frá hjartanu, féllust mér satt að
segja hendur þegar Sigurður bað mig um að
prjóna fýrir sig sundskýlu. Mér fannst þetta
verkefni þess eðlis að ég kæmist engan veg-
inn í gegnum það en þrátt fýrir óvissu í
upphafi reyndist verkefnið þegar á hólminn
var komið hið skemmtilegasta og spenn-
andi var að sjá hvað kæmi út úr því. Eg
byrjaði á því að athuga uppskriftir og þá
helst af ungbarnabuxum en sá fljótlega að
best væri að prjóna skýluna eftir venjulegu
buxnasniði (fatasniði) til þess að skrefsaum-
urinn yrði eðlilegur. Eg mældi eigandann
ekkert heldur lét augnmálið ráða. Buxurnar
urðu tvennar og prjónaði ég þær úr hespu-
lopa. Þær fýrri líktust boxer buxum og þó
svo að eigandinn væri mjög ánægður með
þær var ég ekki alveg sátt og prjónaði því
aðrar sem voru meira í takt við sundskýlu.
Buxurnar hafa reynst vel og eru í miklu
uppáhaldi hjá eigandanum.
Handprjónasamband íslands
Skólavörðustíg 19, Reykjavík • sími 552 1890 • www.handknit.is
Rennilásar • sími 554 3525 • gengið inn Klapparstígsmegin