Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 10
Fagið02/05
HEilbrigðisþjónusta Er í eðli sínu flókið fyrirbæri. Á hverjum
degi skarast margir ferlar og fjölmargir heilbrigðisstarfsmenn taka
þátt í því að tryggja sjúklingum bestu mögulegu þjónustu. Áskoranir
felast í því að fjármagn til heilbrigðismála er af skornum skammti,
mistök eiga sér stað og breytileiki í þjónustu er mikill. Alveg eins
og önnur þjónustufyrirtæki hafa heilbrigðisstofnanir leitað að
leiðum til þess að gera nauðsynlegar breytingar og bæta árangur
sinn. Straumlínustjórnun er gagnreynd stjórnunaraðferð sem hefur
skilað mörgum fyrirtækjum og stofnunum umtalsverðum árangri.
Uppruna hennar má rekja til bílaframleiðandans Toyota þar sem
lögð er áhersla á að framleiða aðeins það sem þörf er á, útrýma
sóun og stöðva framleiðslu ef eitthvað fer úrskeiðis. Aðferðafræði
straumlínustjórnunar hefur notið sívaxandi vinsælda innan heilbrigð-
isþjónustunnar undanfarin ár, fyrst vestanhafs en síðar í Bretlandi
og Norðurlöndunum. Landspítali hefur stuðst við þessa aðferðafræði
síðan haustið 2011, auk fjölda annarra fyrirtækja hér á landi.
Árangurstengdar umbætur
Í þessari grein er fjallað í stuttu máli um grundvallarþætti straumlínu-
stjórnunar og nefnd dæmi um hvernig hjúkrunarfræðingar geta
nýtt sér þessar aðferðir til að gera umbætur í heilbrigðisþjónustu.
Grundvallaratriði straumlínustjórnunar eru stöðugar umbætur. Það
felur í sér að allir starfsmenn leggjast á eitt til að bæta þjónustu
og gera störf og starfsaðstæður skilvirkari.
Vísindalegri nálgun (PDSA; plan, do, study, act)
er beitt sem felur í sér að vandamál eru greind,
settar eru fram áætlanir um hvernig megi gera
betur, þær eru innleiddar og árangur þeirra er
metin. Ef árangur er viðunandi eru umbæturnar
festar í sessi, ef ekki, er leitað nýrra úrlausna.
Annað grundvallaratriði straumlínu-
stjórnunar í heilbrigðisþjónustu er að það er
sjúklingurinn sem skilgreinir virði þjónustunnar,
og það sem heilbrigðisstarfsfólk gerir þarf að
vera virðisaukandi fyrir sjúklinginn. Þess vegna
er leitast við að útrýma og koma í veg fyrir
sóun. Sóun er allt sem skilar engu virði fyrir
mynd 1. Vísindaleg nálgun við
umbætur: Skipuleggja, útfæra,
skoða, framkvæma.