Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 55
FÉlagið03/06
heilsugæslustöðva, heimaþjónustu, sem og þjónustu hjúkrunarheimila
og bráðasjúkrahúsa. Öldrunarhjúkrun er því sú sérgrein hjúkrunar
sem mun vaxa hvað mest í náinni framtíð þar sem fjölgun aldraðra
mun kalla á aukna þjónustu í öllu heilbrigðiskerfinu.
Til að takast á við þessa þróun þarf að fjölga fagfólki sem sinna
öldruðum bæði þeim sem búa í heimahúsum og inni á hjúkrunar-
heimilum. Erlendar rannsóknir sýna að hlutfall fagmenntaðs starfs-
fólks skiptir máli varðandi gæði hjúkrunar og líðan einstaklinganna.
Aldraðir einstaklingar búa nú lengur í heimahúsum en áður og
koma því veikari inn á
hjúkrunarheimilin en
fyrir nokkrum árum.
Því fylgir þörf fyrir
sífellt flóknari og sér-
hæfðari hjúkrun. Þörf
fyrir hjúkrunarfræðinga
sem sérmennta sig í
öldrunarhjúkrun og
líknarmeðferð eykst
því stöðugt. Einnig
þarf að fjölga stöðum
sérfræðinga í öldrunar-
hjúkrun á næstu árum,
þar sem þeir eru klínískir leiðtogar á sínu sviði. Þeir sinna sérhæfðri
hjúkrunarmeðferð og veita samstarfsfólki, sjúklingum og aðstand-
endum ráðgjöf varðandi meðferð og lausnir til betri heilsu, ásamt því
að vinna að rannsóknum og innleiðingu gagnreyndrar þekkingar í
öldrunarhjúkrun.
Það er því mikilvægt að þeir sem stýra heilbrigðisþjónustunni
geri sér grein fyrir hversu mikilvægt er að efla hjúkrun aldraðra.
Nauðsynlegt er að yfirvöld komi með skýra stefnu í málefnum
aldraðra og skilgreini þá þjónustu sem veita skal í framtíðinni. Til
að tryggja öldruðum þá þjónustu sem þeir þarfnast er nauðsynlegt
að gerðir verði kostnaðargreindir þjónustusamningar við allar þær
stofnanir sem sinna öldruðum. Í þjónustusamningi skal kveða skýrt á
um hvers konar þjónustu skuli veita, magn hjúkrunarþjónustunnar og
gæði, hver aðbúnaðurinn skuli vera, gæðastaðlar skilgreindir og hvert
Í rÁðGjAFAHÓpNUM SÁtU EFtir-
tALdir HjÚkrUNArFræðiNGAr:
n Erla Einarsdóttir, for-
stöðumaður, Drafnarhúss
dagþjálfun,
n Eva K. Hreinsdóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur,
Heilsugæslunni Hlíðum,
n Guðlaug Guðmundsdóttir,
aðstoðardeildarstjóri,
göngudeild L1, Landakoti,
flæðisviði LSH,
n Ingibjörg Hjaltadóttir,
sérfræðingur í hjúkrun á
flæðisviði LSH,
n Júlíana Sigurveig
Guðjónsdóttir, hjúkr-
unarstjóri, Sóltúni
hjúkrunarheimili,
n Sigrún Faulk, hjúkr-
unarforstjóri, Grund
hjúkrunarheimili,
n Þórdís Magnúsdóttir,
forstöðumaður hjúkrunar,
Heimaþjónustu Reykjavíkur.