Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 17
Fólkið03/04 við sitja og hótuðu uppsögn ef þessu fyrirkomulagi yrði ekki breytt, og í kjölfarið voru tveir hjúkrunarfræðingar saman á næturvakt. „Við segjum því gjarnan við ungu stelpurnar, eða hjúkrunarfræðingana, sem eru að kvarta í dag yfir þremur eða fjórum næturvöktum bara að slaka á.“ Ekki spáð frama í hjúkrun Lilja byrjaði að læra hjúkrun 1967 og hóf starfsferil sinn á 4B sem þá var handlækningadeild karla. Árið 1974 fór hún yfir á 4A handlækn- ingadeild, sem þá var orðin blönduð deild og tekið á móti sjúklingum sem höfðu orðið fyrir bruna, og var þar til 1981. Þaðan fór hún yfir á 13D þvagfæradeild en hún hefur lengst af unnið á lýta- og brunadeild, eða frá árinu 1989. „Ég hef alltaf hallast að brunanum eins og þeir eru nú erfiðir. Það hefur höfðað til mín þrátt fyrir að þeir séu erfiðir viðureignar. Þetta er erfið vinna en hún gefur mikið, bæði frá samstarfsfólki, sjúklingum og ættingjum.“ Þrátt fyrir að Lilja hafi lagt fyrir sig umönnun brunasjúklinga, sem er mikil þolinmæðisvinna og liggur ekki fyrir öllum, hafði henni nú ekki verið spáð frama í hjúkrunarstarfinu. „Frænka mín reyndist ekki forspá þegar hún sagði við mig sex ára gamla eftir að liðið hafði yfir mig á sjúkrahúsinu á Siglufirði út af megnri eterlykt, að það yrði næsta víst að ég yrði aldrei hjúkrunarkona,“ rifjar Lilja upp. „En enginn veit sína ævi fyrr en öll er.“ General Hospital var örlagavaldur Lilju hafði ekki órað fyrir að leggja fyrir sig hjúkrun þegar hún fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna árið 1965, þá nýbúin að sækja umsóknareyðublað í leikskóla- kennaranám. Á þeim tíma voru út- sendingar sjónvarps ekki hafnar hér á landi, fyrir utan Kanasjónvarpið sem Lilja hafði ekki aðgang að enda búsett á Siglufirði. „Ég var oft ein á daginn eftir skóla en hjónin sem ég bjó hjá áttu engin börn. Settist ég því fyrir framan sjónvarpið og fyrr en varði stóð ég mig að því að horfa hugfangin á spítalaþáttinn General Hospital. Ég man þáttinn „Ég hugsaði með mér að þetta væri það sem ég vildi læra. Það fyrsta sem ég gerði var að sækja um í hjúkrunar- skólann þegar heim kom.“

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.