Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 29
Fagið02/09 Í gegnum aldirnar hafa menn háð harða baráttu við örverur sem valdið hafa sýkingum og sjúkdómum. Miklu hefur verið áorkað í þessari baráttu með bólusetningum, sýklalyfjum og bættum aðbúnaði fólks. Uppgötvun sýklalyfja í upphafi 20. aldarinnar er eitt mesta afrek vísindalegrar læknisfræði. Með tilkomu penisillíns 1940, og annarra sýklalyfja sem komu í kjölfarið, kviknaði von um að hægt væri að lækna og jafnvel útrýma mörgum af hættulegustu sjúkdómum heimsins. FljótlEga EFtir að notkun sýklalyfja hófst komu fram ónæmir stofnar baktería (Landlæknisembættið, e.d.). Alexander Fleming, sem uppgötvaði penicillinið, varaði strax við ónæmi í nóbelsræðu sinni árið 1945 þar sem hann sagði að auðvelt væri að gera bakteríur ónæmar fyrir penicillini á rannsóknarstofum með því að útsetja þær fyrir lyfinu í styrkleika sem ekki dugir til að drepa þær (Fleming, 1945). Einn af áhrifamestu þáttunum í myndun og dreifingu sýklalyfja- ónæmis er hvernig sýklalyfin eru notuð. Röng eða of mikil notkun sýklalyfja eykur hættu á sýklalyfjaónæmi. Sala á sýklalyfjum án lyfseðils, meðhöndlun veirupesta með sýklalyfjum, ónauðsynleg notkun á breiðvirkum sýklalyfjum og notkun sýklalyfja í landbúnaði, eru allt þættir sem stuðla að útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Lélegar sýkingavarnir, slæmur aðbúnaður og röng meðhöndlun matvæla hafa einnig áhrif á dreifingu ónæmra baktería (Landlæknisembættið, e.d. a; ECDC, 2015; WHO, 2014). Af hverju að hafa áhyggjur? Í apríl 2014 varaði Alþjóðaheilbrigðisstofnunin við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis með þessum orðum: „Þessi alvarlega ógn er ekki lengur framtíðarspá, þetta er að gerast núna alls staðar í heiminum og getur haft áhrif á alla, á hvaða aldri sem er, í hvaða landi sem er. Sýklalyfjaónæmi, þegar baktería breytist þannig að sýklalyf virka ekki lengur á fólk sem þarf meðhöndlun vegna sýkinga, er nú gríðarleg ógn við lýðheilsu“ (WHO, 2014). Án áhrifaríkra sýklalyfja getum við horfið aftur til þess tíma þegar sýklalyfin voru ekki til. Þá er nánast óhugsandi að gera stórar aðgerð- ir og líffæraígræðslur eða meðhöndla fólk með krabbameinslyfjum svo fátt eitt sé nefnt. Afleiðingar sýklalyfjaónæmis eru ýmsar, lengri

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.