Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 42
Fólkið05/06
skemmtileg vinnustemning. Manneldisráð var á sama stað, slysavarn-
ir barna og heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. Þá var verið að ræða
um stofnun Lýðheilsustöðvar og að sameina þessar litlu stofnanir. Mér
fannst það skynsamleg ráðstöfun þó að niðurstaðan yrði önnur en ég
sá fyrir.“ Þorgerður starfaði þó aldrei innan Lýðheilsustöðvar. „Þegar
Lýðheilsustöð var stofnuð sóttist ég
eftir ákveðnu starfi en fékk það ekki
og langaði ekki að halda áfram sem
verkefnisstjóri vímuvarna og valdi að
hætta. Þaðan lá leiðin til Sjónarhóls,
ráðgjafamiðstöðvar fyrir foreldra barna
með sérþarfir um tíma. Þar starfaði
ég sem framkvæmastjóri og kynntist
starfi þessara frábæru félagasamtaka í
kringum veik börn og börn með fötlun
og þroskahömlun. Þetta er ókeypis
þjónusta og mikilvæg fyrir fjölskyldur
þessara barna. Margir hafa fengið þar
mjög góðan stuðning við að breyta einhverju til þess að fjölskyldan
virki betur og aðstæður barnsins batni,“ segir hún.
Eftir þrjú ár hjá Sjónarhóli og að afloknu öðru meistaraprófi í
opinberri stjórnsýslu færði Þorgerður sig enn um set til að annast
kynningarmál hjá Tryggingastofnun. „Það skiptir máli að miðla upp-
lýsingum um réttindi almannatrygginga til almennings og ég er stolt
af að hafa tekið þátt í að gera þær aðgengilegri og betri en þær voru,“
segir Þorgerður. Á þeim tíma sem hún var hjá Tryggingastofnun voru
gerðar nokkrar skipulagsbreytingar með tilheyrandi breytingum á
starfssviði hennar. „Eftir ár tók ég að mér framkvæmdastjórastarf á
nýju sviði kringum þjónustu- og kynningarmál sem síðar var nefnt
samskiptasvið. Eftir sjö ár hjá Tryggingastofnun var ég búin að fá
nóg, enda starfið mjög erilsamt. Kannski er ég bara svona, ég þarf
að skipta reglulega um starf, er lítið fyrir endurtekningar en finnst
skemmtilegt að takast á við ný verkefni. Reyndar get ég sagt að í
öllum þeim störfum sem ég hef gegnt hefur hjúkrunarmenntunin nýst
mér vel. Stundum hefur fólk með annan bakgrunn rekið upp stór
augu á fundum þegar ég hef bent þeim á að hægt sé að leysa við-
fangsefnið með hjúkrun. Fólk botnar náttúrlega ekkert í því, sér bara
„Það skiptir máli að
miðla upplýsingum
um réttindi almanna-
trygginga til almenn-
ings og ég er stolt af
að hafa tekið þátt í að
gera þær aðgengilegri
og betri en þær voru.“