Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 47
Fagið02/03 væri að lýsa myndrænt líðan einstaklings með þunglyndi, þá væri það nákvæmlega svona. Með þungar byrðar, að kikna undan álagi, sjá ekkert framundan nema gráa þoku og kalda rigningu og geta ekki með nokkru móti gert sér í hugarlund hvert ferðinni er heitið. Eða hvort ferðin sé í rauninni fyrirheit um nokkuð. Mér kom þessi minning til hugar þegar ég las bók Matthew Johnstone, Ég átti svartan hund. Höfundur segist sjálfur ekki vera sérfræðingur í nokkru er varðar geðheilbrigði, heldur felist aðkoma hans að efninu í því að eiga að baki þá erfiðu reynslu að hafa þjáðst af þunglyndi, sem hann kallar Svarta hundinn. En líkt og kemur fram í ágætum inngangi Hrannars Jónssonar, formanns Geðhjálpar, var það Winston Churchill, fyrrum forsætisráðherra Breta, sem skilgreindi fyrstur baráttu við þunglyndi sem baráttuna við svartan hund. Það er fallegur stígandi í söguþræði bókarinnar sem er sögð í fyrstu persónu. Sagan hefst þegar söguhetjan er um tvítugt og lýsir lífsvegi hennar í samfylgd Svarta hundsins; hvernig Svarti hundurinn hefur áhrif á allt daglegt líf og fær hann til að beinlínis sjá lífið með augum hans. Hann dregur fram hvernig Svarti hundurinn hefur áhrif á færni hans til samskipta við sína nánustu þegar Svarti hundurinn hefur komið sér vel fyrir í miðju hjónarúminu á milli söguhetjunnar og eiginkonu hans. Einnig er áhrifarík teikning af söguhetjunni sem hefur verið fryst inni í klaka með Svarta hundinn á vappi í kringum sig. Með því er höfundur að lýsa því hvernig sambúðin með Svarta hundinum rænir hann tilfinningum. Eftir því sem líður á söguna fer Svarti hundurinn að taka meira rými í lífi söguhetjunnar, sem fer að beita ógagnlegum ráðum til að deyfa sársaukann sem vanlíðanin kveikir. Þetta hefur einungis þær afleiðingar að sá Svarti verður enn fyrirferðameiri og íþyngjandi og endar með því að söguhetjan og Svarti hundurinn verða að einu. Þá fyrst sækir söguhetjan sér faglega aðstoð og fær greiningu. Í seinni hluta sögunnar lýsir höf- undur hversu jákvæð og heilandi áhrif það getur haft að viðurkenna sjúkdóminn, tala um hann, vera meðferðarheldinn og að sækja sér stuðning hjá öðrum sem einnig hafa sama hund samferða í lífinu. Sögunni lýkur á því að söguhetjan hefur sæst við samfylgdina með Svarta hundinum og hefur auk þess fundið sér hjálplegar aðferðir til að njóta lífsins; hreyfa sig, stunda jóga og útiveru, skrifa dagbók og hugleiða þrátt fyrir að sá Svarti verði alltaf hluti af lífinu: „... ég

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.