Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 71
FÉlagið03/06
stendur af greiðslum sem vinnuveitandi greiðir inn fyrir hann eftir
að dreginn hefur verið frá kostnaður vegna sjúkradagpeninga,
fæðingarstyrks og útfararstyrks.
Ákveðið var af stjórn sjóðsins að fara leið þrjú og var hún sam-
þykkt af stjórn félagsins 31. mars 2015. Meginrökin fyrir því að fara
þá leið var að með henni fær hver félagsmaður greitt til baka í réttu
hlutfalli við inngreiðslu vinnuveitanda fyrir hans hönd inn í sjóðinn.
Leitað var eftir ráðleggingum frá Ríkisskattstjóra um hvernig þessi
leið væri best framkvæmanleg. Ráðleggingar Ríkisskattstjóra voru á
þá leið að ekki má hafa fyrirkomulag þannig að upphæð sé greidd út
nema dreginn sé af skattur og félagsmaður telji fram kostnað á móti
á skattframtali. Þar gildi reglur um skattmat. Einungis má greiða út
skattfrjálsan líkamsræktarstyrk gegn framvísun kvittunar. Hins vegar
má greiða styrkinn út með því að draga af staðgreiðslu. Félagsmaður
má síðan draga frá kostnað vegna líkamsræktar á móti á skattframtali
og fá þá til baka ofgreidda staðgreiðslu. Í skattmati segir: „Ekki skal
telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir
atvikum stéttarfélagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við
íþróttaiðkun og aðra heilsurækt að því marki sem slík greiðsla fer ekki
yfir 55.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og
óvefengjanlega reikninga fyrir greiðslu á viðkomandi kostnaði. Með
kostnaði við íþróttaiðkun og heilsurækt er átt við greiðslu á aðgangi
að líkamsræktarstöðvum, sundlaugum og skíðasvæðum, greiðslu á
æfingagjöldum í íþróttasali og félagsgjöldum í golfklúbba sem og
þátttökugjöld vegna annarrar hreyfingar sem stunduð er með reglu-
bundnum hætti. Einnig fellur hér undir kostnaður við aðra heilsurækt
eins og t.d. jóga.“