Bændablaðið - 25.02.2016, Síða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist í vor við stækk-
un Búrfellsvirkjunar og að þær
standi yfir til miðs árs 2018.
„Það er mjög ánægjulegt að mínu
mati að framkvæmdir við Búrfell 2
skuli vera í þann veginn að hefj-
ast. Það er búið að liggja fyrir um
nokkurt skeið að farið verði í þetta
verkefni. Raunverulega var það
fyrir 35 árum eða svo sem fyrstu
tilburðir til þessara framkvæmda
hófust. En það var svo ákveðið að
setja aðrar virkjanir framar í röðina.
Aðstæður eru í raun afar hagstæð-
ar. Lónið er til staðar og rask sem
fylgir virkjuninni verður tiltölulega
lítið. Kostnaður er mér sagt að verði
13–15 milljarðar.
Ef við setjum það í samhengi við
Búðarháls þar sem kostnaður var
um 28 milljarðar og framleiðslu-
geta 90 megawött (MW) á móti 100
MW í Búrfelli 2,“ segir Kristófer
Tómasson, sveitarstjóri Skeiða- og
Gnúpverjahrepps.
Sveitarfélagið hefur samþykkt
framkvæmdaleyfi virkjunarinnar.
Ráðgert er að gangsetja stækkunina
í aprílmánuði 2018. Um 150 manns
munu fá vinnu við byggingu virkj-
unarinnar.
Fasteignagjöldin til
sveitarfélagsins
Kristófer segir að íbúar sveitarfé-
lagsins verði örugglega varir við
framkvæmdirnar þegar þær fara af
stað.
„Já, þetta mun þýða talsverða
umferð um sveitarfélagið meðan
á framkvæmdum stendur og við
reiknum með að heimamönnum,
ekki síður en öðru fólki, muni standa
til boða störf við framkvæmdirn-
ar. Framtíðarstörfum við Búrfell
mun þó ekki fjölga að neinu ráði.
Varla nema tvö til þrjú ársverk.
Sveitarfélagið mun fá fasteignagjöld
af stöðvarhúsi virkjunarinnar, vissu-
lega munar um það,“ segir hann.
− En er almenn sátt um stækk-
unina í sveitarfélaginu?
„Já, ég met það svo að full sátt
sé um framkvæmdina meðal íbúa
sveitarfélagsins. Ég hef ekki heyrt
nokkurn einasta íbúa lýsa van-
þóknun á að virkjunin verði byggð.
En auðvitað get ég ekki útilokað að
leynst geti fólk sem ekki er sátt við
framkvæmdina.“
Lítið áberandi mannvirki
„Um 14% af rennslisorku við
Búrfellsstöð, eða sem nemur um 410
GWst, renna að jafnaði ónýtt fram
hjá stöðinni á hverju ári. Stækkuð
Búrfellsvirkjun mun bæta nýtingu
á því rennsli. Er það í samræmi við
hlutverk fyrirtækisins að hámarka
afrakstur af þeim orkulindum sem
fyrirtækinu er trúað fyrir með sjálf-
bæra nýtingu, verðmætasköpun og
hagkvæmni að leiðarljósi,“ segir
Ívar Páll Jónsson, sérfræðingur á
samskiptasviði Landsvirkjunar.
Auk þess segir hann að lögð verði
áhersla á að mannvirki verði sem
minnst áberandi.
Mest áberandi mannvirkin verða
aðrennslisskurður, frárennslisskurð-
ur og inntaksmannvirki virkjunar-
innar.
„Stöðvarhúsið verður stað-
sett neðanjarðar í Sámsstaðaklifi.
Landsvirkjun mun tryggja aðgengi
að útivistarsvæðum í nágrenni
Búrfellsstöðvar. Enn fremur er ætl-
unin að skoða möguleika á að tengja
þau svæði við upplýsingamiðstöðv-
ar í Þjórsárdal,“ bætir Ívar Páll við.
Áformað er að uppsett afl nýrr-
ar stöðvar verði 100 MW með
einni vél, en gert er ráð fyrir að
síðar verði hægt að stækka stöðina
um allt að 40 MW. Með stækkun
Búrfellsvirkjunar má auka orku-
getu raforkukerfisins um allt að 300
Gígawattstundir (GWst) á ári.
/MHH
Skeiða- og Gnúpverjahreppur:
Fimmtán milljarðar fara í
stækkun Búrfellsvirkjunar
Veittir eru styrkir úr jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga til að
leggja vatnsveitu að einstökum
bæjum í dreifbýli samkvæmt
reglugerð nr. 973/2000 með
síðari breytingum.
Rafrænar umsóknir skal fylla
út á Bændatorginu eigi síðar en
1. mars 2016. Með umsókn skal
fylgja staðfest kostnaðar- og
framkvæmdaáætlun.
Rafrænt umsóknarform
og reglugerð er að finna á
Bændatorginu. Aðeins er tekið
á móti rafrænum umsóknum í
gegnum Bændatorgið.
Styrkir til frumbýlinga í
sauðfjárrækt
Hér með er auglýst eftir umsókn-
um um styrki til frumbýlinga í
sauðfjárrækt samkvæmt ákvæð-
um núgildandi sauðfjársamnings
og reglugerð nr. 1221/2015,
VIÐAUKA IV, Verklagsreglur
um úthlutun bústofnskaupa-
styrkja til frumbýlinga.
Rafrænar umsóknir skal fylla
út á Bændatorginu eigi síðar en 1.
mars 2016. Rafrænt umsóknar-
form og reglugerð er að finna á
Bændatorginu. Aðeins er tekið
á móti umsóknum í gegnum
Bændatorgið.
Lýsingarbúnaður í
gróðurhúsum
Veittir eru styrkir til uppsetn-
ingar á lýsingarbúnaði sam-
kvæmt aðlögunarsamningi um
starfsskilyrði framleiðenda
garðyrkjuafurða og reglugerð
nr. 1222/2015, VIÐAUKA I,
Verklagsreglur um úthlutun
styrkja vegna uppsetningar á
lýsingarbúnaði.
Rafrænar umsóknir skal fylla
út á Bændatorginu eigi síðar en 1.
mars 2016. Rafrænt umsóknar-
form og reglugerð er að finna á
Bændatorginu. Aðeins er tekið
á móti rafrænum umsóknum í
gegnum Bændatorgið.
Gæðastýring í sauðfjárrækt
Í byrjun janúar fengu þeir sauð-
fjárbændur sem eru þátttakend-
ur í gæðastýrðri sauðfjárfram-
leiðslu, en höfðu ekki gengið
frá skýrsluhaldsskilum í Fjárvísi
vegna skýrsluhaldsársins 2015,
bréf frá Matvælastofnun þar
sem vakin var athygli á því að
samkvæmt reglugerð um gæða-
stýringu þá falla þeir út úr gæða-
stýringu sem skila ekki skýrslu-
haldi fyrir tilsettan tíma. Rétt
er að vekja athygli á því að það
nægir að ganga frá haustskilum
í Fjárvísi (sjá forsíðu Fjárvísar).
Nú fer að líða að því að
Matvælastofnun, búnaðar-
málaskrifstofa, fer í það verk
að ganga frá fyrirframgreiðslu
gæðastýringarálags til bænda,
en greiðsluna skal inna af hendi
í mars. Greiðslukerfi landbún-
aðarins, AFURÐ, skoðar þá
sjálfkrafa hvort skilyrði um skil
á skýrsluhaldi séu fullnægjandi
í Fjárvísi.
Uppfærsla landbótaáætlunar
Matvælastofnun vekur athygli
bænda sem taka þátt í gæða-
stýrðri sauðfjárframleiðslu á
að frestur til að uppfæra land-
bótaáætlanir er til 1. mars nk.
sbr. bráðabirgðaákvæði í reglu-
gerð nr. 536/2015 um gæða-
stýrða sauðfjárframleiðslu.
Landbótaáætlun skv. 15. gr. skal
gera fyrir beitiland sem uppfyllir
ekki kröfur samkvæmt viðauka
I í reglugerð nr. 1160/2013.
Framleiðandi sem ekki uppfyllir
skilyrði reglugerðar um landnýt-
ingu og ástand lands í landbóta-
áætlun uppfyllir ekki skilyrði
um gæðastýrða sauðfjárfram-
leiðslu sbr. 16. gr. reglugerðar
nr. 536/2015.
Bændum er bent á að hægt er
að leita aðstoðar Landgræðslu
ríkisins við gerð landbótaáætlana
og eru bændur hvattir til að setja
sig í samband við héraðsfulltrúa
hennar, óski þeir aðstoðar eða
nánari upplýsinga vegna þessa.
Greiðslumark í mjólk og
sauðfé
Bændur geta nú séð greiðslu-
mark ársins í mjólk og sauð-
fé á Bændatorginu í liðnum
Bú-yfirlit (hægra megin á síð-
unni fyrir miðju).
Búnaðarmálaskrifstofa:
Stuðningsgreiðslur
...frá heilbrigði til hollustu
Búrfellsstöð. Mynd / HKr.
Kristófer Tómasson sveitarstjóri.
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
GOTT ÚRVAL - HAGSTÆTT VERÐ
BEISLISHLUTIR - REKSTRARVÖRUR
Sjá nánar í vefverslun okkar á VBL.is undir beislishlutir
Búrfell og Þjófafoss í Þjórsá. Búrfellsstöð er í hlíð Búrfellsins að vestanverðu. Mynd / HKr.
ofan við Búrfell. Mynd / HKr.