Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Keli vert hefur rekið Gistihúsið Langaholt í Staðarsveit á Snæfellsnesi í tíu ár:
Ég lærði þar af mömmu, besta kokki í heimi
− Verið að fjölga herbergjum í takt við þróun ferðamennskunnar á landsbyggðinni
Keli vert, eða Þorkell Sigurmon
Símonarson eins og maðurinn
heitir fullu nafni, hefur rekið
veitingarekstur og gistiaðstöðu
á Langaholti á Snæfellsnesi
um árabil. Hann stendur nú í
nýbyggingu á staðnum þar sem
hann hyggst fjölga herbergjum
um 20.
Flestir þekkja manninn undir
nafninu Keli vert. Hann er líka
þekktur fyrir að fara sínar eigin
leiðir í þessum rekstri sem foreldrar
hans hófu fyrir 38 árum. Þá voru þau
frumkvöðlar í ferðaþjónustu í sveit
sem mjög takmarkaður skilningur
var þá á.
Keli er líklega í hugum flestra
þekktur sem listakokkur sem gjarn-
an fer óhefðbundnar leiðir í sinni
eldamennsku. Þegar blaðamann
Bændablaðsins bar að garði laugar-
daginn 20. febrúar, var hann að
halda skírnarveislu fyrir barnabarn
sitt. Hann lét það þó ekki trufla sig
við að segja nokkur orð við komu-
mann.
Ferðaþjónustubrölt foreldranna
þótti algjört rugl
„Hér er ég fæddur og uppalinn og er
búinn að reka starfsemina hér í tíu
ár,“ segir Keli.
„Foreldrar mínir byrjuðu í þess-
um túristabransa 1978 og voru þá
í frumkvöðlahreyfingu sem þá fór
af stað. Þá var ákveðin vakning í
ferðaþjónustu úti á landi. Áður fyrr
voru það bara gömlu sveitahótelin
og tjaldstæði og nánast ekkert þar
á milli. Þá voru hótel á Laugavatni,
Búðum, Bjarkalundi og á nokkrum
öðrum stöðum. Upp úr 1980 fór fólk
að sjá möguleika á að gera meira úr
þessu og bjóða upp á heimagistingu
og sölu á mat. Foreldrar mínir voru
með þeim fyrstu sem byrjuðu á slíku
og í dag er flokkað sem ferðaþjón-
ustubændur.
Það voru ákaflega skiptar skoð-
anir á því sem þau voru að reyna að
gera. Það var byrjað að byggja elsta
hlutann af þessu húsi hér árið 1985.
Þá vissu menn ekki hvert þau ætl-
uðu með að vera að eyða peningum
í slíka hluti. Það væri algjört rugl
að vera að byggja sérstaklega yfir
ferðamenn.“
Loðdýraræktin þótti meira
aðlaðandi
„Á sama tíma var verið að „agítera“
mjög stíft fyrir uppbyggingu í loð-
dýrarækt um allt land. Það þótti
miklu meira sexí, en að brölta í ein-
hverri ferðamennsku. Var loðdýra-
ræktin töluð mikið upp og miklum
peningum í það veitt.“
Keli segir að stuðningurinn við
ferðaþjónustuna hafi verið algjör
andstæða við þetta og mótstaðan
mikil lengi framan af.
Í dag þykir þessi lýsing Kela
sérkennileg í ljósi reynslunnar. Nú
horfa menn með mikilli undrun á
grotnandi mannvirki undir minkabú
á ótrúlegustu stöðum víða á lands-
byggðinni. Virðist fyrirhyggjan í
þeirri uppbyggingu hafa verið víðs
fjarri. Ekki var t.d. nægilega hugs-
að um nauðsynlega þætti eins og
þekkingaröflun og aðgengi að fóðri.
Enda fór sem fór, flest þessara búa
urðu gjaldþrota á skömmum tíma.
Uppgangur loðdýraræktar á
undanförnum árum byggir á allt
öðrum forsendum. Þar hefur þekk-
ingaröflun og náin tengsl við bestu
minkabændur heims verið í fyrir-
rúmi og árangurinn í takt við það.
Mótlætið var kannski til góðs
„Það var ferðaþjónustunni úti á
landi kannski til happs hvað and-
staðan var mikil í upphafi. Hún hefði
varla orðið það sem hún er í dag
nema vegna þess hversu baslið var
mikið í upphafi. Það voru einungis
þeir þrautseigustu sem héldu áfram.
Þessir brautryðjendur voru nánast
allir hugsjónafólk fram í fingur-
góma. Þeir sem ekki voru með þau
viðhorf entust ekki neitt. Þeir sem
lögðu línurnar á níunda áratugnum
og fyrr voru miklir eldhugar og
margir litríkir einstaklingar voru í
þeim hópi.
Braust undan valdi Kaupfélagsins
„Alla búskapartíð föður míns hafði
hann eiginlega það eina markmið í
öllu hokrinu að reyna að ná peningum
út fyrir hringiðu Kaupfélagsins. Þá
lögðu bændur auðvitað sínar afurðir
inn í Kaupfélagið í Borgarnesi. Þar
var byggingarvöruverslun og allt til
alls og innlegg bænda var þá gjarnan
Keli vert þykir fara skemmtilegar leiðir í sinni matargerð sem gestirnir kunna vel að meta. Hann lætur ekki einhver afturhaldsviðhorf takmarka sig við að
gera tilraunir og fara út fyrir hinn hefðbundna ramma. Myndir / HKr.
Langaholt og Ytri-Garðar í síðdegisbjarma febrúarsólarinnar.