Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Ungverski vélaframleiðandinn
Hofherr-Schrantz-Clayton-
Shuttleworth eða HSCS var
samstarfsverkefni ungverskra
og breskra viðskiptaaðila.
Fyrirtækið var þjóðnýtt
af kommúnistastjórninni í
Ungverjalandi árið 1950 og
fékk nafnið Rauða stjarnan.
Fyrirtækið var stofnað alda-
mótaárið 1900 og aðsetur þess í
Ungverjalandi. Í fyrstu framleiddi
fyrirtækið gufuvélar fyrir aust-
ur-evrópska og rússneska mark-
aðinn. Ensku hluthafarnir voru
keyptir út úr rekstrinum 1912 og
fyrirtækið í eigu Ungverja eftir
það.
Breska fyrirtækið sem í hlut
átti hét Clayton og Shuttleworth
og hafði um margra áratuga skeið
framleitt landbúnaðartæki, meðal
annarra þreskivélar, sem það seldi
til Austur-Evrópu og Rússlands.
Fyrsti traktorinn 1923
Árið 1923 setti HSCS fyrsta
traktorinn á markað. Eins strokka
bensínvél á járnhjólum. Fimmtán
árum síðar, 1938, setti fyrirtæk-
ið nýjan traktor á markað sem
kallaðist HSCS K40. Sá var með
dísilvél og hálfgerð eftirlíking
af þýskum Lanz Bulldog. HSCS
hefði keypt Lanz árið áður og því
í fullum rétti að nýta sér tækni
þeirra. Lanz/HSCS voru í fram-
leiðslu til 1938 og þóttu sterkar og
endingargóðar dráttarvélar.
Lanz Bulldog voru vinsælar
dráttarvélar á Spáni, Portúgal,
Austurríki og í Frakklandi enda
þekktar fyrir að ganga á nánast
hvaða olíu og þar á meðal úrgangs
smurolíu. Ungversku eigendunum
tókst ekki að viðhalda þeim mark-
aði og smám saman fjar-
aði undan sölunni í þeim
löndum.
Þjóðnýtt 1950
HSCS var þjóðnýtt af
kommúnistastjórninni í
Ungverjalandi árið 1950.
Ári seinna var nafni fyrir-
tækisins breytt í Dráttar-
vélaframleiðandinn
Rauða stjarnan og trakt-
orarnir kallaðir Dutra.
Dutra dráttarvélarnar voru
framleiddar í Búdapest og fram-
leiddar til ársins 1975. Um 200
slíkar voru fluttar til Bretlands
á sjöunda áratug síðustu aldar.
4.500 fóru til Austur-Þýskalands
undir heitinu D4K og DKK-B og
Svíar keyptu 120 stykki og sami
fjöldi var sendur sem þróunarað-
stoð til Kúbu. Þessar vélar voru
65 til 90 hestöfl.
Aðrar týpur af Dutra, sem vert
er að nefna, eru Dutra U-28,
og Dutra Robuste UE 40,
sem naut nokkurra vinsælda
í Frakklandi. Dutra 4654 og
Dutra Stey 110 voru öfl-
ugustu dráttarvélarnar sem
Rauða stjarnan framleiddi,
báðar 110 hestöfl.
Sameinast RABA
Árið 1973 sameinaðist Drátta-
rvéla framleiðandinn Rauða
stjarnan ungverska dráttar-
vélaframleiðandanum RABA,
sem framleiddi og framleiðir enn
Steiger dráttarvélar fyrir austur-
-evrópska og rússneska markaðinn.
/VH
Rauða stjarnan
frá Ungverjalandi
Utan úr heimi
Samkvæmt nýlegri skýrslu FAO,
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna, eru 17
prósent af búfjárkynjum heimsins
í útrýmingarhættu. Önnur 58 pró-
sent er óvissa með, þar sem ekki
eru til nýlegar tölur um fjölda
gripa. Því er talið að enn fleiri
búfjárkyn geti verið í hættu.
Í skýrslunni, sem fjallar einkum
um stöðu og horfur fyrir búfjárkyn
heimsins, kemur fram að frá árinu
2005 til 2014 hækkaði hlutfall þeirra
búfjárkynja sem eru í hættu um heil
tvö prósent. Leiddar eru líkur að
því að þessa tilhneigingu megi að
nokkru leyti rekja til sérhæfingar
verksmiðjubúa þar sem markaðsleg-
um kröfum er svarað með hámarks-
framleiðslu, sem er haldið gangandi
með til þess bærum en tiltölulega
fáum búfjárkynjum.
Fjölbreytni búfjárkynja
lífsnauðsyn
José Graziano da Silva, fram-
kvæmdastjóri FAO, segir í formála
skýrslunnar að 70 prósent af fátæku
sveitafólki í heiminum hafi lífsviður-
væri sitt af búfjárrækt. Þess vegna sé
fjölbreytni búfjárkynja lífsnauðsyn
fyrir heimsbyggðina; landbúnað,
byggðaþróun í dreifbýli og fæðu-
öryggi.
Alþjóðlega Slow Food-
hreyfingin hefur látið sig þessi mál
varða og hluti af þeirra starfsemi
er að reka sérstaka stofnun um
líffræðilegan fjölbreytileika. Einn
þáttur í þeirri starfsemi er stuðning-
ur við búfjárkyn sem eru í hættu,
í gegnum verkefni sín sem heita
Presidia og Bragðörkin (Ark of
Taste). Presidia miðar til dæmis að
varðveislu framleiðsluaðferða, vist-
kerfa og búfjárkynja – og íslenska
geitin var einmitt skráð þar inn fyrir
skemmstu fyrir tilstuðlan Slow
Food-deildarinnar sem er starfandi
á Íslandi. Bragðörkin miðar til
dæmis að því að varðveita afurðir
og þar innanborðs eru íslenska land-
námshænan, íslenska mjólkurkýrin,
íslenska sauðféð, íslenska forystu-
féð, auk geitfjárins íslenska. /smh
Maður hefur játað að hafa
stolið erfðabreyttu fræi af maís-
kólfum í ræktun í Iowa-ríki í
Bandaríkjunum. FBI hafði fylgst
með manninum í tvö og hálft ár og
allt að tíu ára fangelsisdómur getur
legið við slíkum þjófnaði.
Reyndar er málið æsispennandi
og í anda bestu njósnasögu. Menn frá
Bandarísku alríkislögreglunni, FBI,
höfðu fylgst með ferðum mannsins,
sem er Kínverji en bandarískur ríkis-
borgari, um miðríki Bandaríkjanna í
tvö og hálft ár, komið fyrir staðsetn-
ingartæki á bifreið hans og hlerað
símann hans. Stolnu fræin fund-
ust við húsleit heima hjá honum í
umbúðum utan af örbylgjupoppi. Sá
seki sagðist við fyrstu yfirheyrslu
hafa ætlað að færa ættingjum sínum
í Kína örbylgjupoppið sem gjöf.
Maísinn sem um ræðir var þróað-
ur af líftæknideildum Monsanto og
DuPont og varinn með einkaleyfi.
Kínverjinn hefur viðurkennt að ætl-
unin hafi verið að fara með fræin
til Kína þar sem fyrirtæki sem hann
starfar fyrir hafi ætlað að nota þau
við kynbætur í eigin maísræktun.
Allt að tíu ára fangelsisdóm-
ur og fimm milljóna bandaríkja-
dala sekt getur legið við slíkum
þjófnaði fái maðurinn þyngsta
dóm. Auk Kínverjans liggja sex
Bandaríkjamenn undir grun um að
að hafa ætlað að selja erfðabreytt
fræ í eigu DuPont og Monsanto til
fyrirtækis í Kína.
Málið gegn Kínverjanum er það
fyrsta sinnar gerða en talið er að
þjófnaður af þessu tagi hafi átt sér
stað um nokkurra ára skeið. /VH
FBI handtekur mann fyrir
stuld á erfðaefni plantna
Nýleg skýrsla FAO um stöðu búfjárkynja í heiminum:
Að lágmarki 17 prósent í útrýmingarhættu
sem er ætlað að styðja við búfjárkyn í útrýmingarhættu. Mynd / smh