Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Heilskorið korn algengt
Sé horft til fóðrunar mjólkurkúnna
á Kýpur þá er algengt að bændur
slái kornið um skrið og votverki
sem svokallað heilskorið korn enda
er það úrvalsfóður fyrir mjólkurkýr
í lágri eða meðal nyt. Oft er um
blöndu af grasi, hveiti og byggi að
ræða, saman eða hvort í sínu lagi.
Auk þessa gróffóðurs er töluverð
kjarnfóðurgjöf stunduð en líkt og í
öðrum löndum er heilfóður að verða
algengara og algengara en þá er öllu
fóðri kúnna blandað í eina blöndu og
ekkert kjarnfóður gefið sér. Sé slíkt
gert, þ.e. gefið heilfóður, er kúnum
sjaldan hleypt út og þeim haldið í
kældum fjósum enda svara hinar
svartskjöldóttu kýr slíkri fóðurgjöf
yfirleitt með miklum afurðum og
tilheyrandi lækkun hitastreitumarka.
Halloumi osturinn
Þó svo að afurðavinnslur landsins
vinni margskonar mjólkurvörur þá
stendur ein mjólkurvara upp úr en
það er Halloumi osturinn. Halloumi
osturinn hefur verið framleiddur á
Kýpur í hundruð ára en sérkenni
þessa osts er að hann er miðlungs
stífur og minnir e.t.v. nokkuð á
Mozarella osta svo dæmi sé tekið.
Halloumi er með frekar hátt
bræðslustig og þykir því henta vel til
grillunar eða steikingar. Kýpverska
ríkisstjórnin hefur sótt um svo-
kallaða upprunavernd á Halloumi
ostinum en fáist slíkt leyfi tryggir
það að enginn annar má framleiða
ost og selja með sama nafni innan
landa Evrópusambandsins. Halloumi
osturinn var hér áður fyrr unninn
unnin úr mjólk frá geitum og ám en
hefur í seinni tíð einnig verið unninn
úr kúamjólk.
Þessi ostur er „skyr“ þeirra
Kýpverja og er útflutningur á honum
gríðarlega mikilvægur bæði kúa-
-bændum landsins en einnig landinu
sjálfu enda nemur árlegt útflutnings-
verðmæti Halloumi ostsins um 10-12
milljörðum íslenskra króna og hefur
verið vaxandi á hverju ári undanfarin
ár. Það er því ekki að undra að stjórn-
völd á Kýpur hafi slegist í lið með
þarlendum samtökum afurðastöðva í
þeim tilgangi að ná að lögfesta upp-
runa Halloumi-ostsins.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
Ráðgjafi hjá SEGES P/S
Danmörku
Grjótháls 10, Fiskislóð 30 og Tangarhöfða 8, Reykjavík
Lyngás 8, Garðabæ
Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ
S: 561 4200
www.nesdekk.is
Hjólbarðaverkstæði
Bílabúðar Benna,
S: 590 2045
www.benni.is
FÁÐU AÐSTOÐ VIÐ VAL Á JEPPADEKKJUM
HJÁ SÖLUAÐILUM OKKAR UM LAND ALLT
RÉTTU JEPPADEKKIN KOMA ÞÉR ALLA LEIÐ!
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
5C serían er hönnuð sem alhliða vél sem vinnur frábærlega með ámoksturstækjum.
Við hönnun vélarinnar var þess gætt að hún væri notendavæn og þægileg en jafnframt
einföld og laus við óþarfa rafbúnað og tækni.
DEUTZ FAHR 5110C - alhliða
traktor með nútíma þægindum
5 góðar ástæður til þess að kaupa sér Deutz úr 5C seríunni:
Þýskur 3,6L Deutz mótor - 110 hö.
Stop&Go (turbokúpling) - hægt að hemla og stöðva án þess að kúpla
Vökvaútskjótanlegur dráttarkrókur
Eco vökvadæla sem skilar hámarksflæði við aðeins 1.600 snúninga
SSD - tvöföld stýrisdæla, fækkar snúningum á stýri
Bændur, fáið tilboð í DEUTZ-FAHR 5110C með Stoll FZ20 ámoksturstækjum og skóflu hjá
sölumönnum okkar.