Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
miðtaugakerfi, ofþornun og skerta
meðvitund.
Hratt fituniðurbrot leiðir einnig til
uppsöfnunar á fitu í lifur (fitulifur)
sem getur tekið langan tíma að jafna
sig og veldur almennri truflun á starf-
semi lifrarinnar og þar með ýmsum
mikilvægum efnaskiptaferlum.
Glúkósaskortur (blóðsykurfall)
veldur truflunum í heila/miðtauga-
kerfi. Ærnar verða daufar, fjarlægar,
drepast innan 10 daga án meðhöndl-
unar. Meðhöndlun felst í því að
gefa propylen glycol og saltlausn,
einnig getur verið ráð að kalla til
dýralækni til að fjarlægja lömb með
með keisaraskurði.
Ær sem hafa verið vel feitar á
miðri meðgöngunni en leggja hratt
af á síðustu vikum meðgöngunnar
eru hvað líklegastar til að verða fyrir
meðgöngueitrun. Þetta undirstrikar
mikilvægi þess að geta gefið betra
fóður á síðasta hluta meðgöngunnar
til að dempa fallið í orkujafnvæginu
eins og hægt er.
Ef orku-/glúkósaskortur er jafn
og langvinnur, eins og líklegt er
þegar gróffóðurgæði eru mjög jafn-
léleg stóran hluta vetrar, þá er ekki
líklegt að fitulifur myndist, vegna
þess að fituniðurbrotið er hægara.
Glúkósaskorturinn sem slíkur hefur
hins vegar sömu afleiðingarnar að
öðru leyti, þ.e. truflun á miðtauga-
kerfi, mjólkurmyndun o.fl. Það fer
svo eflaust eftir því hve langt þetta
ferli gengur hvort einstakir gripir ná
að jafna sig að fullu þegar betri tíð
kemur. Hætt er við að erfið tíð vorið
2015 hafi gert útslagið með að sumar
ær náðu því ekki þá þó að þær hefðu
átt möguleika á því í betri vorum.
Áætlanir og greining vandamála
Til þess að koma í veg fyrir tjón af
völdum lélegra heyja þarf að beina
sjónum að því hvernig við getum gert
heyin betri, jafnvel í óþurrkasumr-
um. Það er efni í annan pistil. En
þegar haustið kemur hverju sinni þá
verður að vinna út frá þeim heyforða
sem til er. Jafnframt má fullyrða að
reglulegt eftirlit og árvekni geti fyr-
irbyggt mörg vandamál. Hér verða
nefnd nokkur atriði sem vert er að
hafa í huga.
Skráning á uppskeru í gegnum
vefforritið jord.is sem mjög margir
bændur hafa aðgang að er einföld í
framkvæmd og gefur gott yfirlit um
heyforðann ef skráningin er vönd-
uð. Þarna er gert ráð fyrir að flokka
heyforðann eftir gæðum. Slíkar upp-
lýsingar er síðan hægt að nýta við
áætlanir um fóðrun vetrarins.
Efnagreiningar á heyinu hjálpa til
við að gera sér enn betur grein fyrir
gæðum heyjanna heldur en hægt er
að gera út tilfinningunni einni saman,
þó hún skuli ekki vanmetin. E.t.v. má
líka segja að efnagreiningarnar hjálpi
mönnum smám saman til að fá betri
tilfinningu fyrir heygæðunum.
Til að skráning heyforðans og
efnagreiningar komi að sem bestu
gagni er mikilvægt að raða heyforð-
anum til vetrargeymslu á sem skipu-
legastan hátt. Ekki er verra að hafa
einhverja hugmynd um það þegar
sú röðun fer fram hvaða hey er
líklegt að verði gefið hvaða hópi á
hvaða tíma. Þegar þessi röðun fer
fram væri gott ráð að taka til hlið-
ar t.d. 2 rúllur af hverri heytegund
og hafa aðgengilegar til að taka úr
þeim sýni að haustinu, til að senda í
efnagreiningu. Jafnvel mætti prófa
að gefa þessar prufurúllur fljótlega
að haustinu til að fá betri tilfinningu
fyrir því hvort heygæðin standast
væntingar.
Ótvíræðasti mælikvarðinn á fóð-
urgildi heyjanna er hvernig féð þrí-
fst af þeim. Glöggt fjármannsauga
meðtekur töluverðar upplýsingar
um það, en til að styrkja það mat
og sannreyna er vigtun ágæt aðferð.
Í fjárræktarfélögunum var á árum
áður gjarnan haft það vinnulag að
vigta féð þrisvar á vetri. Slíkar vigt-
anir lögðust smám saman af á flest-
um bæjum, mögulega hafa menn
haft minni áhyggjur af fóðruninni
eftir að heygæði bötnuðu almennt
með bættri heyskapartækni.
Það kann að hafa verið afturför.
Hér skal a.m.k. hvatt til þess að nota
fjárvigtina oftar en bara að haustinu.
Ef vigtað er þrisvar á vetri væri
líklega rökrétt að fyrsta vigtun
væri við ásetning og flokkun ánna
að haustinu, um það leyti sem féð
væri tekið inn. Önnur vigtun væri
svo hæfilega tímasett í janúar/
febrúar, eftir að fengitíð er vel um
garð gengin. Flokkun ánna í fóðr-
unarhópa væri endurskoðuð með
hliðsjón af þeirri vigtun og með til-
liti til niðurstaðna úr fósturtalningu.
Þriðja vigtunin væri svo eðlilegt að
færi fram u.þ.b. mánuði fyrir burð,
þ.e. nógu snemma til að hún valdi
ekki óþarfa hnjaski. Þessi vigtun
ætti að gefa góðar vísbendingar
um áherslur í fóðruninni á síðustu
vikum meðgöngunnar.
Hvaða aðferðir sem notaðar eru
þá er mikilvægt að fylgjast með
bæði hjörðinni sem heild og eins-
tökum gripum. Fjöldi vandamála-
tilfella geta gefið vísbendingar um
það í hvaða átt hjörðin í heild er
að stefna.
Lokaorð
Vetrarfóðrun sauðfjár hérlend-
is byggist að langstærstum
hluta á heimaöfluðu gróffóðri.
Ræktunarmarkmið fyrir íslenska
sauðfjárstofninn felur í sér að stefnt
er að tveimur vænum lömbum eftir
hverja fullorðna á og einu slíku eftir
hverja lambgimbur. Til að gróffóður
og beit standi undir þessum vænting-
um þarf árangur í jarðrækt og fóður-
öflun að vera framúrskarandi góður.
Sveiflur í veðurfari og fleiri þáttum
gera þetta reikningsdæmi nokkuð
snúið en jafnframt áhugavert.
Við höfum í dag ýmsar aðferðir
til að búa okkur sem best undir slíkar
sveiflur, og við þurfum að nýta þær
markvisst til að árangurinn verði sem
jafnastur og bestur. Þessi pistill og
aðrir sem á eftir koma verða vonandi
innlegg í það mál.
Jóhannes Sveinbjörnsson,
Landbúnaðarháskóla Íslands
Helstu heimildir:
Árni B. Bragason, 2013.
Sjúkdómar og sauðfé. 10. kafli
(bls. 192-224) í: Sauðfjárrækt á
Íslandi. Uppheimar 2013.
Bjarni Guðmundsson, 1996.
Verkun heys í rúlluböggum handa
ám. Rit búvísindadeildar nr. 17.
Bændaskólinn á Hvanneyri.
Morgante, M., 2004. Digestive
disturbances and metabolic-
nutritional disorders. Kafli 10
í Dairy Sheep Nutrition (ritstj.
G. Pulina & R. Bencini). Cabi
Publishing.
Lykkehus - UPD.Denmark Holding ApS, Barritvej 8, 2770 Kastrup, Netfang: upd.denmark@gmail.com, Sími: 0045 5358 1882 /What’sapp (íslenskt starfsfólk)
Tvö hús komast í 20ft gám Húsið innpakkað
Tvö stærri hús komast í 40ft gám, eða fjögur minni.
Fyrsta og annað stig: Húsið tilbúið til uppsetningar Þriðja stig: Veggir og þak reist og
gólfflötur stækkaður
Fjórða stig: Gaflar reistir Fimmta stig: Göflum lokað Sjötta stig: Þakklæðning sett á
Sjöunda stig: Kjölur settur á þakið Húsið tilbúið til notkunar
BYLTINGARKENND NÝJUNG!
21m2 og 43m2 hús fullbúin á nokkrum klukkustundum.
Sömu húsin fást aðeins breiðari svo þau verða 24m2 og 48m2, án aukagjalds ef óskað er.
Verð frá 1920 þús. fyrir fullbúið hús.
Verð án vsk, afhent í Reykjavík:
Standard hús án skrautklæðningar, kr 1.920.000,-
Með PVC skrautklæðningu, t.d. vatnsklæðning í viðarlíki, 2.190.000,-
VERÐDÆMI:
ASI525-P01
20.85m2