Bændablaðið - 25.02.2016, Side 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 201658
Í síðustu viku ók ég fram hjá fyr-
irtæki vinar míns og sá að hann
var búinn að bæta í flotann hjá
sér lítilli hjólaskóflu.
Að fá gripinn til að prófa var auð-
sótt mál og fór ég á vélinni heim til
mín og mokaði snjóinn á bílaplaninu
við raðhúsið sem ég bý.
Dugleg lítil vél
JCB 409-smáhjólaskóflan hentaði
vel til snjómoksturs á bílastæðinu.
Hraðinn á moksturstækjunum er
mjög góður, fljótlegt að hífa og
sturta úr skóflunni miðað við aðrar
vélar sem ég hef prófað. Vélin var
lipur til snjómoksturs og hægt að
moka mjög nákvæmt með henni.
Snjórinn við raðhúsið var mikið til
orðinn að klaka, en vélin var í litl-
um vandræðum að skafa og brjóta
upp klakann. Vissulega er skóflan
frekar mjó og lítil sem snjóskófla,
en í staðinn skefur hún vel á því litla
svæði sem hún mokar á.
Verð og búnaður
Vélin heitir JCB 409 og er með
74 hestafla vél, vigtar 5.926 kg,
kemur með skóflu og göfflum
fyrir vörubretti. Hámarkshraði er
40 km á klukkustund, glussadrifin
með tvöföldu glussakerfi þannig
að ef auka þarf kraft til vinnutækja
framan á vélinni hefur það ekki
áhrif á drifbúnaðinn. T.d. ef verið
er að vinna með sóp eða snjóblásara
framan á vélinni er hægt að auka
hraðann á sópnum/snjóblásaranum
einum og sér. JCB 409 kostar rétt
undir 10.000.000 fyrir utan vsk.
Umboðsaðili er Vélfang sem hefur
verið með umboðið fyrir JCB síðan
2009.
Það eru nokkur ár síðan ný
McCormick dráttarvél var flutt
til landsins. Sturlaugur Jónsson
& Co hefur tekið við umboðinu á
McCormick og flutti fyrir skömmu
inn McCormick X5 Power Shuttle.
Ég skrapp fyrir stuttu í heimsókn
í Sturlaug Jónsson & Co og skoðaði
vélina áður en vélin var send norður
í Aðaldal. Þess ber að geta að ég ók
vélinni ekkert, en sat inni í henni
með vélina í gangi og skoðaði vel
sjáanlega kosti vélarinnar.
Hestöflin mörg miðað við
stærð vélar
Margt er sniðugt og virðist við fyrstu
sýn vera jákvætt í hönnun vélarinn-
ar samanber að ámoksturstækin eru
með þægilegu hraðtengi sem auðvelt
er að tengja og aftengja. Aflúrtak
er 540, 750 og 1000 snúningar á
mínútu, vökva vendigír, rafstýrð
innsetning á fjórhjóladrifi, vökva-
stýrðar driflæsingar, 230V tengill
fyrir rafmagnsverkfæri, vökvaúrtak
fyrir vagnhemla. Aðgengi að vél til
viðhalds er mjög gott og þrátt fyrir
að vélin virðist ekki stór þá skil-
ar Perkings-vélin 113 hestöflum.
Bremsurnar eru í glussa en ekki á
drif eins og í mörgum vélum og því
mun minni hætta á að brjóta öxla
þegar stigið er á bremsur.
Útsýni gott úr stýrishúsi
Það fyrsta sem maður sér þegar
maður ætlar upp í stýrishúsið er
lítill rauður rofi sem er til að slá
út öllu rafmagni á vélinni (ætti að
mínu mati að vera skyldubúnaður
á öllum dráttarvélum). Að sitja inni
í vélinni hefur maður gott útsýni til
allra átta, en nánast öll stjórntæki
eru hægra megin í stýrishúsi þar
sem stjórnandi hefur góða yfirsýn á
stjórnborðið. Stýrishúsið er ágætlega
hljóðeinangrað,ökumannsstóllinn er
mjög þægilegur og nefnist Delux
ökumannsstóll, loftkæling er í öku-
mannshúsi, klappstóll fyrir farþega.
Gott verð miðað við stærð
og hestöfl
Heiti vélarinnar sem ég skoðaði
er McCormick X5. 40 4X4 Power
Shuttle, 113 hestöfl. Verðið á vélinni
er frá 8.760.000 + vsk.
Vélabásinn
Hjörtur Leonard Jónsson
liklegur@internet.isRótgróið dráttarvélanafn komið aftur á íslenska markaðinn:
Nýr ódýr McCormick X5
Helstu mál og upplýsingar
Þyngd 3.650 kg
Hæð 2.600 mm
Breidd 2.110 mm
Lengd 4.160 mm
McCormick X5. Myndir / HLJ
Lipur liðstýrð JCB-smáhjólaskófla
Mynd / HLJ
-
-