Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 1
22. tölublað 2017 ▯ Fimmtudagur 16. nóvember ▯ Blað nr. 503 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is EFTA-dómstóllinn telur að íslensk lög gangi of langt í skilyrðum varðandi innflutning landbúnaðarafurða: Viðskipta- og lögfræðihagsmunir eru meira metnir en lýðheilsa – segir Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði og yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans Þriðjudaginn 14. nóvember var kveðinn upp dómur hjá EFTA- dómstólnum. Komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að íslenska leyfisveitingakerfið fyrir innflutning á hrárri og unninni kjötvöru, eggjum og mjólk samrýmdist ekki ákvæðum EES- samningsins. Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði og yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans, sagði í samtali við Bændablaðið að niðurstaða EFTA-dómstólsins sýni að viðskiptahagsmunir og lögfræðin vegi þyngra en sjónarmið lýðheilsu. Slæm niðurstaða út frá sjónarmiði lýðheilsu „Niðurstaða dómsins er slæm út frá sjónarmiði lýðheilsu og íslensks landbúnaðar, þótt niðurstaðan sé væntanlega lagalega séð rétt. Með því að gefa innflutninginn frjálsan er verið að auka líkurnar á því að margs konar sýklar geti borist til landsins í menn og dýr. Úr því að þetta er niðurstaðan verður að leita leiða til þess að draga eins og hægt er úr líkunum á því að sýklar og sýklalyfja- ónæm ar bakt- eríur berist til landsins í auknum mæli og herða eftirlit með því.“ Karl segir að áhr i f dómsins séu tvenns konar að hans mati. „Annars vegar aukning á súnum eða bakteríum sem sýkja bæði menn og dýr. Slíkar bakteríur eru algengari erlendis en á Íslandi og því má búast við talsverðri aukningu á þeim. Í því sambandi er vert að hafa sérstaklega áhyggjur af innflutningi á ferskum kjúklingum og satt best að segja hef ég langmestar áhyggjur af þeim innflutningi. Innflutningur á ferskum kjúklingum getur hæglega stefnt í hættu þeim ströngu reglum sem viðhafðar eru í kjúklingaeldi hér á landi. Kjúklingaeldið hér er nánast kampýlóbakter-laust og mælist undir 5%, en hefur til dæmis mælst 75% í verslunum í Bretlandi og víðar í Evrópu. Það er því nokkuð ljóst að innflutningur á ferskum kjúklingum er líklegur til að fjölga kampýlóbakter-tilfellum í landinu. Hins vegar er notkun á sýkla- lyfjum mun meiri, sérstaklega í Suður-Evrópu, í Evrópusambandinu en hér á landi. Þegar kemur að innflutningi á hráu kjöti, sérstaklega kjúklingum, getur verið erfitt að komast hjá því að fluttar verði inn afurðir með bakteríum ónæmum fyrir fjölmörgum sýklalyfjum.“ Miklar áhyggjur Ég hef einnig miklar áhyggjur af mögulegum innflutningi á ýmiss konar örverum sem ekki eru landlægar í íslenskum búfénaði sem geta borist hingað með hráu kjöti og í búféð,“ segir Karl G. Kristinsson. Íslensk lög ekki talin standast tilskipun um innri markað Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) krafðist viðurkenningar á því að íslenska ríkið hefði brotið gegn 5. gr. tilskipunar ráðsins 89/662/ EBE frá 11. desember 1989 um dýraheilbrigðiseftirlit í viðskiptum innan bandalagsins samkvæmt tilskipun um innri markað. Mótmælti ESA því að íslenska ríkið viðhéldi leyfisveitingakerfi vegna innflutnings á hráu kjöti og kjötvörum. Einnig vegna innflutnings á hráum eggjum og hráum eggjavörum, leyfisveitingakerfi vegna innflutnings á ógerilsneyddri mjólk og mjólkurafurðum unnum úr ógerilsneyddri mjólk. Þá voru viðbótarkröfur vegna innflutnings ákveðinna ostategunda og banns við markaðssetningu á innfluttum mjólkurafurðum sem unnar væru úr ógerilsneyddri mjólk. Sem og stjórnsýsluframkvæmd sem gerði innflytjendum skylt að leggja fram vottorð og sækja um leyfi til þess að flytja inn meðhöndluð egg og mjólkurafurðir. Íslenska ríkið mótmælti framangreindum kröfum ESA. Hvað varðaði fyrstu þrjár kröfur ESA þá taldi dómstóllinn að íslensk löggjöf fæli í sér bann við innflutningi á hrárri kjötvöru, eggjum og mjólk. Hins vegar mælti EFTA- löggjöfin fyrir um að innflutningur á slíkum vörum gæti verið heimill að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Dómstóllinn komst því að þeirri niðurstöðu að leyfisveitingakerfið á Íslandi væri ósamrýmanlegt 5. gr. tilskipunarinnar. Hins vegar taldi dómstóllinn að bann við markaðssetningu sem vísað væri til í þriðju kröfu ESA fæli ekki í sér eftirlit með dýraheilbrigði í skilningi tilskipunarinnar og var þeirri kröfu því hafnað. Hvað varðaði fjórðu kröfu ESA um innflutning eggja og mjólkurvara var bent á að íslensk stjórnvöld krefðust þess að umræddar vörur séu meðhöndlaðar í samræmi við íslensk lög. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að slík framkvæmd fæli í sér eftirlit með dýraheilbrigði umfram það sem leyfilegt væri samkvæmt 5. gr. tilskipunarinnar. /VH/HKr. – Sjá frekari viðbrögð bls. 4 Þorskurinn er kóngurinn hér 22 Karl G. Kristinsson. Angus-fósturvísarnir komnir til landsins Laugardaginn 11. nóvember sl. komu hingað til lands 40 fósturvísar af Angus-holda- n a u t a k y n i n u . Fyrirhugað er að setja þá upp á næstu vikum í kýr í nýrri einangrun- ar stöð Nautgripa- ræktar miðstöðvar Íslands ehf. á Stóra- Ármóti í Flóa. Það félag er í jafnri eigu Bændasamtaka Íslands, Búnaðar sambands Suðurlands og Lands sambands kúa bænda. Markmiðið með þessu verkefni er að skjóta styrkari stoðum undir íslenska nautakjötsframleiðslu en Angus-kynið þykir hentugt beitarkyn, með léttan burð, góða flokkun og rómuð kjötgæði. /BHB – Fyrirhugað er að setja þá upp á næstu vikum í kýr í nýrri einangrunarstöð Nýja einangrunarstöðin er skammt frá Stóra-Ármóti. Mynd / MHH Sigurður Loftsson, bóndi og formaður stjórnar Nautgriparæktar- miðstöðvar Íslands og Baldur Helgi Benjamínsson, búfjár- erfðafræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, með köfnunarefniskútinn sem geymir fósturvísana. sem veitti þeim viðtöku. – Sjá nánar um stöðina á bls. 4 Myndir / Sveinn Sigurmundsson. Vörusmiðja BioPol á Skagaströnd eykur tækifæri matvælaframleiðenda 28–29 Áskorun tuttugustu og fyrstu aldarinnar 46–47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.