Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Guðjónsdóttur, en hún og maðurinn
hennar, bruggmeistarinn Sigurður
Bragi Ólafsson, eiga fyrirtækið að
stærstum hluta ásamt foreldrum
Sigurðar, þeim Agnesi Önnu
Sigurðardóttur og Ólafi Þresti
Ólafssyni.
Gauksmýri er Fyrirtæki ársins
Viðurkenningin Fyrirtæki ársins er
veitt fyrirtæki sem er búið að slíta
barnsskónum og hefur skapað sér
sterka stöðu á markaði, fyrirtæki
sem hefur unnið að stöðugri
uppbyggingu, vöruþróun og
nýsköpun og er með höfuðstöðvar á
Norðurlandi. Það fyrirtæki sem fær
viðurkenninguna í ár er Gauksmýri.
Ferðaþjónustan á Gauksmýri er
rótgróin og á sér sögu sem teygir
sig aftur til síðustu aldar, því hún
hófst árið 1999. Árið 2006 var
þar opnað nýtt gistiheimili með
18 herbergjum, veitingasal og
móttöku. Það voru hjónin Jóhann
Albertsson og Sigríður Lárusdóttir
sem stofnuðu fyrirtækið á sínum
tíma, en Sigríður féll frá árið 2015.
Í kjölfarið komu börn þeirra að
rekstri fyrirtækisins, þau Hrund
Jóhannesdóttir og maður hennar,
Gunnar Páll Helgason, sem sjá um
reksturinn að mestu leyti.
Hestamennska í fyrirrúmi
Gauksmýri snýst fyrst og fremst
um hestamennsku og öll aðstaða
á sveitabænum er til fyrirmyndar.
Þar er reiðvöllur með glænýrri
stúku sem var byggð í sumar, þar
sem kostir íslenska hestsins eru
tíundaðir og sýndir á sérstökum
sýningum sem vel eru sóttar.
Gestum er síðan boðið yfir í flotta
aðstöðu í hesthúsinu, þar sem þeim
gefst kostur á að kynnast hestunum
betur.
Gauksmýri er mikilvægt
fyrirtæki í ferðaþjónustu í
Húnaþingi vestra, og hefur lagt
sitt af mörkum og gott betur til
að stuðla að bættri byggð. Gott
dæmi um það er veitingastaðurinn
Sjávarborg á Hvammstanga, sem er
í eigu fyrirtækisins. Staðurinn var
opnaður árið 2015 og hefur eflt bæði
ferðaþjónustu á svæðinu sem og
atvinnulífið almennt. Matseðillinn
endurspeglar umhverfið vel og eins
og nafnið gefur til kynna er áherslan
lögð á sjávarfang.
Viðurkenning fyrir Störf í þágu
ferðaþjónustu á Norðurlandi
Viðurkenninguna fyrir Störf í þágu
ferðaþjónustu á Norðurlandi fær
einstaklingur sem hefur haft góð
áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi
í heild sinni og hefur starfað beint
eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á
svæðinu. Ólöf Hallgrímsdóttir hlaut
viðurkenninguna í ár, hún hefur
undanfarin 18 ár sýnt og sannað
að áhugi fólks á fjósum er ekki bara
takmarkaður við mjólkurafurðir.
Vogafjós í Mývatnssveit er nú með
bestu veitingastöðum Norðurlands
og þótt víðar væri leitað, og hefur
haft mjög jákvæð áhrif á þróun
ferðaþjónustu í landshlutanum.
Ólöf hefur verið brautryðjandi
í ferðaþjónustu lengi og svo
sannarlega farið sínar eigin leiðir.
Hún var snemma byrjuð að selja mat
úr héraði, rétti eins og hverabrauð
með silungi úr Mývatnssveit,
hangikjöt og heimagerðan
mozzarella- og fetaost. Sú áhersla
hefur skilað sér því Vogafjós er eitt
af þekktari kennileitunum í umhverfi
ferðaþjónustu í Mývatnssveit og
raunar á Norðurlandi öllu. Auðvitað
hefur hin sérstaka samþætting
landbúnaðar og veitingareksturs
þar einnig áhrif. Hugmyndin, að
selja inn á kaffihús til að fylgjast
með mjólkun kúa hefur eflaust þótt
nokkuð galin á sínum tíma en hún
hefur engu að síður slegið í gegn.
Gott fordæmi með þjónustu allt
árið
Það segir nokkuð um hve einstök
hugmyndin um Vogafjós er að árið
2003 sá Vegagerðin sér ekki annað
fært en að búa til sérstakt skilti
fyrir ferðamannafjós, en þá var
Vogafjós eini staðurinn á landinu
þar sem hægt var að fylgjast með
því sem fram fer í fjósi. Slík fjós
voru reyndar ekki alveg óþekkt og
höfðu bændur opnað fjósin fyrir
ferðamönnum bæði í Eyjafirði og
Laugarbakka undir Ingólfsfjalli.
Í Vogafjósi var hins vegar, og er
enn, hægt að fylgjast með mjöltum
í gegnum gler og slíkt þótti þá
nýstárlegt og snjallt.
Ólöf hefur sýnt af sér einstaka
þrautseigju í baráttunni fyrir
framleiðslu og sölu á mat beint
frá býli. Hún hefur rutt brautina
fyrir marga og sýnt fram á að með
skýrri framtíðarsýn og stefnu má
ná frábærum árangri. Hún hefur
einnig sýnt gott fordæmi með því
að veita þjónustu allt árið og þannig
aukið viðskipti við ferðamenn
á Norðurlandi auk þess að efla
möguleika annarra fyrirtækja á
heilsárs starfsemi. /MÞÞ
Hópurinn í heimsókn hjá fyrirtækinu Snow Dogs, lengst til hægri er Bergþóra
Kristjánsdóttir, annar eigenda, að sýna Husky-hundana sína, en þeir eru
landsbankinn.is 410 5000Landsbankinn
Pantaðu viðtal hjá sérfræðingum okkar í síma 410 5000 eða
sendu okkur tölvupóst á netfangið fyrirtaeki@landsbankinn.is.
Í öllum fyrirtækjum er nauðsynlegt að geta gengið að ölbreyttum
lausnum sem styðja við reksturinn. Við leggjum mikið upp úr
persónulegum tengslum og vandaðri þjónustu.
Hjá fyrirtækjaþjónustu
Landsbankans leggjum við
okkur fram við að koma til
móts við þarfir fyrirtækja. Við
horfum fram á veginn þegar
kemur að viðskiptasamböndum
og störfum með fyrirtækjum
á ólíkum vaxtarskeiðum.
Netbanki fyrirtækja er upp-
lýsingaveita sem eykur yfir-
sýn og auðveldar stjórnendum
ákvarðanatöku. Við bjóðum
upp á greinargóðar innheimtu-
skýrslur, beintengingu við
bókhaldskerfi og kortalausnir
sem einfalda innkaup.
Við bjóðum ýmsar gerðir
rekstrarlána, ármögnum
tækjakost, veitum árfestinga-
lán og aðstoðum við ár-
mögnun á verðbréfamarkaði.
Við ávöxtum fé og bjóðum
virka eignastýringu fyrir
eignir fyrirtækisins.
Fjármögnun
og eignastýring
Öflugar
netlausnir
Vönduð fyrir-
tækjaþjónusta