Bændablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 54

Bændablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017 Mini er ekkert nýtt nafn í bílaflota Íslands, en upp úr 1960 var Garðar Gíslason, stórkaupmaður á Hverfisgötu 4–6, með umboð fyrir bresku Austin-verksmiðjurnar. Austin Mini var vinsæll og ódýr bíll hér á Íslandi fram undir 1970. Fyrstu Mini-bílarnir voru með kraftlitla 850cc vél og á 10 tommu felgum sem hentuðu ekki vel fyrir íslenska vegi. Fyrir vikið var það „Bjallan“ frá Volkswagen sem hafði vinninginn í smábílasölunni. Frá síðustu aldamótum hefur Mini verið í eigu BMW og náð töluverðum vinsældum. Árið 2012 byrjaði vel fyrir Mini, en þá varð Mini X-Raid í fyrsta og öðru sæti í hinu fræga Dakarralli. Árið eftir var Mini í fjórum fyrstu sætunum í sömu keppni, en allt frá því hefur mig langað til að prófa fjórhjóladrifinn Mini. Fjórhjóladrifið er samspil tveggja véla Að keyra bílinn er nánast hljóðlaust, í rólegum akstri byrjar bíllinn á að nota rafmagnsmótorinn sem hefur um 40 km drægni fullhlaðinn, en ef farið er upp fyrir 80 km hraða kemur bensínmótorinn inn. Sé allt gefið í botn úr kyrrstöðu fer bensínmótorinn strax í gang til að auka kraft og snerpu. Ólíkt öllum öðrum fjórhjóladrifnum bílum stjórnast fjórhjóladrifið af annars vegar 1,5 lítra þriggja strokka turbo-bensínvél sem skilar 136 hestöflum sem er framhjóladrifið. Afturhjólunum stjórnar svo 88 hestafla rafmótor sem er aftast í bílnum ásamt rafhlöðunni. Samanlagt eru þessar vélar tvær 224 hestöfl sem getur sett bílinn úr kyrrstöðu í 100 km hraða á 6,8 sek. Ótrúlega stöðugur í hálku og á möl Bíllinn sem ég fékk um síðustu helgi hjá BL og prófaði við frekar erfiðar aðstæður kom mér verulega á óvart. Eftir að hafa reynt bílinn innanbæjar fór ég út fyrir bæinn til að finna vel hálan veg og meiri snjó. Á leiðinni út úr bænum mældist þessi bíll með aðeins 57–59 desíbela hávaða inni í bílnum á 90 km hraða, sem er með lægstu mælingum sem ég hef tekið í bíl á þessum hraða. Á malarveginum var mælingin 64–66 db. Það var sama hvar ég reyndi bílinn, alltaf var hann betri en það sem ég fyrirfram hafði gert mér í hugarlund. Á flughálum hlykkjóttum veginum við Ármannsfell haggaðist bíllinn ekki og sama hvað ég reyndi þá rann hann aldrei til og tók aldrei spól. Á lausum malarvegi fór skriðvörnin strax í gang og hélt bílnum réttum í gegnum beygjuna sem ég reyndi bílinn á og þegar snúið var við og skriðvörnin tekin af var það sama sagan, smá hliðarskrið, en ótrúlega stöðugur. Góðu punktarnir mun fleiri en þeir slæmu Eftir 100 km akstur þá var meðaleyðsla á mín. 10,2 lítrar. Þarna var um grófan akstur og mikla spyrnugleði að ræða, en þetta var bara svo gaman með stillinguna á sporttakkanum. Þegar ég skilaði bílnum 50 km síðar, var ég kominn niður í 9,1 lítra eyðslu. Það er örugglega hægt að ná bílnum mun neðar sé einhver skynsemi í akstrinum. Það er svo margt í þessum bíl sem er gott og vandað, en fyrst vil ég nefna að öll ljós eru LED og lýsa afar vel. Bara að muna að kveikja ljósin einu sinni og hafa ljósarofann alltaf á ON því að þegar drepið er á bílnum slokkna ljósin sjálfkrafa þó að takkinn sé á ON. Hljómtækin eru hreint frábær og ekki man ég eftir neinum bíl sem hefur verið með sætishitara sem er eins fljótur að hitna eins og í þessum bíl. Aðeins tvennt fann ég að þessum bíl, ekkert varadekk, aðeins rafmagnspumpa og límvökvi til að gera við. Bensíntankurinn er ekki nema 36 lítrar, en mætti vera 10 lítrum stærri. Svo er bíllinn aðeins að sóða sjálfan sig of mikið upp á hliðar. Verð og helstu mál Bíllinn sem prófaður var heitir MINI COOPER SE COUNTRYMAN ALL4 og kostar 5.590.000, en ódýrasti Mini er á verði frá 3.890.000. Það er margt ósagt um þennan bíl og fyrir áhugasama sem vilja fræðast meira um bílinn er best að leita á vefsíðunni www.bl.is. É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bakkmyndavélin sýnir vel aftur og rauða línan möguleika á beygju. Uppáhaldsstillingin hjá mér, en kostaði aðeins of mikið bensín. Aksturstíminn, eyðslan í lok prufuaksturs. Michelin Alpin naglalausu snjódekkin eru einhver bestu óneglanlegu vetrar- dekkin á markaðnum. LED ljósin að aftan eru stór og sjást vel. Gamalt rótgróið merki sem margir þekkja Þyngd 1.735 kg Hæð 1.559 mm Breidd 1.822 mm Lengd 4.299 mm Helstu mál og upplýsingar Mini Cooper SE Countryman All4. Myndir / HLJ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.