Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017 Dagana 20. til 23. október sl. stóðu Samtök ungra bænda á Íslandi fyrir helgarferð til Skotlands og var tilgangur ferðarinnar að kynnast þarlendum landbúnaði sem og að njóta lítils hluta þess sem Skotland hefur upp á að bjóða. Alls voru 32 ungir bændur með í för og komu þeir víðs vegar að af landinu og frá ýmsum greinum íslensks landbúnaðar. Hér á eftir fer síðari hluti samantektar um þessa ferð en fyrri hluti umfjöllunarinnar birtist í síðasta Bændablaði. „Ungi bóndi Skotlands 2016“ Önnur bændaheimsókn ferðarinnar var til Andrew McGregor sem býr á búinu Eastlaw og rekur þar blandað bú ásamt föður sínum. Samtals eru þeir með 160 kýr, 300 kindur og 220 hektara lands, þar af um 40 hektara af hveitiframleiðslu. Kindurnar eru mest notaðar í skiptibeit á móti kúnum, þ.e. til að hreinsa upp hagann eftir að kýrnar hafa verið á beit. Andrew þessi var valinn „Ungi bóndi Skotlands 2016“ en þá viðurkenningu hlýtur árlega einn ungur bóndi sem hefur staðið sig einkar vel í félagsmálum ungra bænda og þar hefur Andrew einmitt verið einkar virkur og sem var ein af ástæðum þess að hann var sóttur heim í þessari ferð. Stefnir á stækkun eftir Brexit Andrew sýndi hópnum bú sitt og ræddi um framtíðina nú þegar Brexit er handan við hornið. Hann telur fullvíst að framtíð búsins liggi í því að fjölga kúnum og hætta með sauðféð og telur hann að 3–400 kúa bú sé raunhæft markmið fyrir Eastlaw-búið. Með Brexit skapist ákveðin tækifæri til að efla innlenda landbúnaðarframleiðslu í Stóra- Bretlandi og koma í veg fyrir eða draga úr innflutningi landbúnaðarvara frá öðrum löndum. Það skapi heimamönnum aukið svigrúm til þess að efla bú sín og stækka. Þessi staða muni vissulega einnig gagnast þeim bændum á Stóra-Bretlandi sem eru í lambakjötsframleiðslu en Andrew telur þó að bú hans henti betur til mjólkurframleiðslu enda sé ekki gott að vera með dreifðar áherslur hvað varðar vinnu, en það geti þó verið kostur tekjulega séð að dreifa áhættunni. Selja mjólkina til einkaaðila Þeir feðgar selja mjólkina í einkarekna afurðastöð og eru með fastan samning sem skilar þeim 25 pensum, eða um 34 krónum á lítrann næstu 2 árin og fá þeir þetta lágmarksverð fyrir 50% framleiðslunnar. Fyrir hinn hluta mjólkurinnar borgar afurðastöðin markaðsverð, sem er nú 31 pens, eða um 42 krónur á lítrann. Aðspurður um núllpunkt búsins, þ.e. hvaða lágmarksverð þurfi til svo að búið tapi ekki á framleiðslunni, sagði Andrew hann hafa verið 21 pens í fyrra. eða um 29 krónur á lítrann. Staðan væri því sem stendur afar góð og búið væri rekið með góðum hagnaði. Gamalt mjaltakerfi Þegar mjaltaaðstaðan var skoðuð mátti glögglega sjá að hún hafði átt betri daga en um var að ræða gamlan 2x9 mjaltabás og í honum er einn maður að mjólka þessar 160 kýr um tvo tíma á morgnana og heldur styttri tíma á kvöldin. Meðalnytin er um 8.700 lítrar en Andrew er með Holstein kýr. Þetta er heldur lág nyt miðað við þetta kúakyn og sagði Andrew að skýringin lægi í því að búið notaði nánast ekkert aðkeypt fóður. Kýrnar fá heilskorið hveiti, heilskorið bygg og hefðbundið vothey sem uppistöðuna í fóðrinu og fá svo örlítið að aðkeyptu próteini. Fyrir vikið séu þær ekki keyrðar upp í nyt, en þetta kúakyn getur hæglega skilað 3–4 þúsund lítrum að jafnaði til viðbótar með krafmeiri fóðrun. 3F er lykillinn að árangri Þessi magnaði ungi bóndi var greinilega með afar góða stjórn á búrekstrinum og aðspurður að því hvernig hann gæti framleitt mjólkina jafn ódýrt og hann gerði sagði hann að lykillinn lægi í „effunum þremur“: frjósemi, fóðri og fóðrun. Ef kúabóndinn væri með þessi þrjú grunnatriði í huga dag hvern og passaði að frjósemin væri góð, að fóðrið hentaði kúnum og væri ódýrt ásamt því að fóðra kýr og geldneyti rétt og vel þá næði maður árangri. Kjötframleiðsla í sérflokki Frá Andrew var haldið til annars ungs bónda sem býr á bænum Birks sem er næsti bær við Eastlaw. Þar býr Dougie Frame en hann er með 120 Aberdeen Angus kýr ásamt öllu uppeldi. Til búsins heyra 200 hektarar af landi sem er nýtt bæði til fóðurframleiðslu og beitar og eru kýrnar úti mestan part ársins en geldneytin tekin á hús yfir veturinn. Þá eru á búinu einnig 200 ær en hann notar þær fyrst og fremst til þess að hreinsa upp beitarsvæðin eftir kýrnar og kálfana. Geldir öll naut Í Skotlandi má nota teygju til að gelda naut og er það gert við öll naut og er hann því einunig með uxa og kvígur í kjötframleiðsunni. Fyrir vikið þarf Dougie því að kaupa þarfanautin að frá sérstökum ræktunarbúum. Þetta er afar algengt að gert sé í Skotlandi, þ.e. bændurnir sem eru í kjötframleiðslu eru ekki í kynbótarækt heldur kaupa að þá gripi sem nota á til framleiðslunnar. Í þessar 120 kýr og kvígur notar hann 3–4 naut og hefur hann markvisst unnið að því að efla frjósemina með því að taka allar ásetningskvígur frá nautunum eftir 2 gangmál. Þær eru svo skannaðar 5 vikum síðar og ef þær eru ekki með staðfest fang eru þær settar í sláturhús. Þetta hefur verið gert á búinu í mörg ár og hefur þessi aðferð skilað búinu afar góðri frjósemi. Þá hefur hann markvisst slátrað þeim gripum sem hefur þurft að hjálpa við burð og hefur það einnig gert burðarvertíðina mun auðveldari. Þannig þurfti t.d. í vor einungis að aðstoða við 3 burði af 120. Vottað skoskt nautakjöt Öllum sláturgripum er slátrað 23–24 mánaða gömlum og er fallþunginn þá í kringum 360–370 kg en sé fallþunginn meiri lækkar verðið. Skýringin felst m.a. í því að búið er í sérstöku gæðavottunarkerfi sem gefur rétt til notkunar á heitinu skoskt nautakjöt en slík vottun er ávísun á hærra verð, en til þess að geta selt kjöt með þessari vottun þarf að uppfylla ýmis skilyrði s.s. um fallþunga, aðbúnað og fleiri atriði sem ekki verða tíunduð frekar hér. Elstu kýrnar borið 10 kálfum Dougie hefur í nokkur ár ræktað sérstaklega fyrir eiginleikum sem lúta að endingu kúnna s.s. sterkbyggðu göngulagi og léttum burði. Þetta er þegar farið að skila sér í aukinni endingu og hafa t.d. elstu kýrnar borið 10 kálfum og láta ekkert á sjá að hans sögn. Aðspurður um reksturinn þá sagðist hann vera sáttur en samkvæmt uppgjöri SAC (þeirra RML) er búið í besta þriðjungi meðal skoskra holdanautabúa þegar horft er til hagkvæmni og afkomu. Vindmyllur líka landbúnaður Síðasta búið sem var heimsótt í þessari ferð var bú hjónanna Iain og Marion MacDonald en þau eru með skemmtilega blandað bú sem samanstendur af sauðfé, skógrækt og vindmyllum! Bú þetta, sem kallast Ardoch, er með 700 ær og er sá hluti búskaparins umfangsmestur amk. hvað varðar vinnu. Tekjulega séð eru það þó vindmyllurnar þrjár sem mala gull en hver þeirra er 2,3 megavött og þó svo að þær séu ekki í eigu búsins heldur í eigu einkafyrirtækis þá skila þær töluvert miklum tekjum til búsins þar sem fyrir hverja þeirra er greidd hlunnindagjald vegna nýtingar á vindi og landi. Heildartekjurnar vegna þessara hlunninda nema 90 þúsund pundum á ári eða rúmum 12 milljónum íslenskra króna! Selur helming lambanna um mitt sumar Til búsins heyra tvö ársverk sem Skotlandsferð Samtaka ungra bænda – síðari hluti Á FAGLEGUM NÓTUM Sauðfjárbændurnir Iain og Marion MacDonald tóku, líkt og allir aðrir bændur sem voru heimsóttir í ferðinni, afar myndarlega á móti hópnum og buðu bæði upp á mat og drykki. Veislusalurinn að þessu sinni var þurrkskemma búsins, en skemma þessi er notuð til þess að þurrka timbur, sem vélageymsla og nýtist auk þess á sauðburði. Mynd / Iain MacDonald Andrew McGregor sýnir hér gestunum aðstöðuna fyrir kýr í geldstöðu. Mynd / SS Hér sýnir kúabóndinn Dougie Frame nokkra af sínum afar myndarlegu Aberdeen Angus-uxum. Mynd / SS Iain hafði undirbúið heimsóknina afar vel og var m.a. með tvo lambhrúta í spili til sýnis fyrir íslensku gestina. Mynd / SS þessa festigrind sem hann notar í fjárragi. Einar, formaður Samtaka ungra bænda, fékk að „taka í“. Mynd / SS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.