Bændablaðið - 16.11.2017, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Dagana 20. til 23. október sl. stóðu
Samtök ungra bænda á Íslandi
fyrir helgarferð til Skotlands
og var tilgangur ferðarinnar að
kynnast þarlendum landbúnaði
sem og að njóta lítils hluta þess
sem Skotland hefur upp á að
bjóða.
Alls voru 32 ungir bændur með
í för og komu þeir víðs vegar að
af landinu og frá ýmsum greinum
íslensks landbúnaðar. Hér á eftir fer
síðari hluti samantektar um þessa
ferð en fyrri hluti umfjöllunarinnar
birtist í síðasta Bændablaði.
„Ungi bóndi Skotlands 2016“
Önnur bændaheimsókn ferðarinnar
var til Andrew McGregor sem býr á
búinu Eastlaw og rekur þar blandað
bú ásamt föður sínum. Samtals eru
þeir með 160 kýr, 300 kindur og 220
hektara lands, þar af um 40 hektara
af hveitiframleiðslu.
Kindurnar eru mest notaðar í
skiptibeit á móti kúnum, þ.e. til að
hreinsa upp hagann eftir að kýrnar
hafa verið á beit. Andrew þessi var
valinn „Ungi bóndi Skotlands 2016“
en þá viðurkenningu hlýtur árlega
einn ungur bóndi sem hefur staðið
sig einkar vel í félagsmálum ungra
bænda og þar hefur Andrew einmitt
verið einkar virkur og sem var ein
af ástæðum þess að hann var sóttur
heim í þessari ferð.
Stefnir á stækkun eftir Brexit
Andrew sýndi hópnum bú sitt
og ræddi um framtíðina nú þegar
Brexit er handan við hornið. Hann
telur fullvíst að framtíð búsins liggi
í því að fjölga kúnum og hætta með
sauðféð og telur hann að 3–400
kúa bú sé raunhæft markmið fyrir
Eastlaw-búið.
Með Brexit skapist ákveðin
tækifæri til að efla innlenda
landbúnaðarframleiðslu í Stóra-
Bretlandi og koma í veg fyrir eða
draga úr innflutningi landbúnaðarvara
frá öðrum löndum. Það skapi
heimamönnum aukið svigrúm til
þess að efla bú sín og stækka. Þessi
staða muni vissulega einnig gagnast
þeim bændum á Stóra-Bretlandi
sem eru í lambakjötsframleiðslu en
Andrew telur þó að bú hans henti
betur til mjólkurframleiðslu enda
sé ekki gott að vera með dreifðar
áherslur hvað varðar vinnu, en það
geti þó verið kostur tekjulega séð að
dreifa áhættunni.
Selja mjólkina til einkaaðila
Þeir feðgar selja mjólkina í
einkarekna afurðastöð og eru með
fastan samning sem skilar þeim
25 pensum, eða um 34 krónum
á lítrann næstu 2 árin og fá þeir
þetta lágmarksverð fyrir 50%
framleiðslunnar. Fyrir hinn hluta
mjólkurinnar borgar afurðastöðin
markaðsverð, sem er nú 31 pens,
eða um 42 krónur á lítrann.
Aðspurður um núllpunkt búsins,
þ.e. hvaða lágmarksverð þurfi til svo
að búið tapi ekki á framleiðslunni,
sagði Andrew hann hafa verið 21
pens í fyrra. eða um 29 krónur á
lítrann. Staðan væri því sem stendur
afar góð og búið væri rekið með
góðum hagnaði.
Gamalt mjaltakerfi
Þegar mjaltaaðstaðan var skoðuð
mátti glögglega sjá að hún hafði átt
betri daga en um var að ræða gamlan
2x9 mjaltabás og í honum er einn
maður að mjólka þessar 160 kýr um
tvo tíma á morgnana og heldur styttri
tíma á kvöldin.
Meðalnytin er um 8.700 lítrar
en Andrew er með Holstein kýr.
Þetta er heldur lág nyt miðað við
þetta kúakyn og sagði Andrew að
skýringin lægi í því að búið notaði
nánast ekkert aðkeypt fóður. Kýrnar
fá heilskorið hveiti, heilskorið
bygg og hefðbundið vothey sem
uppistöðuna í fóðrinu og fá svo
örlítið að aðkeyptu próteini. Fyrir
vikið séu þær ekki keyrðar upp í
nyt, en þetta kúakyn getur hæglega
skilað 3–4 þúsund lítrum að jafnaði
til viðbótar með krafmeiri fóðrun.
3F er lykillinn að árangri
Þessi magnaði ungi bóndi var
greinilega með afar góða stjórn á
búrekstrinum og aðspurður að því
hvernig hann gæti framleitt mjólkina
jafn ódýrt og hann gerði sagði
hann að lykillinn lægi í „effunum
þremur“: frjósemi, fóðri og fóðrun.
Ef kúabóndinn væri með þessi þrjú
grunnatriði í huga dag hvern og
passaði að frjósemin væri góð, að
fóðrið hentaði kúnum og væri ódýrt
ásamt því að fóðra kýr og geldneyti
rétt og vel þá næði maður árangri.
Kjötframleiðsla í sérflokki
Frá Andrew var haldið til annars
ungs bónda sem býr á bænum Birks
sem er næsti bær við Eastlaw. Þar
býr Dougie Frame en hann er með
120 Aberdeen Angus kýr ásamt
öllu uppeldi. Til búsins heyra 200
hektarar af landi sem er nýtt bæði
til fóðurframleiðslu og beitar og
eru kýrnar úti mestan part ársins en
geldneytin tekin á hús yfir veturinn.
Þá eru á búinu einnig 200 ær en hann
notar þær fyrst og fremst til þess að
hreinsa upp beitarsvæðin eftir kýrnar
og kálfana.
Geldir öll naut
Í Skotlandi má nota teygju til að
gelda naut og er það gert við öll
naut og er hann því einunig með
uxa og kvígur í kjötframleiðsunni.
Fyrir vikið þarf Dougie því að
kaupa þarfanautin að frá sérstökum
ræktunarbúum. Þetta er afar algengt
að gert sé í Skotlandi, þ.e. bændurnir
sem eru í kjötframleiðslu eru ekki
í kynbótarækt heldur kaupa að þá
gripi sem nota á til framleiðslunnar.
Í þessar 120 kýr og kvígur notar hann
3–4 naut og hefur hann markvisst
unnið að því að efla frjósemina með
því að taka allar ásetningskvígur frá
nautunum eftir 2 gangmál. Þær eru
svo skannaðar 5 vikum síðar og
ef þær eru ekki með staðfest fang
eru þær settar í sláturhús. Þetta
hefur verið gert á búinu í mörg ár
og hefur þessi aðferð skilað búinu
afar góðri frjósemi. Þá hefur hann
markvisst slátrað þeim gripum sem
hefur þurft að hjálpa við burð og
hefur það einnig gert burðarvertíðina
mun auðveldari. Þannig þurfti t.d. í
vor einungis að aðstoða við 3 burði
af 120.
Vottað skoskt nautakjöt
Öllum sláturgripum er slátrað 23–24
mánaða gömlum og er fallþunginn
þá í kringum 360–370 kg en sé
fallþunginn meiri lækkar verðið.
Skýringin felst m.a. í því að búið
er í sérstöku gæðavottunarkerfi
sem gefur rétt til notkunar á heitinu
skoskt nautakjöt en slík vottun er
ávísun á hærra verð, en til þess að
geta selt kjöt með þessari vottun
þarf að uppfylla ýmis skilyrði s.s.
um fallþunga, aðbúnað og fleiri atriði
sem ekki verða tíunduð frekar hér.
Elstu kýrnar borið 10 kálfum
Dougie hefur í nokkur ár ræktað
sérstaklega fyrir eiginleikum
sem lúta að endingu kúnna s.s.
sterkbyggðu göngulagi og léttum
burði. Þetta er þegar farið að skila sér
í aukinni endingu og hafa t.d. elstu
kýrnar borið 10 kálfum og láta ekkert
á sjá að hans sögn. Aðspurður um
reksturinn þá sagðist hann vera sáttur
en samkvæmt uppgjöri SAC (þeirra
RML) er búið í besta þriðjungi meðal
skoskra holdanautabúa þegar horft er
til hagkvæmni og afkomu.
Vindmyllur líka landbúnaður
Síðasta búið sem var heimsótt í
þessari ferð var bú hjónanna Iain
og Marion MacDonald en þau eru
með skemmtilega blandað bú sem
samanstendur af sauðfé, skógrækt og
vindmyllum! Bú þetta, sem kallast
Ardoch, er með 700 ær og er sá hluti
búskaparins umfangsmestur amk.
hvað varðar vinnu. Tekjulega séð eru
það þó vindmyllurnar þrjár sem mala
gull en hver þeirra er 2,3 megavött og
þó svo að þær séu ekki í eigu búsins
heldur í eigu einkafyrirtækis þá skila
þær töluvert miklum tekjum til búsins
þar sem fyrir hverja þeirra er greidd
hlunnindagjald vegna nýtingar á
vindi og landi. Heildartekjurnar
vegna þessara hlunninda nema 90
þúsund pundum á ári eða rúmum 12
milljónum íslenskra króna!
Selur helming lambanna
um mitt sumar
Til búsins heyra tvö ársverk sem
Skotlandsferð Samtaka ungra bænda – síðari hluti
Á FAGLEGUM NÓTUM
Sauðfjárbændurnir Iain og Marion MacDonald tóku, líkt og allir aðrir bændur sem voru heimsóttir í ferðinni, afar myndarlega á móti hópnum og buðu bæði
upp á mat og drykki. Veislusalurinn að þessu sinni var þurrkskemma búsins, en skemma þessi er notuð til þess að þurrka timbur, sem vélageymsla og
nýtist auk þess á sauðburði. Mynd / Iain MacDonald
Andrew McGregor sýnir hér gestunum aðstöðuna fyrir kýr í geldstöðu.
Mynd / SS
Hér sýnir kúabóndinn Dougie Frame nokkra af sínum afar myndarlegu
Aberdeen Angus-uxum. Mynd / SS
Iain hafði undirbúið heimsóknina afar vel og var m.a. með tvo lambhrúta í
spili til sýnis fyrir íslensku gestina. Mynd / SS
þessa festigrind sem hann notar í fjárragi. Einar, formaður Samtaka ungra
bænda, fékk að „taka í“. Mynd / SS