Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Hinn 26. október sl. er frétt í
Skessuhorni þar sem vitnað
er til þess að aðalfundur
Landssambands smábátaeigenda
taki undir þá ályktun Sæljóns,
smábátafélags Akraness, að felld
verði úr gildi þau friðunarákvæði,
þ.e. tímamörk, sem gilda um
grásleppuveiðar og verndun
æðarvarps við Faxaflóa og víðar.
Minnt skal á að æðarrækt er
mikilvæg búgrein víða um land.
Við Faxaflóa eru fjölmargar jarðir
sem hafa hlunnindi af æðarvarpi
sem skila bændum og þjóðarbúinu
tekjum en æðardúnn er eftirsótt
útflutningsafurð. Auk þess er
allt Faxaflóasvæðið mikilvægt
„beitar- og uppeldissvæði“ fyrir
æðarfugl og fleiri fugla sem þar
eiga athvarf sitt. Tíminn snemma
vors og fram á sumar er sérstaklega
viðkvæmur fyrir varpfugla. Þekkt
er að æðarfugl frá öðrum svæðum
leiti inn á Faxaflóasvæðið bæði
fyrir og eftir varp, enda er þetta
svæði kjörlendi fyrir uppeldi
og athvarf bæði æðarfugls og
annarra fugla. Því eru það ekki
eingöngu hagsmunir æðar bænda
á svæðinu að vernda æðarfuglinn
yfir viðkvæmasta tímann, heldur
einnig annarra bænda sunnan og
norðan við flóann.
Þá er það einnig þekkt að
netaveiðar á grunnslóð eru æðarfugli
og öðrum fuglum hættulegar, bæði
hvað varðar fugla sem farast í netum
og einnig sú truflun og rask sem
netabátum fylgir. Í könnun sem
Haf rannsókna stofnun gerði á sínum
tíma á Breiðafirði og Húnaflóa
kom fram að umtalsverður fjöldi
fullorðinna fugla (varpfugla)
á svæðunum fórst í grásleppu-
netum. Í ljósi þessara stað reynda
voru núgild andi reglur settar. Með
slíkum umgengnis reglum fæst
nauðsyn leg vernd fyrir æðarfugl og
jafnframt sátt á milli aðila sem nýta
mismunandi hlunninda. Einnig skal
bent á skýrslu nefndar um vernd ,
velferð og veiðar villltra fugla og
spendýra frá 2013 en þar kemur
fram að hér við land eru lagnet fyrir
þorsk, ýsu og grásleppu sennilega
þau veiðarfæri sem hafa hvað
neikvæðust áhrif á fugla og bent
á að grásleppunet drepi helst teistu
og æðarfugl. Jafnframt er þar tekið
fram að grásleppuveiði hafi aukist
og verði að líta á þær sem vaxandi
vandamál, sérstaklega fyrir teistu
og æðarfugl.
Í þessu máli vegast á ólíkir
mikilvægir hagsmunir. Það hlýtur
að veikja samþykkt aðalfundar
Landsambands smábátaeigenda að
halda því fram að „lobbyismi“ hafi
ráðið banninu þegar það liggur fyrir
hversu mikilvæg þessi verndun sé
fyrir æðarfuglinn og viðkomu hans.
Í þessum orðum felst að ráðherra
hafi látið annað en málefnaleg rök
ráða við setningu reglugerðarinnar.
Er þessi málflutningur ekki síður
vafasamur í ljósi þess að á sínum
tíma stóðu yfirvöld, í samráði við
viðkomandi aðila, að því að setja
umræddar reglur til þess að ná sátt
um hlunnindanýtingu ólíkra greina
og að öll hlunnindi séu nýtt í sem
mestri sátt við viðkvæma náttúru.
Svanur Steinarsson,
formaður Æðarræktarfélags
Vesturlands og
Guðrún Gauksdóttir,
formaður Æðarræktarfélags
Íslands
Varað við afléttingu banns við netaveiði í friðuðum hólfum við Faxaflóa:
Hlunnindi verði nýtt í sem mestri sátt við viðkvæma náttúru
– Formenn hagsmunasamtaka í æðarrækt senda frá sér yfirlýsingu um málið
HLUNNINDI&VEIÐI
Netaveiðar á grunnslóð eru æðarfugli og öðrum fuglum hættulegar, bæði hvað varðar fugla sem farast í netum og
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Vetrarundirbúningur
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
S805-10D 135cm
ál snjóskófla
2.595
S805-4L 170CM
ál snjóskafa
2.190
Hálkusalt 5 kg
585
Rúðuvökvi -18°C
4 lítrar
740
S805-2Y ál
snjóskófla L:110cm
2.190
Dali Snjóskafa/
kústur 59cm
440
Rafmagnshita-
blásari 3Kw 1 fasa
8.890