Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Í síðustu viku kom fyrsta hálkan
í Reykjavík og alltaf við þær
aðstæður voru margir óviðbúnir
á illa útbúnum bílum til aksturs í
snjó og hálku. Við þessar aðstæður
koma saltbílar út á göturnar
snemma á morgnana og salta sem
flestar götur borgarinnar.
Fyrir nokkuð mörgum árum
sagði við mig maður norðan úr landi
að á veturna keyrði hann á Akranes
og tæki þaðan Akraborgina bíllaus
síðasta spölinn því hann vildi ekki
pækilsalta bílinn sinn.
Saltið mýkir upp göturnar svo að
það heyrist minna í nöglunum
eftir söltun
Síðustu sex vikur hafa hjól-
barðaverkstæðin í Reykjavík verið
að skipta undir bílum þeirra forsjálu.
Að sögn starfsmanna verkstæðanna
hefur dekkjasala aldrei verið eins
mikil og nú í haust, en nálægt
helmingur seldra dekkja eru
nagladekk þrátt fyrir áróður gegn
nagladekkjanotkun í Reykjavík.
Á þessum sex vikum var
því kominn mikill fjöldi bíla á
nagladekk sem keyrði um auðar
götur Reykjavíkur á nöglum. Þrátt
fyrir allan þennan fjölda af bílum á
nagladekkjum var ekki að sjá í stilltu
veðri fyrstu helgina í nóvember að
neitt svifryk lægi yfir borginni.
Nú er búið að moka salti á
göturnar frá fimmtudeginum 9.
nóvember og fram á sunnudaginn
12. Fyrir þá sem eru næmir á bíla
sína eru til ökumenn sem finna að
með öllum þessum saltaustri mýkist
malbikið (allavega heyrist minna
í nagladekkjum á malbiki eftir að
búið er að salta).
Er svifrykið saltinu að kenna?
Til eru nokkrir sem vilja staðhæfa
að með söltun sé verið að leysa upp
tjöruna í malbikinu. Eftir verður
mölin og fínn sandurinn sem gerir
þetta svifrik sem oft sést liggja yfir
bænum á björtum stilltum dögum.
Við þessa kenningu verður til
spurning um hversu umhverfisvænt
er að salta göturnar. Tjaran verður
eftir á dekkjunum, á bílunum,
snjónum og síðan í jarðveginum
ýmist með bráðnun á snjónum eða
þegar bíleigendur þrífa bílana með
leysiefnum (tjaran er í raun tegund
af olíu og ef nokkrir lítrar af olíu
fara í læki eða sjó er almennt talað
um olíuslys). Persónulega vil ég
taka undir þessar kenningar og vil
allt salt burt af götunum.
Ekkert salt og allir á nöglum
Stór finnsk könnun á banaslysum
í finnskri vetrarumferð um notkun
nagladekkja sýndi að 30% færri
banaslys eru hjá þeim sem eru á
nöglum en hjá þeim sem aka um
á ónegldum vetrardekkjum. Á
Akureyri hefur til margra ára ekki
verið saltaðar götur, eins og allir
vita stendur Akureyri inni í firði og
töluvert skjólsælla er á Akureyri en í
Reykjavík. Aldrei minnist ég þess að
hafa séð fréttir af svifryki á Akureyri
vegna nagladekkjanotkunar.
Undirvagnar á bílum Akureyringa
eru mun minna ryðgaðir en undir
bílum Reykvíkinga sem keyra í
saltpækli nánast allan veturinn
með tilheyrandi ryðmyndun
á öllum undirvagni bílanna.
Miðað við ofangreinda kenningu
er Reykjavíkurborg að spilla
vísvitandi jarðvegi með því að salta
þannig að olía í miklu magni fer í
jörð daglega.
Vetrardekkjareglugerðin
er að lágmarki 3 mm
Ég vildi óska að einhver mér
fremri í eðlis- og efnafræði gæti
hrakið allt það sem hér að ofan er
ritað og mér verði gert að éta öll
þessi skrif ofan í mig. Allavega
hjálpar að vera duglegur að skola
með volgu vatni bremsubúnað
og undirvagn reglulega sé ekið á
höfuðborgarsvæðinu (ef komið er
í stutta heimsókn í „saltborgina“ er
gott að skola undirvagninn við fyrsta
tækifæri).
Það ætti hins vegar að vera öllum
ljóst að þann 1. nóvember 2014 tók
í gildi reglugerð um vetrardekk, en í
þessari reglugerð segir að ekki megi
vera minna munstur í hjólbörðum á
veturna en 3 mm munstursdýpt. Það
gildir frá 1. nóvember til 15. apríl.
Er söltun á götum umhverfissóðaskapur?
Bændablaðið
kemur næst út 30. nóvember
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
KRYDD-
BLANDA STÆKKA BLAÐUR ÚTVORTIS SÁLDRA SKRÁ MJAKA
SVOPN K A M M B Y S S A
LGJALDA A U N A TIFUMFRAM T I K K
ARÓL R K S Y R G J A
R A M MÖRHRÓP F I T A LJÓÐUR
PRAKKARI
LEYFI
SPRIKL F R Í ÁLAGSAKEYRIR O K I EINKARFÚSKA A L L
Í RÖÐHÁMA
F
ÍÞRÓTTA-
FÉLAG
ÓFORSJÁLNI
TREGA
TÓN-
TEGUND
S P I L A DRABBNOKKRIR S L A R K STRIT ÓNÁÐA ÝLEIKA
T Ú Ð A FJALLÞJÁNINGA F E L L VIÐBÓTTUNGUMÁL Á B Ó TSTÚTUR
O K
SKIKI
FÖST
STÆRÐ S K Á K
KROPPUR
INNIHALD L Í K A M IKLAFI
R I F MERKIGRUFLA V I T I SKARASPILLA R A K A TALABEIN
M SEYTLARREISA A G A R ODDILÓN N E S HALLANDIKAFMÆÐI S K Á
A F S A L MJAKA H N I K A ÓLÆTIBLEKKING A TAF-HENDING
L E T R A HRÆÐASTÁTT Ó T T A S T TVEIR EINS TSKRIFA
D
A
R
Ð
I
V
F
A
NAUMUR
R
S
A
P
KRYDD
A
K
R
A
LITA
N
M
I
Á
L
L
L
AFJÚK
VARA VIÐ
72
Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta - Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
20%
afsláttur af öllum dekkjum
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412
Jeppadekk
35x12,5x15
Double Star
vörbíladekk
Double Star
Vinnu- og
dráttarvéladekk
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
MYNDA-
BÓK VELJA FISKA MÁNUÐUR NÆSTUM DANS TVEIR
NÁÐAR-
MEÐAL
FLEYGA
LÍFSHLAUP
LOSA
HLJÓÐ-
FÆRI RÍKJA
GÁSKI
LÖNG
INNI-
LEIKUR
ANGAR
HLJÓTA
SÝKJA
BLUND
ÓREIÐAVERKFÆRI
KÁKA
SPYRJA
MÆLI-
EINING
KRASSA
HYLLI
FITA
ANSA
HEILU NUDDASTSLÉTTA
KÆRLEIKS-
ÞEL
SAMBAND
FUGL
KVEÐJA
ÓGÆFA
NEITUN
KK NAFN
HITA
HRÓ
NUDD
BORÐA
ÚT
HARLA
HAMINGJA
SKAMMT
MYNTSKEL
SKARÐ
NABBI
ÓNÆÐI
ÞEI
HEITI
AÐ BAKI
BEITA
DRYKKUR
GYÐJA
STAÐ-
FESTA
SANDMÖL
LÍKA
ÁTTBRASKA
RAUP
ÁMA
TIL SÖLUSJÁ EFTIR
DUL
73