Bændablaðið - 16.11.2017, Side 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Mini er ekkert nýtt nafn í
bílaflota Íslands, en upp úr 1960 var
Garðar Gíslason, stórkaupmaður á
Hverfisgötu 4–6, með umboð fyrir
bresku Austin-verksmiðjurnar.
Austin Mini var vinsæll og ódýr
bíll hér á Íslandi fram undir 1970.
Fyrstu Mini-bílarnir voru með
kraftlitla 850cc vél og á 10 tommu
felgum sem hentuðu ekki vel fyrir
íslenska vegi. Fyrir vikið var það
„Bjallan“ frá Volkswagen sem hafði
vinninginn í smábílasölunni.
Frá síðustu aldamótum hefur
Mini verið í eigu BMW og náð
töluverðum vinsældum. Árið 2012
byrjaði vel fyrir Mini, en þá varð
Mini X-Raid í fyrsta og öðru sæti í
hinu fræga Dakarralli. Árið eftir var
Mini í fjórum fyrstu sætunum í sömu
keppni, en allt frá því hefur mig
langað til að prófa fjórhjóladrifinn
Mini.
Fjórhjóladrifið er samspil tveggja
véla
Að keyra bílinn er nánast hljóðlaust,
í rólegum akstri byrjar bíllinn á að
nota rafmagnsmótorinn sem hefur
um 40 km drægni fullhlaðinn, en
ef farið er upp fyrir 80 km hraða
kemur bensínmótorinn inn. Sé
allt gefið í botn úr kyrrstöðu fer
bensínmótorinn strax í gang til að
auka kraft og snerpu. Ólíkt öllum
öðrum fjórhjóladrifnum bílum
stjórnast fjórhjóladrifið af annars
vegar 1,5 lítra þriggja strokka
turbo-bensínvél sem skilar 136
hestöflum sem er framhjóladrifið.
Afturhjólunum stjórnar svo 88
hestafla rafmótor sem er aftast
í bílnum ásamt rafhlöðunni.
Samanlagt eru þessar vélar tvær
224 hestöfl sem getur sett bílinn úr
kyrrstöðu í 100 km hraða á 6,8 sek.
Ótrúlega stöðugur í hálku og á
möl
Bíllinn sem ég fékk um síðustu helgi
hjá BL og prófaði við frekar erfiðar
aðstæður kom mér verulega á óvart.
Eftir að hafa reynt bílinn innanbæjar
fór ég út fyrir bæinn til að finna vel
hálan veg og meiri snjó. Á leiðinni
út úr bænum mældist þessi bíll
með aðeins 57–59 desíbela hávaða
inni í bílnum á 90 km hraða, sem
er með lægstu mælingum sem ég
hef tekið í bíl á þessum hraða. Á
malarveginum var mælingin 64–66
db.
Það var sama hvar ég reyndi
bílinn, alltaf var hann betri en
það sem ég fyrirfram hafði gert
mér í hugarlund. Á flughálum
hlykkjóttum veginum við
Ármannsfell haggaðist bíllinn ekki
og sama hvað ég reyndi þá rann
hann aldrei til og tók aldrei spól.
Á lausum malarvegi fór
skriðvörnin strax í gang og hélt
bílnum réttum í gegnum beygjuna
sem ég reyndi bílinn á og þegar
snúið var við og skriðvörnin
tekin af var það sama sagan, smá
hliðarskrið, en ótrúlega stöðugur.
Góðu punktarnir mun fleiri en
þeir slæmu
Eftir 100 km akstur þá var
meðaleyðsla á mín. 10,2 lítrar.
Þarna var um grófan akstur og
mikla spyrnugleði að ræða, en
þetta var bara svo gaman með
stillinguna á sporttakkanum. Þegar
ég skilaði bílnum 50 km síðar, var
ég kominn niður í 9,1 lítra eyðslu.
Það er örugglega hægt að ná bílnum
mun neðar sé einhver skynsemi í
akstrinum.
Það er svo margt í þessum bíl
sem er gott og vandað, en fyrst vil
ég nefna að öll ljós eru LED og lýsa
afar vel. Bara að muna að kveikja
ljósin einu sinni og
hafa ljósarofann
alltaf á ON því að
þegar drepið er á
bílnum slokkna
ljósin sjálfkrafa þó
að takkinn sé á ON.
Hljómtækin eru
hreint frábær og
ekki man ég eftir
neinum bíl sem
hefur verið með
sætishitara sem er
eins fljótur að hitna eins og í þessum
bíl.
Aðeins tvennt fann ég að
þessum bíl, ekkert varadekk, aðeins
rafmagnspumpa og límvökvi til að
gera við. Bensíntankurinn er ekki
nema 36 lítrar, en mætti vera 10
lítrum stærri. Svo er bíllinn aðeins
að sóða sjálfan sig of mikið upp á
hliðar.
Verð og helstu mál
Bíllinn sem prófaður var heitir MINI
COOPER SE COUNTRYMAN
ALL4 og kostar 5.590.000,
en ódýrasti Mini er á verði frá
3.890.000. Það er margt ósagt um
þennan bíl og fyrir áhugasama sem
vilja fræðast meira um bílinn er best
að leita á vefsíðunni www.bl.is.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bakkmyndavélin sýnir vel aftur og rauða línan möguleika á beygju.
Uppáhaldsstillingin hjá mér, en kostaði aðeins of mikið bensín.
Aksturstíminn, eyðslan í lok prufuaksturs.
Michelin Alpin naglalausu snjódekkin eru einhver bestu óneglanlegu vetrar-
dekkin á markaðnum.
LED ljósin að aftan eru stór og sjást vel.
Gamalt rótgróið merki sem margir þekkja
Þyngd 1.735 kg
Hæð 1.559 mm
Breidd 1.822 mm
Lengd 4.299 mm
Helstu mál og upplýsingar
Mini Cooper SE Countryman All4. Myndir / HLJ