Bændablaðið - 16.11.2017, Page 1
22. tölublað 2017 ▯ Fimmtudagur 16. nóvember ▯ Blað nr. 503 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
EFTA-dómstóllinn telur að íslensk lög gangi of langt í skilyrðum varðandi innflutning landbúnaðarafurða:
Viðskipta- og lögfræðihagsmunir
eru meira metnir en lýðheilsa
– segir Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði og yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans
Þriðjudaginn 14. nóvember var
kveðinn upp dómur hjá EFTA-
dómstólnum. Komst dómstóllinn
að þeirri niðurstöðu að íslenska
leyfisveitingakerfið fyrir
innflutning á hrárri og unninni
kjötvöru, eggjum og mjólk
samrýmdist ekki ákvæðum EES-
samningsins.
Karl G. Kristinsson, prófessor í
sýklafræði og yfirlæknir sýkla- og
veirufræðideildar Landspítalans,
sagði í samtali við Bændablaðið að
niðurstaða EFTA-dómstólsins sýni
að viðskiptahagsmunir og lögfræðin
vegi þyngra en sjónarmið lýðheilsu.
Slæm niðurstaða út frá
sjónarmiði lýðheilsu
„Niðurstaða dómsins er slæm út frá
sjónarmiði lýðheilsu og íslensks
landbúnaðar, þótt niðurstaðan sé
væntanlega lagalega séð rétt. Með
því að gefa innflutninginn frjálsan er
verið að auka líkurnar á því að margs
konar sýklar geti borist til landsins
í menn og dýr. Úr því að þetta er
niðurstaðan verður að leita leiða til
þess að draga
eins og hægt
er úr líkunum
á því að sýklar
og sýklalyfja-
ónæm ar bakt-
eríur berist
til landsins í
auknum mæli
og herða eftirlit
með því.“
Karl segir
að áhr i f
dómsins séu tvenns konar að hans
mati. „Annars vegar aukning á
súnum eða bakteríum sem sýkja
bæði menn og dýr. Slíkar bakteríur
eru algengari erlendis en á Íslandi og
því má búast við talsverðri aukningu
á þeim. Í því sambandi er vert að hafa
sérstaklega áhyggjur af innflutningi
á ferskum kjúklingum og satt best að
segja hef ég langmestar áhyggjur af
þeim innflutningi. Innflutningur á
ferskum kjúklingum getur hæglega
stefnt í hættu þeim ströngu reglum
sem viðhafðar eru í kjúklingaeldi
hér á landi. Kjúklingaeldið hér er
nánast kampýlóbakter-laust og
mælist undir 5%, en hefur til dæmis
mælst 75% í verslunum í Bretlandi
og víðar í Evrópu. Það er því nokkuð
ljóst að innflutningur á ferskum
kjúklingum er líklegur til að fjölga
kampýlóbakter-tilfellum í landinu.
Hins vegar er notkun á sýkla-
lyfjum mun meiri, sérstaklega í
Suður-Evrópu, í Evrópusambandinu
en hér á landi. Þegar kemur að
innflutningi á hráu kjöti, sérstaklega
kjúklingum, getur verið erfitt að
komast hjá því að fluttar verði inn
afurðir með bakteríum ónæmum
fyrir fjölmörgum sýklalyfjum.“
Miklar áhyggjur
Ég hef einnig miklar áhyggjur af
mögulegum innflutningi á ýmiss
konar örverum sem ekki eru
landlægar í íslenskum búfénaði sem
geta borist hingað með hráu kjöti og
í búféð,“ segir Karl G. Kristinsson.
Íslensk lög ekki talin standast
tilskipun um innri markað
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
krafðist viðurkenningar á því að
íslenska ríkið hefði brotið gegn
5. gr. tilskipunar ráðsins 89/662/
EBE frá 11. desember 1989 um
dýraheilbrigðiseftirlit í viðskiptum
innan bandalagsins samkvæmt
tilskipun um innri markað.
Mótmælti ESA því að íslenska
ríkið viðhéldi leyfisveitingakerfi
vegna innflutnings á hráu kjöti og
kjötvörum. Einnig vegna innflutnings
á hráum eggjum og hráum
eggjavörum, leyfisveitingakerfi
vegna innflutnings á ógerilsneyddri
mjólk og mjólkurafurðum unnum
úr ógerilsneyddri mjólk. Þá voru
viðbótarkröfur vegna innflutnings
ákveðinna ostategunda og banns
við markaðssetningu á innfluttum
mjólkurafurðum sem unnar væru
úr ógerilsneyddri mjólk. Sem og
stjórnsýsluframkvæmd sem gerði
innflytjendum skylt að leggja fram
vottorð og sækja um leyfi til þess
að flytja inn meðhöndluð egg
og mjólkurafurðir. Íslenska ríkið
mótmælti framangreindum kröfum
ESA.
Hvað varðaði fyrstu þrjár
kröfur ESA þá taldi dómstóllinn að
íslensk löggjöf fæli í sér bann við
innflutningi á hrárri kjötvöru, eggjum
og mjólk. Hins vegar mælti EFTA-
löggjöfin fyrir um að innflutningur
á slíkum vörum gæti verið heimill
að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Dómstóllinn komst því að þeirri
niðurstöðu að leyfisveitingakerfið
á Íslandi væri ósamrýmanlegt 5.
gr. tilskipunarinnar. Hins vegar
taldi dómstóllinn að bann við
markaðssetningu sem vísað væri til
í þriðju kröfu ESA fæli ekki í sér
eftirlit með dýraheilbrigði í skilningi
tilskipunarinnar og var þeirri kröfu
því hafnað.
Hvað varðaði fjórðu kröfu ESA
um innflutning eggja og mjólkurvara
var bent á að íslensk stjórnvöld
krefðust þess að umræddar vörur
séu meðhöndlaðar í samræmi við
íslensk lög. Dómstóllinn komst að
þeirri niðurstöðu að slík framkvæmd
fæli í sér eftirlit með dýraheilbrigði
umfram það sem leyfilegt væri
samkvæmt 5. gr. tilskipunarinnar.
/VH/HKr.
– Sjá frekari viðbrögð bls. 4
Þorskurinn er kóngurinn hér
22
Karl G. Kristinsson.
Angus-fósturvísarnir
komnir til landsins
Laugardaginn 11.
nóvember sl. komu
hingað til lands
40 fósturvísar
af Angus-holda-
n a u t a k y n i n u .
Fyrirhugað er
að setja þá upp á
næstu vikum í kýr
í nýrri einangrun-
ar stöð Nautgripa-
ræktar miðstöðvar
Íslands ehf. á Stóra-
Ármóti í Flóa.
Það félag er í jafnri
eigu Bændasamtaka
Íslands, Búnaðar sambands
Suðurlands og Lands sambands
kúa bænda. Markmiðið með þessu
verkefni er að skjóta styrkari stoðum
undir íslenska nautakjötsframleiðslu
en Angus-kynið þykir hentugt
beitarkyn, með léttan burð, góða
flokkun og rómuð kjötgæði. /BHB
– Fyrirhugað er að setja þá upp á næstu vikum í kýr í nýrri einangrunarstöð
Nýja einangrunarstöðin er skammt frá Stóra-Ármóti.
Mynd / MHH
Sigurður Loftsson, bóndi og formaður stjórnar Nautgriparæktar-
miðstöðvar Íslands og Baldur Helgi Benjamínsson, búfjár-
erfðafræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssambands
kúabænda, með köfnunarefniskútinn sem geymir fósturvísana.
sem veitti þeim viðtöku. – Sjá nánar um stöðina á bls. 4 Myndir / Sveinn Sigurmundsson.
Vörusmiðja BioPol á
Skagaströnd eykur tækifæri
matvælaframleiðenda
28–29
Áskorun
tuttugustu og
fyrstu
aldarinnar
46–47