Bændablaðið - 16.11.2017, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Brynjar Ómarsson, forstöðumaður plöntusjúkdómasviðs Matvælastofnunar:
Tvenns konar veirusmit finnst í
tómatarækt á skömmum tíma
– Ekki skaðlegt mönnum en Matvælastofnun biður kartöfluræktendur að gæta að mögulegu krosssmiti
Frá og með 2022 verður öll
notkun á illgresiseitrinu glyfosat
bönnuð í landbúnaði í löndum
Evrópusambandsins. Glyfosat
er meðal annars virka efnið í
Roundup sem margir Íslendingar
þekkja.
Leyfi til að nota efnið verður
ekki endurnýjað innan aðildarríkja
Evrópusambandsins þar sem hreinn
meirihluti fyrir endurnýjun þess
náðist ekki í atkvæðagreiðslu. Lönd
sem meðal annarra voru hliðholl
áframhaldandi notkun efnisins voru
Danmörk, Bretland og Holland en
lönd á móti meðal annarra, Belgía,
Frakkland, Ítalía og Lúxemborg.
Málið fer fyrir áfrýjunarnefnd
í nóvember, en að öllu óbreyttu
mun leyfið renna út 15. desember
næstkomandi.
Rannsóknir sýna að leifar af efninu
finnast í um 45% af ræktunarjarðvegi
í Evrópu og rannsóknir á
vegum Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar og Alþjóðastofnunar
um krabbameinsrannsóknir
benda til að efnið geti verið
krabbameinsvaldandi. /VH
Staðfest hefur verið tvenns konar
veirusmit í tómötum hér á landi á
skömmum tíma. Í seinna tilfellinu
er um að ræða veirung sem kallast
Potato spindle tuber viroid, eða
spóluhnýðissýking, sem getur
smitast í kartöflur.
Eins og greint hefur verið frá í
Bændablaðinu kom fyrr í haust upp
veirusýking í tómötum sem kallast
Pepino mósaík vírus og sú sýking
staðfest á flestum tómatabýlum á
Suðurlandi.
Staðfest er að önnur sýking
Potato spindle tuber viroid hafi verið
greind á tómatabýli á Suðurlandi.
Potato spindle tuber viroid getur
lagst bæði á tómata og kartöflur en
Pepino mósaík vírus er bundinn við
tómata.
Samkvæmt heimildum Bænda-
blaðsins greindist PSTV sýkingin
nánast fyrir tilviljun við athugun á
smiti vegna PMV.
Mast ætlar í yfirgripsmikla
sýnatöku
Brynjar Ómarsson, forstöðumaður
plöntusjúkdómasviðs Matvæla-
stofnunar, sagði í samtali við
Bændablaðið að Matvælastofnun
sé að fara af stað með yfirgripsmikla
sýnatöku hjá tómataræktendum
og skima kartöfluræktendur á
Suðurlandi.
„Mast hefur einungis fengið
tilkynningu um spóluhnýðissýkingu
á einu tómatabýli og er það á
Suðurlandi en málið á allt eftir að
skýrast betur með sýnatökunni.
Niðurstaða sýnatökunnar ætti
svo að gefa skýra mynd af
sjúkdómastöðunni á hverjum stað.“
Yfirlýsing frá Matvælastofnun
„Matvælastofnun hefur verið
upplýst um tilkynningaskyldan
plöntusjúkdóm sem greinst hefur í
tómatrækt hérlendis. Sjúkdómurinn
nefnist Potato spindle tuber viroid,
spóluhnýðissýking, og er um
veirung að ræða.
Veirungurinn leggst á kartöflur
og tómata og getur valdið afföllum
í ræktun. Veirungurinn er hvorki
skaðlegur mönnum né dýrum.
Einkenni sýkingar í tómatrækt
geta verið mismunandi og fer
alvarleiki eftir sýkingarafbrigði.
Í sumum tilfellum eru engin
einkenni. Einkenna verður yfirleit
fyrst vart í efri hluta plöntu þar sem
lauf verða gulleit með brúnleitum
flekkjum á meðan stærri æðar
plöntunnar haldast skærgrænar.
Vöxtur laufblaða getur einnig verið
takmarkaður. Einkenni geta líka
birst á ávöxtum en sýktir ávextir
geta verið litlir, dökkgrænir, harðir
og vöxtur afbrigðilegur.
Veirungurinn dreifist gjarnan
með snertingu og er besta vörnin
fólgin í auknu hreinlæti og
sóttvörnum. Matvælastofnun beinir
því til tómatræktenda að gæta
fyllstu varúðar varðandi mögulegt
smit og efla sóttvarnir til að koma
í veg fyrir frekari útbreiðslu.
Jafnframt beinir Matvælastofnun
því til kartöfluræktenda að gæta
að mögulegu krosssmiti frá
einstaklingum og aðföngum sem
borið gætu smit úr tómatrækt.
Aðgerðir Matvælastofnunar
vegna veirusýkinga í tómatrækt fela
í sér leiðbeiningar um sóttvarnir
við ræktun, tilmæli um nauðsynleg
skref í sóttvörnum, skipulagða
rannsókn á sýnum til að greina
mögulega sjúkdóma í ræktun
auk kortlagningu og greiningu á
útbreiðslu.
Matvælastofnun hefur birt
leiðbeiningar um hvernig koma
skal á sóttvörnum í ræktun og
hvetur stofnunin alla ræktendur
til að innleiða sem flesta þætti
leiðbeininganna eins og fljótt og
auðið er.
Atvinnu- og Nýsköpunar-
ráðuneytið mun á næstunni birta
reglugerð í Stjórnartíðindum þar sem
fjallar er um málið. Hér að neðan má
sjá reglugerðina. Matvælastofnun
hvetur alla sem málið varðar til að
kynna sér reglugerðina.“ /VH
Glyfosat bannað
í löndum ESB
Spóluhnýðissýking stafar af
veirungi sem kallast Potato
spindle tuber viroid. Veirungar
eru minnsta smitandi eining sem
þekkt er og samsett úr stuttum
hringlaga og einstengdum RNA
kjarnasýrum án próteinhjúps.
Potato spindle tuber viroid er
fyrsti veirungurinn sem greindist
og eru tómatar og kartöflur
náttúrulegir hýslar hans. Veirungar
hafa einungis greinst í háplöntum.
Til eru mismunandi afbrigði Potato
spindle tuber viroid og allir valda
þeir sýkingum í háplöntum og
uppskeruminnkun í nytjaplöntum.
Sýkingareinkenni mismunandi
Potato spindle tuber viroid eru
allt frá því að vera vægar yfir í
að vera mjög alvarlegar. Einkenni
geta verið misalvarleg eftir
umhverfisaðstæðum. Þau aukast
við hærra hitastig og eftir því hversu
lengi veirungurinn fær að grassera
óáreittur.
Almenn einkenni eru að blöðin
verða minni, verpast og taka á sig
gulan eða fjólubláan lit. Undirvöxtur
í kartöflum verður minni og tómatar
líka og þeir fá á sig gulleitar skellur.
Spóluhnýðissýking er landlæg
víða um heim, í Norður-Ameríku,
bæði Bandaríkjunum og Kanada,
Kína, mörgum ríkjum fyrrum
Sovétríkjanna og mörgum
Evrópuríkjum. Þrátt fyrir það hefur
tekist að útrýma sýkingunni á
mörgum svæðum.
Sýkingin getur breiðst út með
blaðlús en hér á landi er mest
hætta á að hún berist út með
fjölnotaumbúðum og vörubrettum.
/VH
Veirungur í tómötum sem getur borist í kartöflur:
Spóluhnýðissýking gæti valdið alvarlegri
uppskeruminnkun í kartöflum
– Komi upp smit gætu bændur þurft að hætta kartöflurækt í tvö ár
Veirungur sem kallast Potato
spindle tuber viroid, eða
spóluhnýðissýking, og greinst hefur
í tómötum á býlum á Suðurlandi
getur borist í kartöflur og valdið
verulegri uppskeruminnkun.
Bergvin Jóhannsson, formaður
Landssambands kartöflubænda og
bóndi á Áshóli í Grýtubakkahreppi,
sagði í samtali við Bændablaðið að
hann og flestir kartöflubændur séu
búnir að fá allt um það beint í æð. „Í
fyrstu sýnist mér ekkert annað fyrir
okkur að gera annað en að reyna að
verja okkur eins vel og við getum
fyrir þessu. Til dæmis með því að
koma ekki með tómata nálægt neinu
sem snertir kartöflurækt.“
Veirungurinn er hvorki skaðlegur
mönnum né dýrum.
Gætu þurft að hætta kartöflurækt
í tvö ár
Bergsveinn segir að uppskerubrestur
í kartöflum geti verið gríðarlegur í
kartöflum berist veirungurinn í útsæði
og í kartöflugarða. „Alvarleikinn er
svo mikill að það verður að hætta
kartöflurækt á viðkomandi býli í, að
mér skilst, að minnsta kosti tvö ár og
hreinsa út úr húsum og sótthreinsa
allan búnað. Það er svo alltaf mikið
bras að byrja aftur ef menn þurfa að
hætta vegna svona lagaðs.
Þrátt fyrir að við séu nýlega búnir
að frétta af möguleikanum á smiti
erum við að sjálfsögðu á tánum yfir
þessu.“
Bergsveinn segist ekki vita til
þess að enn hafi verið tekin sýni úr
kartöflum eða kartöflugörðum til að
athuga hvort veirungurinn hafi borist
í þá. „Komi fram einkenni skilst mér
að þau komi fyrst fram á kartöflunum
sjálfum og ég á ekki von á að slíkt
komi fram fyrr en á næsta ári fari allt
á versta veg.“
Vörubretti varasöm
Að sögn Bergsveins
getur veirungur inn
borist í kartöflur með
hlutum eða fólki sem hefur verið
í mikilli snertingu við tómata en
sérstaklega eru tómatarnir sjálfir og
vörubretti varasöm.
Hann segir að kartöflubændur
hafi ekki, að minnsta kosti
hingað til, ákveðið að fara út
í sameiginlegar aðgerðir til að
varna því að veirungurinn berist
í kartöflur. „Ég held satt best að
segja að þetta sé eitthvað sem hver
og einn kartöflubóndi verði að eiga
við sjálfur.“
Melónur líka varasamar
Ekki er nóg með að sýking geti
borist úr tómötum í kartöflur heldur
er einnig varað við því að vera með
melónur innan um kartöflur.
„Á yfirborði melónanna víða
um Evrópu getur verið óværa sem
hæglega getur borist í kartöflur og
aðrar nytjaplöntur verði ekki gætilega
farið, segir Bergsveinn Jóhannsson,
formaður Landssambands
kartöflubænda, að lokum /VH
Spóluhnýðissýking,
smitandi veirungar
FRÉTTIR
Brynjar Ómarsson.
-
-
-