Bændablaðið - 16.11.2017, Page 15

Bændablaðið - 16.11.2017, Page 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017 Sláturfélag Suðurlands svf. • Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík • Simi 575 6000 • www.ss.is Vitlick Soft Sheep - Bætiefnafata • Steinefna- og snefilefnaríkt og hentugt með vetrarfóðrun • Inniheldur A-vítamín, D-vítamín og E-vítamín • Án kopars • Hátt seleninnihald • Inniheldur hvítlauk - 15 kg fata Salto får - Saltsteinn fyrir kindur • Inniheldur stein og snefilefni • Ekkert koparinnihald • Inniheldur selen • Inniheldur náttúrulegt bergsalt • Má notast við lífræna ræktun -10 kg steinn Vitfoss Hafið samband við sölumenn Sláturfélags Suðurlands um land allt. Ærblanda SS - Óerfðabreytt kjarnfóður framleitt af DLG fyrir íslenska sauðféð • Orkurík kjarnfóðurblanda með 17,2% hrápróteini • Inniheldur fjölbreytt hráefni með góðan lystugleika • Inniheldur tormelt prótein fyrir hámarks ullarvöxt • Gott jafnvægi í steinefnum og snefilefnum • Rík af kalsíum, fosfór og magnesíum - 15 kg pokar / 750 kg sekkir Sláturfélag Suðurlands Leiðandi í óerfðabreyttu fóðri Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra: Íhugar að loka N1 á Hvammstanga Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra íhugar að loka bensínstöð N1 á Hvammstanga frá og með 1. febrúar næstkomandi þar sem hún starfar ekki í samræmi við reglugerð. Ófullnægjandi afgreiðsluplan og skortur á mengunarvarnarbúnaði veldur því að heilbrigðiseftirlitið fer í þessar aðgerðir. Sagt er frá þessu á vefnum huni.is. Vitnað er í bréf heilbrigðis- eftirlitsins til forsvars manna N1 en þar segir að umrædd bensínstöð hafi hafið rekstur án starfsleyfis og hafi því eftirlitið fyrst stöðvað starfsemina í apríl 2015. Í framhaldi af þeirri stöðvun sótti N1 um starfsleyfi og gaf heilbrigðiseftirliti loforð um að gengið yrði frá málum í samræmi við þágildandi reglugerð. Samkvæmt mati heilbrigðiseftirlitsins vantar tilskilinn mengunarvarnabúnað á stöðina. N1 sendi eftirlitinu bréf dagsett 2. október og óskaði eftir því að fá að halda áfram rekstri til loka júní á næsta ári án þess að uppfylla skilyrði um mengunarvarnir. Hafnaði heilbrigðiseftirlitið þeirri umleitan. /MÞÞ Íþróttahúsið á Hellu: Skötumessa 1. desember Föstudaginn 1. desember verður haldin þjóðleg Skötumessa í Íþróttahúsinu á Hellu og hefst hún kl. 20.00. Tilefnið er að fólk hittist og eigi góða stund saman þar sem í boði verða þjóðlegir réttir, kæst skata og saltfiskur með tilheyrandi kartöflum, rófum og hamsatólg. Í eftirrétt verður boðið upp á ábresti með kanil að góðum íslenskum sið. Að loknu borðhaldi verður boðið upp á happdrætti með stórglæsilegum vinningum og glæsilegri skemmtidagskrá. Blítt og létt hópurinn frá Eyjum heldur úti dúndrandi stuði og allir syngja með. Forsala aðgöngumiða verður á höndum Fimleikadeildarinnar á Hellu. Eins má greiða aðgangseyri við innganginn. „Undirbúningsnefndin hefur fundið fyrir miklum áhuga fólks um allt Suðurland og til höfuðborgarinnar svo það er vissara að tryggja sér miða í tíma á eitt glæsilegasta skötukvöld ársins á Íslandi. Allur hagnaður rennur til samfélagsins á Suðurlandi“, segir Ásmundur Friðriksson alþingismaður, sem á sæti í undirbúningsnefnd veislunnar. /MHH Þistill – leiðrétt netfang Smávægileg mistök urðu við skráningu netfangs í síðasta Bændablaði vegna kynningar á ritinu Þistill, sem er saga sauðfjárræktarfélagsins Þistils í Svalbarðshreppi í Þistilfirði. Rétt netfang fylgir hér. Þeir sem óska eftir að verða áskrifendur eru vinsamlegast beðnir um að senda nafn, kennitölu, heimilisfang og hvort nafn á að birtast í bókinni í netfangið thistill1940@gmail.com eða senda bréf til Soffíu Björgvinsdóttur, Garði, 681 Þórshöfn. /VH Nýr auglýsingastjóri Bændablaðsins Guðrún Hulda Pálsdóttir er nýr auglýsingastjóri Bændablaðsins. Hún er lesendum blaðsins að góðu kunn en áður sinnti hún meðal annars sumarafleysingum og skrifum um hross og hestamennsku. Guðrún Hulda er með BA-próf í bókmenntafræði og er að ljúka meistaranámi í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Hún hefur áður starfað við rannsóknir hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, sem ritstjóri Eiðfaxa og blaðamaður á Morgunblaðinu. Guðrún Hulda hefur þegar hafið störf á blaðinu og hefur aðsetur í Bændahöllinni á skrifstofum Bændasamtakanna. Tímarit Bændablaðsins á áætlun Meðal fyrstu verka nýs auglýsingastjóra verður að taka þátt í útgáfu Tímarits Bændablaðsins sem kemur út 4. mars á næsta ári og verður prentað í 8 þúsund eintökum. Þar er tekið á helstu málefnum landbúnaðarins og eru efnistökin fjölbreytt. Ritinu verður dreift til allra áskrifenda, á öll lögbýli landsins og í fyrirtæki sem tengjast landbúnaðinum. Boðið er upp á hefðbundnar auglýsingar í ritinu en í seinni hluta þess verður pláss fyrir kynningarefni frá fyrirtækjum sem unnið er í samvinnu við blaðamenn. Sala á auglýsingum og kynningum er hafin og eru viðskiptavinir hvattir til að hafa samband. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563- 0303 og netfangið ghp@bondi.is Guðrún Hulda Pálsdóttir.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.