Bændablaðið - 16.11.2017, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Á meðan kóngafólk og prelátar
ýmiss konar prýða seðla og mynt
í flestum löndum heims skartar
íslenski krónupeningurinn,
grunn eining peningakerfis okkar,
upphleyptri mynd af þorski.
Það er ekki að ástæðulausu.
Þorskurinn hefur, ásamt sauðkindinni,
verið undirstaða efnahags Íslendinga
öldum saman. Hann er ennþá einn
af máttarstólpunum þótt dregið hafi
hlutfallslega úr mikilvægi hans með
tilkomu nýrra atvinnugreina, ekki
síst á allra síðustu árum.
100 milljarðar króna
Þrátt fyrir að nýjar tegundir hafi bæst
við nytjastofna á Íslandsmiðum á
síðustu árum, svo sem makríll og
kolmunni, og norsk-íslenska síldin
hafi tekið upp fyrra göngumynstur
sitt, er þorskurinn þó áfram
kóngurinn í lífríkinu umhverfis
landið. Sá guli skilaði þjóðarbúinu
100 milljörðum króna á síðasta ári,
eða 43% af heildarverðmæti útfluttra
sjávarafurða. Þetta hlutfall hefur
sjaldan farið niður fyrir þriðjung á
liðnum árum.
Fyrir ekki svo löngu síðan
byggðist gjaldeyrisöflun þjóðarinnar
að stærstum hluta á útflutningi
sjávarafurða. Nú er það allt breytt.
Fyrst komst áliðnaðurinn upp að
hlið sjávarútvegsins en síðan varð
sprengingin stóra þegar erlendir
ferðamenn fóru að flæða inn í landið
í áður óþekktum fjölda. Samkvæmt
tölum Hagstofunnar voru tekjur af
útflutningi vöru og þjónustu á síðasta
ári 1.187 milljarðar króna, þar af
námu tekjur af ferðamönnum 463
milljörðum, eða 39% af heild. Næst
kom útflutningur sjávarafurða 232
milljarðar (19,5%) og útflutningur
á áli 182 milljarðar (15,3%).
Færri tonn – fleiri krónur
Þorskurinn, sem hér er aðallega til
umræðu, skilaði einn og sér 100
milljörðum króna í gjaldeyristekjur
í fyrra, eins og áður sagði, og var
það 8,4% af heildargjaldeyrisöflun
þjóðarinnar. Þessi verðmæti voru
búin til úr 264.000 tonnum af
þorski sem dregin voru úr sjó. Það
athyglisverða er að á sama tíma og
veiddum tonnum hefur fækkað í
áranna rás hefur verðmæti afurðanna
farið stigvaxandi mælt á núvirði,
fyrst og fremst vegna aukinnar
og bættrar nýtingar hráefnisins.
Er nú svo komið að nánast allt af
þorskinum er nýtt á einn eða annan
hátt.
Tölurnar tala sínu máli um þetta.
Fram kom í erindi Önnu Kristínar
Daníelsdóttur, sviðsstjóra hjá Matís,
á ráðstefnu í Hörpu á dögunum, að
árið 2016 hafi útflutningsverðmæti
landaðs þorskafla Íslendinga
verið 3,15 dollarar kílóið sem er
4,6 sinnum meira en árið 1981.
Þorskaflinn 2016 skilaði 2,6 sinnum
meiri verðmætum en árið 1981, þótt
aflinn 2016 hafi einungis verði 57%
af afla ársins 1981.
Hliðargrein við landbúnað
Sé litið aftur til þjóðveldisaldar voru
skreið, vaðmál, lýsi og skáldskapur
okkar helstu útflutningsafurðir,
segir Ágúst Einarsson prófessor í
bók sinni Íslenskur sjávarútvegur
í alþjóðlegu samhengi, sem kom
út í fyrra. Í byrjun 14. aldar tók
skreið við af vaðmáli sem helsta
útflutningsafurðin. Ekki er þó þar
með sagt að þorskurinn hafi verið
þjóðinni mikilvægari en sauðkindin,
síður en svo. Sjávarútvegur var hér
ætíð stundaður sem hliðarbúgrein við
landbúnað og það þekktist um aldir
að fara á vetrarvertíð á Suðurland
og Snæfellsnes þegar lítið var við
að vera í sveitinni og þorskurinn
gekk nærri landi til að hrygna. Ágúst
bendir á að svo seint sem árið 1870
hafi 81% vinnuafls landsmanna verið
í landbúnaði (nú er það 2%).
Frakkar atkvæðamestir
Lengst af stunduðu Íslendingar
handfæraveiðar á árabátum og
aflinn var takmarkaður. Erlendar
þjóðir, Englendingar, Þjóðverjar,
Hollendingar og Frakkar, voru mun
stórtækari í veiðum á Íslandsmiðum
en heimamenn. Á 18. og 19. öld
voru Frakkar langatkvæðamestir
útlendinga hér við land og er afli
þeirra upp úr sjó talinn hafa numið
samtals 2,2 milljónum tonna að
verðmæti 600 milljarða króna á
núverandi verðlagi. Flest urðu
frönsku fiskiskipin tæplega 350
talsins árið 1884 með liðlega 6.000
fiskimönnum. Veiðar Frakka við
Ísland kröfðust mikilla mannfórna.
Alls hurfu hátt í 400 hundruð skip
í hafið og með þeim um 4.000
sjómenn frá því að þessar veiðar
hófust fyrir alvöru á fyrri hluta
19. aldar og þar til þeim lauk
fyrir síðari heimsstyrjöld , að mati
Elínar Pálmadóttur blaðamanns,
sem skrifað hefur mest um veiðar
Frakkanna við Ísland.
Aflinn stóreykst
Við upphaf 20. aldarinnar heldur
vélvæðing bátaflotans innreið
sína á Íslandi og togarar koma til
sögunnar. Afli Íslendinga jafnt sem
útlendinga stóreykst. Nú voru helstu
erlendu veiðiþjóðirnar Bretar og
Þjóðverjar og lítið dró úr afla þeirra
þótt fiskveiðilögsagan væri færð
út á ofanverðri 20. öld, fyrst úr 3
sjómílum í 4 sjómílur árið 1952,
síðan í 12 sjómílur árið 1958 og
svo í 50 sjómílur árið 1972. Það var
ekki fyrr en með útfærslunni í 200
sjómílur árið 1975 að Íslendingum
tókst loks að reka útlendingana af
höndum sér.
Veiðar útlendinga
En hversu mikið veiddu útlendingar
á Íslandsmiðum á tuttugustu öldinni
og hve stór var hlutur Íslendinga? Í
grein í Fiskifréttum fyrir tveimur
árum var leitast við að svara því. Í
Hagskinnu, riti Hagstofu Íslands,
má finna tölur um árlegan afla
útlendinga við Ísland allt frá árinu
1905. Séu þessar tölur lagðar
saman kemur í ljós að heildarafli
botnfisks á Íslandsmiðum á
tímabilinu frá 1905 til 1978 (þegar
útlendingum var endanlega úthýst
úr fiskveiðilögsögunni) nam 38
milljónum tonna, þar af veiddu
útlend fiskiskip 18 milljónir tonna
en íslensk 19 milljónir. Lengi framan
af öldinni var árlegur afli útlendinga
yfirleitt meiri en Íslendinga ef
tímabil tveggja heimsstyrjalda er
undanskilið. Fiskifréttir reiknuðu út
að aflaverðmæti þeirra 18 milljóna
tonna sem útlendingar (aðallega
Bretar og Þjóðverjar) drógu úr sjó við
Ísland á þessu tímabili hefði numið
um 5 þúsund milljörðum króna
miðað við markaðsverð á þorski
og ýsu í dag. Það samsvarar yfir 70
milljörðum króna á ári að meðaltali
ef stríðsárin eru undanskilin.
Heildarafli dregst saman
Það er svo annað umhugsunarefni
hvers vegna heildarbotnfiskaflinn
á Íslandsmiðum er miklu minni
nú en hann var stærstan hluta þess
tíma sem við deildum fiskimiðunum
með útlendingum á 20. öldinni. Allt
frá árinu 1950 og þar til 200 mílna
fiskveiðilögsagan var viðurkennd
árið 1976 fór botnfiskaflinn í heild
aldrei niður fyrir 600 þúsund tonn og
var iðulega um og yfir 800 þús. tonn.
Á seinni árum hefur botnfiskaflinn
minnkað niður í rúmlega 400 þús.
tonn á ári. Ekki er einhlít skýring
á þessu en nærtækast er að ætla að
náttúruleg skilyrði fyrir vöxt og
viðgang fiskistofna á okkar hafsvæði
hafi versnað sem m.a. lýsir sér í því
að þorskgöngur frá Grænlandi til
Íslands, sem áður voru mikil búbót,
heyra nú sögunni til.
Þótt hlutur þorsksins og annarra
nytjafiska í efnahag Íslendinga hafi
dregist saman hlutfallslega er sá guli
ennþá mikilvæg undirstaða góðra
lífskjara í landinu. Það er því áfram
vel við hæfi að hann prýði íslenska
krónupeninginn.
HLUNNINDI&VEIÐI
Um borð í Grímsey ST frá Hólmavík. Halldór Höskuldsson heldur á rígaþorski. Mynd / Úr safni GE
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Þorskurinn er kóngurinn hér
Kolmunni.
HB Grandi:
Bræðsla á kolmunna
hafin á Vopnafirði
Vinnsla á fyrsta kolmunnanum
á vertíðinni hófst fyrir skömmu
hjá fiskimjölsverksmiðju HB
Granda á Vopnafirði. Byrjað
var að bræða kolmunna í
verksmiðjunni eftir að Venus
NS og Víkingur AK komu til
Vopnafjarðar með um 800 tonna
afla.
Sveinbjörn Sigmundsson,
verksmiðjustjóri HB Granda á
Vopnafirði, segir á heimasíðu
fyrirtækisins að skipin hafi komið
inn vegna brælu á miðunum og
slæms veðurútlits og því verið með
minni afla en ef þau hefðu verið
lengur á miðunum.
Að sögn Sveinbjörns er
kolmunninn hið besta hráefni,
feitur og fallegur fiskur, og hann
á von á því miðað við kvótastöðuna
að kolmunnaafli muni duga
verksmiðjunni vel fram í næsta
mánuð.
,,Framhaldið veltur auðvitað mest
á því að kolmunninn gefi sig til og
á tíðarfarinu. Mér skilst að vertíðin
hafi byrjað vel út af Seyðisfirði en
síðan hafi aflinn dregist saman. Það
má vel vera að fara þurfi dýpra og
lengra eftir kolmunnanum en það
kemur í ljós á næstu dögum og
vikum,“ segir Sveinbjörn en hann
reiknar með því að lokið verði við
vinnslu á aflanum í nótt.
Það sem af er ári hefur verksmiðjan
á Vopnafirði alls unnið úr tæplega 69
þúsund tonnum af hráefni og hefur
starfsemin gengið vel. Verksmiðjan
nýtir alfarið umfram rafmagnsorku
til framleiðslunnar og hefur framboð
raforku verið það tryggt að ekki
hefur þurft að grípa til þess að keyra
verksmiðjuna með olíu. /VH
Fiskgengd við Bretlandseyjar breytist:
Þorskur og ýsa færa sig norðar og
smokkfiskur veiðist í meira mæli
Rannsóknir sína að fiskgengd í
hafinu umhverfis Bretlandseyjar
er að breytast. Þorskur og ýsa eru
að færast norðar og tegundum úr
hlýrri sjó fjölgar. Breytingarnar
stafa af hlýnun sjávar.
Niðurstaða hóps breskra haf- og
fiskifræðinga er að hraðar breytingar
séu að verða á lífríkinu í hafinu
umhverfis Bretlandseyjar. Svo
miklar er talið að breytingarnar verði
að Bretar þurfi að aðlagast og fara
að hugsa fiskneyslu sína upp á nýtt.
Samkvæmt niðurstöðu hópsins
geta tegundirnar sem nú sækja
í sjóinn valdið miklu tjóni á
núverandi lífríki. Dæmi um það er
skeldýrstegund, Crepidula fornicata,
sem leggst á krækling og ostrur af
miklum krafti. Á móti kemur að
aðrar tegundir skeldýra sem leita í
heitari sjó geta orðið framtíðarafl
breskra sjómanna.
Bolfiskar, eins og þorskur og
ýsa, geta hæglega flutt sig norðar
í kaldari sjó en flatfiskar, eins og
sólkoli og rauðspretta, eiga aftur á
móti erfiðara með það og geta orðið
undir í samkeppninni. Nú þegar er
smokkfiskur og sardínur farnin að
sjást í auknum mæli í afla sjómanna
í kringum Bretlandseyjar.
Samkvæmt mælingum síðustu
þrjátíu ára hefur sjórinn í kringum
Bretlandseyjar hækkað um 1,5°
á Celsíus og eru breytingarnar
raktar til hnattrænnar hlýnunar
vegna gróðurhúsaáhrifanna. Hækki
sjávarhiti við Bretlandseyjar áfram
með sama hraða, eins og talið er,
mun hitastig hans eftir nokkra
áratugi verða svipað og það var
við Portúgal í dag og lífríki þess í
samræmi við það.
Áhrif hlýnunar sjávar hafa og
munu halda áfram að hafa áhrif til
breytinga á lífríki sjávar við Ísland.
Nú þegar hefur loðna leitað norðar
í kaldari sjó auk þess sem tegundir
eins og ýsa, kolmunni, ufsi, síld og
skötuselur, sem bundnar hafa verið
við suður- og suðvesturströndina,
hafa fundist í auknum mæli við
norðan- og norðaustanvert landið. Þá
hefur makríll leitað í auknum mæli í
sjóinn við Ísland í fæðuleit. /VH