Bændablaðið - 16.11.2017, Side 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Krauma – náttúrulaugar formlega opnaðar í Reykholtsdalnum í Borgarfirði:
Vatnið kemur úr vatnsmesta hver Evrópu
– Hráefnið á veitingastaðinn kemur úr héraði
Þann 2. nóvember síðastliðinn
voru Krauma – náttúrulaugar við
Deildartunguhver í Reykholtsdal
í Borgarfirði formlega opnaðar.
Ásamt laugunum verður rekinn
veitingastaður á staðnum sem
verið er að standsetja þessa dagana.
Áformað er að opna hann um
miðjan mánuðinn.
Gert er ráð fyrir að hægt verði
að taka á móti um 140 manns á
hverjum tíma; búningsklefarnir
rúma 100 manns, veitingastaðurinn
um 70 manns í sæti og annað eins á
útisvæði.
Bræðurnir eru garðyrkjubændur
Byggingaframkvæmdir hófust í
Deildartungu í apríl 2015 og hafa
staðið yfir síðan en þó með allnokkru
hléi síðastliðinn vetur. Það voru
bræður frá Deildartungu, Sveinn
Magnús og Dagur Andréssynir, og
fjölskyldur þeirra, sem lögðu af stað
með þetta verkefni. Um mitt þetta ár
bættist svo fyrirtækið Jökull Invest
í eigendahópinn og með nýjum
meðeigendum hefur þetta verkefni
loksins komist á koppinn. Bræðurnir
eru báðir garðyrkjubændur, Sveinn
býr í Víðigerði, í næsta nágrenni við
Krauma, og ræktar tómata en Dagur
bróðir hans býr á Kleppjárnsreykjum,
andspænis honum í dalnum, og ræktar
þar paprikur.
Staðbundið hráefni
Nýlega var Jónas Friðrik Hjartarson
ráðinn sem framkvæmdastjóri
Krauma, en Pétur Jónsson
rekstrarhagfræðingur hafði frá því
í sumar leitt verkefnið í gegnum
uppbyggingarferlið eftir að það fór
aftur af stað eftir nokkurt hlé. Jónas,
sem áður starfaði á Ríkisútvarpinu
sem sölustjóri auglýsinga, segir
að nú vanti aðeins lokahnykkinn á
framkvæmdirnar og vonar hann að
hægt verði að opna veitingastaðinn
á allra næstu dögum. „Við ætlum að
leggja metnað í veitingareksturinn
og sækja hráefni hér í nærumhverfið.
Hér er til dæmis nóg úrval grænmetis,
ávaxta og kjötafurða. Yfirkokkurinn á
Krauma heitir Björn Ágúst Hansson
og verður staðurinn í svokölluðum
bístró-stíl; yfirlætislaus og vinalegur.
Við ætlum að reyna að höfða til sem
flestra,“ segir Jónas.
Hugmyndin komin frá
húsfreyjunni
Jónas segir að hugmyndir svipaðar
þessu verkefni megi í raun rekja til
Sigurbjargar Björnsdóttur, húsfreyju
í Deildartungu, en hún féll frá árið
1984, 97 ára að aldri. Þá hafði
jörðin Deildartunga verið í eigu
sömu fjölskyldu í um 200 ár og var
Deildartunguhver í eigu Sigurbjargar
þar til hann var tekinn eignarnámi af
íslenska ríkinu árið 1979. Var hann
Myndir / smh