Bændablaðið - 16.11.2017, Side 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
svo afhentur Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarðar til afnota eftir því sem
almenningsþörf krefði.
Sigurbjörg þekkti vel heilsusamleg
áhrif heita vatnsins á líkama og
sál og hafði hugmyndir um að
almenningi yrði gert kleift að baða
sig í steinaefnaríku hveravatninu.
Mikil vinna lögð í útlitið
Mikil vinna hefur verið lögð í
útlit Krauma og eiga arkitektarnir
Brynhildur Sólveigardóttir og
Arnhildur Pálmadóttir hjá DARK
studio heiðurinn af því. Byggingarnar,
sem allar eru steinsteyptar, eru
klæddar með timbri og á þeim
torfþak. Víða eru torfhleðslur upp við
veggi og það ásamt dökku yfirbragði
bygginganna verður til þess að þær
falla afar vel inn í umhverfið. Stíll
innanhúss er frekar hrár, svartir
veggir og steypugráar flísar á
gólfi. Á móti ljósum asklituðum
innréttingum er notað dökkt efni
sem heitir Viroc, en það er blanda af
steypu og timburspæni og er einkum
ætlað til klæðninga utanhúss og þar
af leiðandi vatnshelt.
„Við ætlum að hafa þetta
umhverfisvænt – í sátt við náttúruna
– og því verður enginn klór notaður
og pottarnir þrifnir daglega,“ segir
Jónas. „Þá verður byggð upp aðstaða
við hverinn sjálfan; salernisaðstöðu
komið upp og önnur aðstaða fyrir
ferðamenn bætt – en yfir 200
þúsund gestir koma árlega að
Deildartunguhver.“
Fimm heitir pottar og einn kaldur
Jónas segir að vatnið í laugunum
komi úr sjálfum hvernum en sé
blandað köldu vatni sem á uppruna
sinn við öxl Oks, sem er rétt suðaustan
við Reykholtsdalinn. „Pottarnir eru
fimm talsins og er hitastigið frá 32 til
43 gráða. Einnig er kaldur pottur á
laugasvæðinu en hann er sex til átta
gráður. Tvö gufuböð eru á baðsvæðinu
og inni í þeim eru notaðar gæða
ilmolíur hvort með sínum ilminum;
annars vegar Jörð og hins vegar Vatn
sem er framleitt hjá Sóley Organics.“
Við pottana er slökunarherbergi,
en þar býðst gestum að slappa af
í legubekkjum umhverfis arin í
miðju rýmisins við ljúfa tónlist.
Búningsherbergin eru með læstum
skápum og þar eru rúmgóð
snyrtiborð með stórum speglum og
góðri lýsingu.
„Til gamans má nefna að ef ekki
væri fyrir agnarsmáa jurt sem vex við
hverinn, þá væri Deildartunguhver
ekki sá ferðamannastaður sem
hann er í dag, né hefði uppbygging
Krauma orðið að veruleika.
Í hverahólnum vex burknategund
af ætt Skollakamba og er hann
sérstakt afbrigði þeirrar ættar og
ber nafnið Tunguskollakambur.
Þegar hverinn var virkjaður í lok
áttunda áratugar síðustu aldar, stóð
til að steypa yfir hann allan. Það
var ljóst að án gufunnar sem leggur
frá hvernum myndi burkninn deyja
út. Þar sem hann var friðlýstur varð
að falla frá fyrirhugaðri hönnun
á mannvirkjunum og stór hluti
Deildartunguhvers fékk að vera
sýnilegur áfram,“ segir Jónas.
Laugarnar verða opnar allt árið
um kring, alla virka daga frá 10 til
23 á sumrin og 10 til 21 á veturna.
Opið er á hátíðardögum frá 10 til 16.
/smh
Vatnsmesti hver í Evrópu
Deildartunguhver er talinn vatnsmesti hver í Evrópu
og spúir um 180 lítrum upp á sekúndu af hundrað
gráðu heitu vatni.
Áður fyrr var hann nýttur til þvotta og eldamennsku. Fyrir
um 80–90 árum smíðuðu ábúendur í Deildartungu timbur-
stokk til að flytja gufuna að gamla íbúðarhúsinu. Með guf-
unni mátti hita upp húsið, sjóða mat í gufupotti, auk þess
sem íbúar gátu farið í heita sturtu og gufubað – sem þótti
einstök þægindi á þeim tíma.
Um 1941 var garðyrkjustöðin Víðigerði reist við hverinn og
er hún enn í fullum rekstri þar sem ræktaðir eru tómatar.
Matjurtarækt hefur líka verið stunduð víða í nágrenni við
hverinn um áratuga skeið og vatn frá honum nýtt til að hita
upp garðana.