Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Við norska umhverfisháskólann
NMBU eru Knut Egil Bøe og
samstarfsfólk hans byrjuð að nota
hálsólar með GPS-hnitum á búgripi
í stað þess að setja upp girðingar
og gefa tilraunirnar góða raun.
Er það von manna að með þessari
nýju tækni verði girðingar óþarfar
í framtíðinni, þess í stað fái dýrin
með hálsólarnar rafmagnsstuð í sig
í gegnum þær fari þau of langt út
fyrir tilætluð svæði.
„Nofence er norsk uppfinning
en hugmyndin um sýndar-
veruleikagirðingar er ekki alveg
ný af nálinni. Þróun á einföldum
hundahálsböndum hófst árið 1973
til að kenna hundum að veiða eða
smala eins og til dæmis kindum.
Síðan hefur orðið þróun eins og í
öðru en ég veit ekki um neitt annað
kerfi en Nofence sem hægt er að
nota fyrir hjarðir dýra,“ útskýrir
Knut Egil Bøe, prófessor við
NMBU.
Hljóðmerki og rafstuð
Nofence-tæknin er í raun
sýndarveruleiki þar sem óþarfi verður
að girða fyrir búfénað. Dýrin fá hálsól
sem er með ákveðnum GPS-hnitum.
„Eigandi dýranna setur inn á
stafrænt kort það beitarsvæði sem
hann óskar eftir að dýrin gangi á
og því eru þetta ákveðin landamæri
í sýndarveruleika sem dýrin geta
gengið um á. Þegar dýrin nálgast
landamærin byrjar hálsólin að titra
um leið og það kemur ákveðið
hljóðmerki sem eykst eftir því
sem þau ganga lengra. Ef að dýrið
hunsar þessi skilaboð og fer yfir
landamærin þá fær það rafmagnsstuð
í sig,“ útskýrir Knut Egil og segir
jafnframt:
„Styrkurinn á rafmagnsstuðinu er
mun minni en frá rafmagnsgirðingu.
Þegar dýrið er búið að læra inn á
hálsólina og hvaða mörk þau
hafa þá eiga þau að bregðast við
hljóðmerkjunum og fá þá sjaldan
rafstuð.“
Reynist vel á nautgripum
og geitum
Kerfið hefur mest verið notað á geitur
í Noregi en þó hafa verið gerðar
prófanir á nautgripum og sauðfé.
Þróunarferlið hefur gengið vel en
þó eru á kerfinu nokkrir annmarkar
sem þarf að huga að.
„Í dag er kerfið notað á geitur á
um 100 bóndabæjum hér í Noregi og
á um það bil þúsund geitur í heildina.
Við fylgjumst vel með hvernig þetta
gengur og hvernig dýrin bregðast
við þessari nýju tækni. Einnig
hefur þetta verið prófað á kvígum
sem tengdu rétt við
varúðarmerkjunum
og rafstuðunum
en fleiri tilraunir
þarf til,“ útskýrir
Knut Egil og segir
jafnframt:
„Þær tilraunir
sem hafa verið
gerðar með sauðfé
sýna að það nær
ekki að tengja sig
við tæknina. Okkar
upplýsingar sýna
að það líða aðeins
nokkrir dagar frá
því að dýrin fá
hálsólarnar á sig
þar til þau fara
alveg eftir þeim
hljóðmerkjum sem
þau fá í gegnum
tækið. Það er líka
mikilvægt að þau
aðlagist f l jótt
tækninni vegna
öryggisþátta.“
Margir möguleikar og kostir
Eins og með alla tækni eru ákveðnar
áskoranir sem þarf að komast yfir
og segir Knut Egil það helst snúa
að batteríunum sem eru í hálsólinni.
„Þrátt fyrir að það sé sólarsella
á tækinu þá duga batteríin í um
fjórar vikur en þá þarf að setja ný
og fullhlaðin batterí í tækið. Í dag
er þetta stærsta hagnýta áskorunin
með tækið. Þar að auki erum við háð
góðri GPS-tækni og netsambandi
þannig að kerfið eigi að virka á sem
ákjósanlegastan hátt,“ segir Knut
Egil, og varðandi fleiri áskoranir
bætir hann við:
„Girðing í sýndar veruleika er
ekki jafn örugg og manngerðar
girðingar. Þannig er ekki þorandi
til dæmis á stöðum þar sem er
mikil umferð að hafa annað en
manngerðar girðingar. Kosturinn
við svona tegund af girðingu er þó
sá að þetta gefur einstakt tækifæri
til að girða inn stór beitarsvæði sem
annars hefðu aldrei verið girt af með
staurum og neti. Þess vegna getur
slík girðing orðið mikilvægur hluti
af nýtingu á stórum beitarsvæðum
sem eru ekki nýtt í dag. Annar kostur
er einnig að í tækinu er hægt að lesa
staðsetningu dýranna í rauntíma og
það koma skilaboð í farsímann ef
dýr sem er skráð er ekki „virkt“
eða ef það flýr í burtu. Þetta getur
verið mikill kostur fyrir dýravelferð
og maður kemur einnig í veg fyrir
að dýr geti fest sig í manngerðum
girðingum.“ /ehg
„Nofence-tækni“ frá Noregi:
Sýndarveruleiki í stað girðinga
Í Noregi hefur sýndarveruleikagirðingin verið prófuð á nautgripum og geitum við góðan árangur en sauðfé virðist
ekki tengja nógu vel við tæknina.
Knut Egil Bøe, prófessor við NMBU-háskólann í Noregi, hér með
samstarfskonu sinni en þau hafa gert tilraunir á nýrri tækni, Nofence, sem
er girðing í sýndarveruleika.
Dýrin fá hálsól með GPS-hnitum og ef þau fara út fyrir
tækið og að endingu rafstuð fari þau enn lengra út
fyrir svæðið.
TÆKNI&VÍSINDI
Tímarit Háskólans í Reykjavík uppfullt af fróðleik:
Þrívíddarprentuð líffæri og
endalok hins frjálsa vilja
– Sýndarverur sem semja djass, orkuverð og fleira
Tímarit Háskólans í Reykjavík
er komið út í níunda sinn og
inniheldur að vanda fjölbreyttar
greinar og viðtöl um rannsóknir
og önnur viðfangsefni nemenda
og kennara við HR, í lífi og starfi.
Tímaritið er aðgengilegt á vefsíðu
HR á slóðinni: https://www.ru.is/
kynningarefni/timarithr/
Meðal efnis í tímaritinu í ár eru
greinar um notkun þrívíddarprentaðra
líffæra við undirbúning skurðaðgerða,
sýndarverur sem spila djass,
grunnlínupunkta landhelgi Íslands,
orkuverð á Íslandi og í Evrópu í
samhengi við áætlanir um sæstreng
til Evrópu, hvernig tölvuforrit hafa
áhrif á hegðun okkar og skoðanir og
margt fleira. Ari Kristinn Jónsson
rektor skrifar um samstarf HR og
atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins
við MIT-háskólann í Boston sem
miðar að því að greina hvaða
breytingar þarf að gera á Íslandi til
að efla verðmætasköpun á grunni
hugvits og nýsköpunar.
Tímarit HR er sent til núverandi
og fyrrverandi nemenda háskólans
og til starfsmanna. Blaðinu er
einnig dreift á kaffihús og í ýmis
almannarými eins og bókasöfn,
verslanamiðstöðvar, sundlaugar og
á fleiri staði.
Úrval af vinnufatnaði fyrir
eldhús og veitingastaði
Bómullarbolir, svuntur og mikið af
fatnaði sem þolir 95° þvott
og þarf ekki að strauja
Vinnufatnaður
og skór
25090
Str. 36-42
920070 - Leður
Str. 36-42
920080 - Leður
Str. 40-46
...Þegar þú vilt þægindi
Bonito ehf. • Friendtex • Praxis
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is
Til sölu jörðin Galtalækur
í Rangárþingi ytra
Galtalækur er efst í Landsveit nú nefnt Rangárþing ytra. Jörðin
hefur um langan aldur verið talin með landmeiri jörðum þar.
Nokkuð skóglendi er á Galtalæk. Ræktunarskilyrði nokkuð góð.
Landstærð talin vera um það 800 ha. Veiðiréttur í Veiðivötnum.
Eldri húsakostur sem þarfnast aðhlynningar. Ekki ríkisrafmagn
en það er komið heim á hlað. Rafmagn frá gamalli heimavirkjun
sem er að hluta til í eigu jarðarinnar.
Áhugaverð jörð í fögru umhverfi. (Athugið Galtalækur II er sér
jörð sem ekki er verið að selja.) Verð aðeins 67 milljónir.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson, lögg.
fasteignasali, magnus@fasteignamidstodin.is
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!