Bændablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 44

Bændablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017 Schierbeck landlæknir var líklega fyrstur til að rækta agúrkur á Íslandi en framleiðsla á þeim hófst um miðjan þriðja áratug síðustu aldar. Gúrkur eru um 96% vatn. Á ævintýraeyjunni Balnibarbi sem Gúlliver heimsótti á ferðalagi sínu var reynt að vinna úr þeim sólarljós. Samkvæmt tölfræðideild Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAOSTAT, var áætluð heimsframleiðsla á agúrkum árið 2015 um 72 milljón tonn. Kínverjar bera höfuð og herðar yfir þær þjóðir sem framleiða mest af gúrkum í heimunum og framleiddu um 54,5 milljón tonn árið 2015 sem er nálægt 76% heimsframleiðslunnar. Framleiðslan í Tyrklandi sem er annar stærsti gúrkuframleiðandinn var sama ár 1,8 milljón tonn, Íran var í þriðja sæti með 1,6 milljón tonn og Rússland og Úkraína í þriðja og fjórða sæti með 1,1 og eina milljón tonn. Helstu útflutningslönd á agúrkum eru Indland, Þýskaland, Tyrkland, Bandaríkin, Holland, Víetnam Pólland og Kína. Hvað innflutning varðar er mest flutt til Kanada, Bandaríkjanna, Þýskalands, Frakklands, Rússlands og Hollands. Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands var innanlands- framleiðsla á gúrkum 1.868 tonn árið 2016 en flutt inn 8.466 tonn. Mest er flutt inn frá Hollandi og Spáni. Ætt og uppruni Ættkvíslin Cucumis er af graskersætt og inniheldur 55 tegundir sem finnast villtar í Afríku, Indlandi, Suð-Austur- Asíu og Ástralíu. Meðal tegunda innan ættkvíslarinnar eru agúrkur, Cucumis sativus og melónur, C. melo, af ýmsum gerðum, yrkjum og afbrigðum. Agúrka, eða gúrka, eru einærar klifurjurtir, með greinilegan meginstofn sem getur orðið fimm metra langur og hysja sig upp með spírallaga fálmurum sem plönturnar vefja utan um næstu stoð. Sé engin stoð til staðar er plantan jarðlæg og skýtur trefjarótum víða út frá hærðum stofninum. Blöðin stakstæð, stór og hrjúf viðkomu, sepótt og smástíftennt. Blómin lítil, gul eða hvít og með fimm krónublöðum. Aldinið er misstórt, 5 til 60 sentímetra langt, oftast grænt eða gult, með eða án fræja, beint eða bogið, ílangt eða hnöttótt, slétt eða með hnúðum eða hornum, allt eftir tegundum og afbrigðum. Aldin gúrka sem myndast án frjóvgunar er frælaust. Samkvæmt skilgreiningu grasafræðinnar er aldin agúrku ber. Agúrkur sem almennt eru á boðstólum eru 96% vatn og ekki nema tólf hitaeiningar í hverjum 100 grömmum. Þrátt fyrir lágt næringarefnainnihald eru gúrkur kalk-, járn-, A-, B- og C- vítamíngjafi og því gott smakkerí milli mála fyrir þá sem ekki vilja þyngjast. Agúrkusneiðar eru sagðar bólgueyðandi og góðar til að hvíla þreytt augu. Gömul ræktunarjurt Agúrka eins og við þekkjum hana í dag þekkist ekki í náttúrunni en talið er að uppruni hennar sé á Indlandi, milli Himalajafjalla og Bengalflóa, og að ræktun hennar hafi hafist þar fyrir um 5.000 árum og því með elstu ræktunarplöntum þar um slóðir. Talið er að agúrkan sé komin af villtri gúrkutegund sem kallast C. hystrix. Til er listi sem sýnir eitt og annað sem Súmerar í borginni Úr í Írak, sem var stofnuð 3800 fyrir Kristburð, lögðu sér til munns og þar á meðal eru agúrkur. Í Gilgameskviðu, sem sögð er vera elsta bókmenntaverk sögunnar, er lýsing á fólki að borða einhvers konar agúrkur þannig að þær hafa þekkst í Mið-Austurlöndum á þeim tíma sem ljóðið var samið. Frá Indlandi barst plantan til Evrópu gegnum Mið-Austurlönd, og Grikkland til Rómar. Rómverjinn Pliny gamli segir í riti að unnin séu lyf úr bæði ræktuðum og villtum gúrkum og að þær séu hjálplegar við margs konar meinsemdum eins og stungu sporðdreka, slæmri sjón, músagangi og ristregðu. Sagan segir að konur sem langaði í barn hafi gengið með gúrku bundna við mittið og að ljósmæður hafi haft með sér gúrkur þegar þær aðstoðuðu við barnsburð og hent gúrkunni eftir að barnið var fætt. Hér er líklega verið að vísa til agúrkunnar sem reður- og frjósemistákns. Ræktuðu gúrkurnar sem Pliny lýsir eru af nokkrum afbrigðum, smávaxnar og líkjast fremur smágúrkum í dag. Sagt er að Tíberíus Rómarkeisari hafi borðað að minnsta kosti eina gúrku á dag alla daga ársins. Pliny segir að gúrkurnar hans Tíberíusar hafi á sumrin verið ræktaðar í kössum á hjólum þannig að það gæti alltaf skinið á þær sól en á veturna hafi þær verið ræktaðar í gróðurhúsum. Í 4. Mósebók 11:5 segir: „Nú munum við eftir fiskinum sem við Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS Aldinið er misstórt, grænt eða gult, með eða án fræja, beint eða bogið, ílangt eða hnöttótt, slétt eða með hnúðum eða hornum, allt eftir tegundum og afbrigðum. Agúrka í gróðurhúsi á Íslandi. Mynd / Odd Stefán í salati.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.