Bændablaðið - 16.11.2017, Síða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Uppl. í síma
893-8424 / set@velafl.is
og á 694-3700 / gk@velafl .is
www.velafl.is
Hitachi ZX350LC-1
Árg. 2005, 13.800 vst.
Hraðtengi/skófla og smurkerfi.
Fleyglagnir, undirvagn góður.
Verð 4.750.000 + vsk.
Volvo EC360BLC
Árg. 2003, 8.700 vst.
Hraðtengi, gómskófla.
Verð 6.000.000 + vsk.
Caterpillar M313D
Árg. 2013, 2.000 vst.
Rótortilt, 3 skóflur.
Verð 13.500.000 + vsk.
Liebherr R934
Árg. 2005, 9.900 vst.
Smurkerfi, hraðtengi og 2 skóflur.
Verð 5.000.000 + vsk.
Bomag BW213 DH-4
Árg. 2011, 2.800 vst.
Þjöppumælir, þjöppur að aftan.
Verð 7.900.000 + vsk.
Hinowa HS1200E beltavagn
Árg. 2008, ónotaður.
Mokar upp í sig sjálfur.
Verð 1.500.000 + vsk.
HATTAT A 110
102 hö perkins mótor.
Nýtt merki sem byggir á
gömlum grunni.
Verð: 4.490.000 + vsk.
HATTAT B3050
Lipur 50 hestafla 4x4 vél.
Verð: 2.980.000 + vsk.
SOLIS 90 CRDI
Vél með ámoksturstækjum
og skóflu.
Verð: 3.900.000 + vsk.
SOLIS 26 með húsi
Sýningarvél árg. 2016.
Tilboðsverð: 1.350.000 + vsk.
SOLIS 60
Sýningarvél árg. 2016.
Notkun: 110 tímar
Tilboðsverð: 2.550.000 + vsk.
Nugent rúllugreipar
Einfaldar og tvöfaldar.
Með eða án festinga.
Mikil gæði gott verð.
GT Flatvagn,
Þriggja öxla á tvöföldu.
Fremsti öxull lyftanlegur.
Verð: 4.800.000 + vsk.
GT Grjótvagn Hardox 450,
með vör og hlera.
8 mm í botni og 6 mm í hliðum.
Verð: 4.800.000 + vsk.
www.vallarbraut.is
vallarbraut@vallarbraut.is
S: 841-1200 & 841-7300
Fjarbúaspenna er mjög breytileg
meðal íslenskra sveitarfélaga, eða
frá tæplega 4% og upp í rúmlega
40%, en það þýðir að frá 4 og upp
í um 40% íbúða í viðkomandi
sveitarfélögum á landsbyggðinni
eru ekki til ráðstöfunar fyrir fólk
sem þar vill setjast að, m.a. vegna
vinnu eða varanlegrar búsetu.
Þetta kemur fram í skýrslunni
Fjarbúar og fasteignamarkaður
á landsbyggðunum eftir Vífil
Karlsson, dósent við Háskólann
á Akureyri, hagfræðing og
forstöðumann atvinnuráðgjafar
hjá Samtökum sveitarfélaga á
Vesturlandi. RHA aðstoðaði við
gagnaöflun í rannsókninni og sá um
viðtöl í völdum bæjarfélögum.
Á íbúð í sveitarfélagi en hefur
lögheimli annars staðar
Hugtakið „fjarbúaspenna“ var í
brennidepli í skýrslunni, en þar er
fjölda annarra heimila deilt með
heildarfjölda íbúða. Önnur heimili
eru skilgreind sem íbúðir í tilteknu
sveitarfélagi sem eru í eigu „fjarbúa“
og bjóðast ekki á almennum markaði
til leigu eða sölu.
Í skýrslunni kallast fólk fjarbúar
tiltekins sveitarfélags ef það á íbúð
í sveitarfélaginu en lögheimili í öðru
sveitarfélagi. Meginniðurstaðan er sú
að fjarbúaspennan er mjög breytileg
meðal íslenskra sveitarfélaga, eða
á bilinu 3,9–40,2%. Þær íbúðir eru
ekki til ráðstöfunar fyrir það fólk
sem vill setjast að í viðkomandi
sveitarfélagi vegna vinnu eða til
varanlegrar búsetu.
Fjarbúaspenna setur
vinnumarkaði skorður víða
Kannað var í hvaða sveitarfélögum
fjarbúaspenna setti vinnumarkaðnum
skorður og samkvæmt ýmsum
vísbendingum virðist hún almennt
gera það á landsbyggðunum.
Mest í Skagabyggð, Kjósarhreppi,
Húnavatnshreppi, Fljótsdalshreppi,
Helgafellssveit, Skaftárhreppi,
Hrunamannahreppi, Rangárþingi
eystra, Borgarfjarðarhreppi og
Eyja- og Miklaholtshreppi. Þó
fjarbúaspenna virðist setja öllum
sveitarfélögum skorður þarf hreinn
samfélagslegur ábati þeirra allra
ekki að vera neikvæður þar sem
fjarbúum fylgja margir kostir og
samfélagslegur ábati eins og rakið
er í skýrslunni.
Viðtöl við forsvarsmenn sex
sveitarfélaga, þar sem fjarbúaspenna
er einna mest, benda hins vegar ekki
til að skorðurnar séu íþyngjandi
heimamönnum. Flestir viðmælenda
höfðu ekkert við þessa þróun að
athuga nema síður sé.
Frístundahús gjarnan á smærri
þéttbýlisstöðum í námunda við
höfuðborgina
Fram kemur í skýrslunni að almennt
eru hlutfallslega fleiri íbúðir í eigu
fjarbúa í fámennari sveitarfélögum
og þeim sem eru nær Reykjavík. Að
einhverju leyti má því segja að fólk
sem er í leit að frístundahúsi eða
öðru heimili horfi frekar til smærri
samfélaga í þéttbýli en stærri sem
séu ekki of fjarri Reykjavík. Flestar
íbúðir fjarbúa er 80–100 fermetrar að
stærð og ástand þeirra að stærstum
hluta gott.
Um 45% íbúða fjarbúa í þéttbýli
var til sölu, en 15% í dreifbýli. Um
40% þeirra sem áttu íbúð í þéttbýli
sögðust ekki vilja selja, en voru til í
að skoða sölu fengist nægilega hátt
verð. Þetta hlutfall var 21% meðal
þeirra sem áttu íbúð í dreifbýli.
Samanburður á ferlunum gaf til
kynna að eigendur, sem ekki voru
með íbúðina sína í sölu, vildu fá á
bilinu 29–68% hærra verð en þeir
sem voru þegar með eignirnar á sölu.
Innan við helmingur
eigir íbúðir út
Tæplega 40% fjarbúa leigðu íbúð
sína út á almennum markaði í
þéttbýli, en þeir sem áttu íbúð í
dreifbýli í mun minna mæli, eða
12%. Þeir sem ekki leigðu íbúð sína
á almennum markaði voru spurðir
hvort þeir væru til í það ef þeir
fengju nógu hátt verð og voru 18%
á þeirri skoðun: 20% í þéttbýli og
16% í strjálbýli. Að jafnaði var sú
leiga rúmlega 20% hærri en fékkst
á markaðnum.
Um 8% þeirra sem höfðu tekið
algerlega fyrir að selja eða leigja
á almennum markaði voru til í að
leigja íbúðina á almennum markaði
ef ábyggilegur leigumiðlari sæi um
allt umstangið í kringum leiguna fyrir
sanngjarna þóknun; 11% í þéttbýli
og 5% í dreifbýli. 5,5% íbúða fjarbúa
eru leigðar til ferðamanna og 7,5% í
dreifbýli. Nýting þeirra íbúða var að
jafnaði 21% og meðalleiga 18.600
kr. á dag.
Meðalnýting 37 dagar á ári
Íbúðir fjarbúa eru nýttar af eigendum
sínum að jafnaði 37 daga á ári: 35
í þéttbýli en 41 í dreifbýli. Þá hefur
verið tekið tillit til þeirra sem nýta
hana ekkert vegna útleigu. Fjöldi
gesta er að jafnaði 3,31 þessa daga.
Á grundvelli þessa má áætla að ¼
óskráður íbúi fylgi öðru heimili allt
árið. Það er vísbending fyrir dulinni
búsetu. Eldra fólk dvelur að jafnaði
lengur á öðru heimili sínu en það
yngra. Konur eru líklegri en karlar
til að nýta það. Þá eykur þráðlaust
net nýtingu annarra heimila.
Ef vinsældir tiltekinna bæja,
sveitarfélaga eða landsvæða sem
frístundabyggða hækka fasteignaverð
er líklegra að barnafjölskyldur flytji
brott fremur en aðrir íbúar eftir að
vissu hámarki fasteignaverðs er
náð. Barnafjölskyldum fjölgar hins
vegar þar sem verðið er lægra en
viðkomandi hámark. /MÞÞ
Fjarbúar og fasteignamarkaður á landsbyggðunum:
Vinsælir bæir og landsvæði sem frístunda-
byggð hækka fasteignaverð
Frá Blönduósi. Kannað var í hvaða sveitarfélögum fjarbúaspenna setti vinnumarkaðnum skorður og samkvæmt
ýmsum vísbendingum virðist hún almennt gera það í landsbyggðunum. Mynd / HKr.
Siglt á Pollinum á Akureyri. Mynd / HKr.
Mynd / HKr.
Hvolsvöllur. Mynd / HKr.
Eldri blöð
má finna
hér á PDF: